02.04.1970
Efri deild: 64. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 579 í B-deild Alþingistíðinda. (607)

16. mál, æskulýðsmál

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Frv. til l. um æskulýðsmál hafa verið flutt nú á þrem þingum. Eins og fram kemur í aths. við þetta frv., þá skipaði menntmrh. árið 1963 n. til þess að semja frv. til l. um æskulýðsmál, og var það frv., sem sú n. samdi, lagt fyrir þingið 1967–1968, en hlaut þá ekki afgreiðslu. Málið var síðan tekið upp og flutt sem þmfrv. á síðasta þingi, en hlaut þá ekki heldur afgreiðslu. Nú liggur frv. til l. um æskulýðsmál fyrir þessu þingi, og er það nokkuð breytt frá því, sem hið upphaflega frv. var, og er rakið í aths., hverjar þær helztu breytingar eru, sem gerðar hafa verið frá upphaflega frv. Ég skal ekki fjölyrða um það, en vísa til þess, sem segir í aths. við frv.

Við meðferð málsins í hv. Nd. tók það smávegis breytingum. Þar er fyrst að geta þeirrar breytingar, að í stað skipunartíma Æskulýðsráðs ríkisins, sem í frv. var lagt til, að yrði 3 ár, var samkv. till. menntmn. Nd. skipunartímanum breytt í 2 ár, og var það gert samkv. ábendingu frá stjórn Æskulýðssambands Íslands, þar sem það yrði meira í samræmi við venjulegan kjörtíma stjórna þeirra samtaka, sem eiga að standa að Æskulýðsráði.

Önnur breyting, sem á frv. var gerð í Nd. og einnig samkv. till. menntmn. — þær breytingar, sem þar urðu á frv., voru allar gerðar skv. till. menntmn., — er við 4. gr. frv., þar sem ræðir um skipun æskulýðsfulltrúa. Eins og frv. lá fyrir, var gert ráð fyrir, að æskulýðsfulltrúi yrði skipaður eins og aðrir ríkisstarfsmenn án tímatakmarks á ráðningu, en í Nd. var sú breyting á gerð, að æskulýðsfulltrúi skyldi skipaður til 5 ára í senn. Sú hugmynd kom upp í menntmn. Nd., að heppilegra gæti verið, að skipunartími æskulýðsfulltrúa væri takmarkaður við visst árabil, og þá ekki óeðlilegt, að það væri 5 ára tímabil, og n. ræddi það við þá, sem á fundum hjá henni mættu, sem voru fulltrúar frá æskulýðssamtökunum í landinu. Þessi hugmynd hlaut góðar undirtektir þeirra, og varð um hana fullt samkomulag einnig í n., og var sú brtt. samþ. í d.

Þá var í þriðja lagi gerð sú breyting á og samþ. í Nd., að aftan við 9. gr. frv. bættust orðin „enn fremur til námskeiða og annars fræðslustarfs einstakra samtaka.“ Eins og fram kemur í nál. menntmn. þessarar hv. þd. á þskj. nr. 462, hefur n. rætt frv. og leggur einróma til, að það verði samþ., eins og það nú liggur fyrir.