09.12.1969
Sameinað þing: 21. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (62)
1. mál, fjárlög 1970
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég skal nú leitast við að lengja ekki þessar umr., þó að vissulega margt hafi verið sagt, sem gæfi tilefni til nokkuð langra umræðna af minni hálfu, sér í lagi sú mikla þrumuræða, sem hv. frsm. minni hl. fjvn. flutti, sem að vísu er í dálítið svipuðum dúr og nokkrar ræður, sem hann hefur flutt undanfarin ár svona með dálitlum svipbrigðum séð, en ég skal reyna að forðast að lengja tíma með umr. um það efni.
Ég vil leyfa mér fyrst að nota tækifærið til að þakka fjvn. fyrir mjög vasklega og ágæta afgreiðslu fjárlagafrv. nú til 2.umr. Það hefur tekizt fyrr en stundum áður að ljúka þeirri afgreiðslu, vegna þess að oft hafa veigamiklir liðir orðið eftir til 3. umr. Það þótti hins vegar rétt, að reyna að stefna að því, að við 2. umr. sæjust öll þau útgjöld, sem máli skipta og þá væri vitað um og reynt yrði að ná samkomulagi fyrir þá umræðu um þá liði, sem alltaf er erfiðast við að fást, þ.e. hina ýmsu framkvæmdaliði og þá fyrst og fremst fjárveitingar til skólabygginga og hafnargerða, sem jafnan hefur verið erfiðast við að fást. Þetta hefur n. gert og ég verð að láta í ljós ánægju mína yfir því að tekizt hefur að ná samstarfi, að mér skilst, innan n. allrar varðandi þessa vandasömustu liði, fjárveitingar til þessara tilteknu, verklegu framkvæmda og hefur það kannske valdið einhverju hjá hv. minni hl. n., ef hann hefur talið, að ég hafi verið neyddur til þess að fallast á tillögur þær, sem meiri hl. gerði í þessu efni og er þeim að sjálfsögðu ekki of gott að ímynda sér það, ef það er einhver huggun í þeirra raunum. En ég skýrði frá því að vísu í fjárlagaræðu minni, að það væri vitað mál, að það þyrfti varðandi skólana að taka upp fjárveitingar til nýrra skóla, því að það væri í rauninni ekkert svigrúm til þess í fjárlagafrv., eins og það var lagt fram. Það kom á daginn, að framkvæma þurfti mjög víðtæka athugun á þeim till., sem höfðu komið frá menntmrn. varðandi skiptingu fjár til þeirra skóla, sem voru á framkvæmdastigi og sem kostuðu mikla vinnu og erfiði hjá n. að komast til botns í. En mér var í upphafi ljóst, að ekki yrði hjá því komizt að taka upp allverulegt fé til nýrra skóla einnig og miðað við það skipulag, sem nú er á skólabyggingum, þar sem hin nýju lög gera ráð fyrir því, að ekki séu nú sem áður teknar smáupphæðir í svo og svo marga skóla, heldur eftir vissu skipulagi unnið, svo sem lögin mæla fyrir um, þá auðvitað var þetta erfiðara, ekki sízt vegna þess, að það liggur ekki enn fyrir áætlun sú um skólabyggingamál, sem gert er ráð fyrir í lögunum, að sé gerð og er brýn nauðsyn og ætlunin hjá menntmrn. að vinna að nú á næsta ári, þannig að fyrir afgreiðslu næstu fjárl. liggi þetta fyrir. Það er eðlilegt, að þm. eigi erfitt með að sætta sig við að bíða með sína skóla, þegar þeir ekki geta bent á, að þeir komi á tilteknu ári, en hér er mun óheppilegra ástand í þessum efnum heldur en í vegamálum, þar sem gerð er áætlun, þar sem vitað er, að þeir fái sinn veg eftir eitt, tvö eða þrjú ár og þess vegna er það mikils virði og ég álit, að, að öðrum kosti verði skólamálin óviðráðanleg, ef ekki er hægt að koma þessu kerfi á, að þessi skólabyggingaáætlun verði gerð.
Varðandi hafnamálin þá var það einnig svo, að það hefur verið unnið í samvinnu milli rn. og fjvn. að því að framkvæma ákveðna till., sem ég lýsti í fyrra í minni fjárlagaræðu og endurtek aftur nú í haust, að ég teldi nauðsynlegt að gera, það væri að koma fjármálum hafnanna á traustan grundvöll og þess vegna teldi ég æskilegt, jafnvel þó að það kostaði töluvert auknar fjárveitingar, að unnið yrði á þessum grundvelli. Um þetta hefur nú náðst algert samkomulag. Tel ég það gleðiefni, að það hefur tekizt, þannig að hægt sé að vinna þá kerfisbundnara að þessum verkefnum í framtíðinni.
Fjárlagafrv. til 2. umr. er með allverulegum halla eða um nær 90 millj. kr. halla, sem ekki er gerð nein till. um, hvernig eigi að brúa, en ég vil taka það fram hér, að ég geri ráð fyrir því, að við umr. um tollskrána og meðfylgjandi frv. um söluskattshækkun, sem vænta má, að verði rædd hér í Alþ. á fimmtudag í þessari viku, þá mun ég gera grein fyrir því, hvernig þessi mál öll standa og hvaða tekjuöflunarráðstafanir verði gerðar til þess að jafna tekjumissi vegna aðildarinnar að EFTA og þeirra tollalækkana, sem af henni leiðir og jafnframt til þess að jafna þann halla, sem er nú á fjárlagafrv. og eru þó þar ekki öll kurl til grafar komin, svo sem ég mun lítillega víkja að síðar.
Gagnrýni sú, sem hér hefur komið fram frá hv. talsmönnum minni hl., er, auk þess að hér sé slæm stjórn í landi, – en ég bjóst nú ekki við að heyra frá þeim annað en svo væri, – aðallega í því fólgin, að það hefði verið með endemum illa haldið á fjármálastjórninni. Með hliðsjón af hinni miklu hækkun fjárl. undanfarin ár hefði framkvæmdafé ekki hækkað í sama mæli og fjárl. hafi hækkað yfir höfuð. Um þetta held ég, að við hv. 3. þm. Vesturl. höfum átt orðræður um nokkurt árabil og sennilega frá því, að ég kom í þetta sæti mitt hér, og hafa skoðanir okkar í þessu efni ekki alveg farið saman og fara víst ekki saman enn. Ég held nefnilega, að það fjárlagafrv. liti ákaflega einkennilega út, ef við gerðum ráð fyrir því, að allir útgjaldaliðir fjárlaga gætu hækkað hlutfallslega jafnt og það sé ekki tekið tillit til þess, þegar koma til alveg ný útgjöld. Ég nefni aðeins sem dæmi, að á þessu tímabili hefur komið til mjög stór útgjaldaliður hjá ríkissjóði, sem eru útflutnings uppbætur á landbúnaðarvörur, sem nú nema á 4. millj. kr. Ég tek þetta aðeins sem dæmi, en ekki til að finna að þessum útgjaldalið út af fyrir sig. Vitanlega hefði verið ógerlegt jafnhliða þessum lið, eða þessari hækkun fjárl., að hækka þá alla aðra liði fjárl., framkvæmdaliði fyrst og fremst vafalaust og væntanlega hefði það leitt til hækkunar á einhverjum öðrum liðum, þannig að það hefði alltaf verið hægt að halda í horfinu varðandi þetta efni og að verklegar framkvæmdir væru ætíð sama hlutfall af fjárl. Þetta er auðvitað gersamlega út í hött, vegna þess að það eru alltaf að koma inn í fjárl. nýir og nýir þjónustuliðir, ný og ný löggjöf, sem Alþ. er að samþykkja. Við sjáum afleiðingarnar nú t.d. og því er ég heldur ekki að sjá eftir, en aðeins bendi á, að sá útgjaldaliður ríkissjóðs, sem nú veldur mestum útgjöldum, eru sjúkratryggingarnar, sem hækka útgjöld ríkissjóðs um yfir 200 millj. kr. af þeirri heildarhækkun, sem nú er. Hvernig í ósköpunum ætti að mæta þessum hækkunum, sem leiða af gildandi löggjöf um þjónustu við borgarana, með því að það sé alltaf samtímis hægt að hækka hlutfallslega jafnmikið alla útgjaldaliði, sem eiga að heita verklegar framkvæmdir og jafnvel fleiri liði, því að mér skilzt nú, að það sé fundið að því jafnframt, að það hafi ekki verið haldið í horfinu með ýmislegt annað, tryggingar og eitt og annað? Auðvitað væri þetta mjög skemmtilegt og æskilegt, en þetta er bara ekki hægt, þetta hefur aldrei verið gert, hverjir sem hafa verið í stjórn og ég minnist þess, að ég hef haft æði lengi afskipti af fjármálum hér á Íslandi og það meðan Framsfl. fór með stjórn þeirra mála og það var venjulega eftir gengisbreytingar hjá þeim ágæta flokki, að þá var stöðvuð hækkun verklegra framkvæmda, vegna þess að það var ekki í senn hægt að hækka verklegar framkvæmdir með hliðsjón af gengisbreytingunni og mæta þeim kostnaðarauka, sem af henni leiddi. Þetta held ég, að megi sjá í gegnum gengisbreytingar, sem gerðar hafa verið í þeirra tíð.
Það var sannað hér af hv. form. fjvn., sem vitanlega skiptir höfuðmáli í þessu sambandi, að framkvæmdafé til opinberra framkvæmda, sem við köllum svo, hefur margfaldazt, miðað við fast verð. Það er auðvitað rétt, að það var eðlilegt, að þetta fé hækkaði eitthvað miðað við fjölgun fólks í landinu og auknar tekjur ríkissjóðs, þannig að mér dettur ekki í hug að halda því fram, að þetta út af fyrir sig sé eitthvað óeðlilegt. En þegar sífellt er verið að klifa á þessu, að það sé alltaf gengið á hlut verklegra framkvæmda, þá er þetta mikill misskilningur. Og það hefur verið sagt, að núna síðustu 10 árin og er sérstaklega vikið að afmæli viðreisnarstjórnarinnar í því sambandi, þá hafi þetta verið sérstaklega slæmt. Þetta er einnig mikill misskilningur, vegna þess að hlutfall verklegra framkvæmda á fjárlögum hefur verið sízt hærra áður heldur en það er nú og hækkanirnar á þessum framlögum næsta áratuginn á undan. Ef menn hafa gaman af að leika sér að tölum, þá geta þeir skoðað það sér til fróðleiks, hvort þar muni hafa verið um að ræða meiri hækkanir heldur en eru nú eða að framkvæmdafé til hafnargerða, skólabygginga og sjúkrahúsa t.d. hafi á því tímabili hækkað hlutfallslega meira en nú, miðað við heildarupphæð fjárl. Og ég skal þar aðeins nefna til fróðleiks tvær tölur, t.d. um hafnargerðirnar: 1950 var varið til þeirra 6.1 millj. af 262 millj. kr. rekstrarútgjöldum fjárl., 1959 er varið til þeirra 15 millj. af 964 millj. heildarupphæð fjárl. og ég held, að ef þetta er skoðað með hliðsjón af því, sem gerzt hefur nú í þeim efnum, þá sé það síður en svo í óhag þeirri stjórn, sem hefur farið með völd í landinu síðari árin. Jafnvel þó að við tökum barnaskólana og gagnfræðaskólana, þá var 1950 varið 3.4 millj. kr. til þeirra af 262 millj. kr. heildarrekstrarútgjöldum, en 1959 12.7 millj. af 964 millj. rekstrarútgjöldum, og sleppi ég þá alveg því, að á árunum 1958 og 1959 voru fjárl. aðeins helmingurinn af því, sem er tekið í þágu ríkisins, því að útflutningssjóði var haldið utan við og hann var jafnhár 1959 eins og fjárl. sjálf, og þó að menn vilji segja sem svo, að það hafi verið óeðlilegt að taka hann til samanburðar, hann samsvari gengisbreytingu, þá má benda þó á í því sambandi, að þá var búið að koma á þann sjóð einnig niðurgreiðslunum, sem eiga þó ekkert skylt við það, heldur beinlínis tekið út af fjárl., til þess að fjárl. sýndu ekki eins háa upphæð. Og það má jafnan benda á og tala um þessa óskaplegu skelfingu í hlutföllum, hvað hlutfallslega fjárl. hafi hækkað mikið á undanförnum árum. Fjárl. voru 262 millj. 1950, en voru um 1000 millj. 1959, þau voru 1960 1.380 millj., sambærileg tala 1970 í fjárlagafrv. núna er 6.100 millj., vegna þess að inn í fjárl. nú eru teknar 1.700 millj. kr., sem er hin sérstaka fjáröflun, sem gengur aðeins í gegnum ríkissjóðinn og var byrjað að taka inn í fjárl. fyrir tveimur árum og að sjálfsögðu ber að halda utan við þessar samanburðartölur. Þetta nefni ég aðeins í fróðleiksskyni, en ekki af því, að það skipti öllu máli. Það, sem skiptir meginmáli, þegar við erum að skoða fjárl. og viljum skoða þau af einhverju raunsæi og án þess að vera með pólitískar ýfingar, er auðvitað þetta: Hverju er eytt í fjárlagafrv. eða fjárl., sem ekki ætti að eyða? Hvað er það, sem við getum tekið þarna út úr og lagt til hliðar til annarra hluta? Það er kjarni málsins og það þýða auðvitað ekki óljósar fullyrðingar um það efni. Ég hef ekki enn þá heyrt frá þessum ágætu talsmönnum minni hlutans eitt einasta orð í þessa átt annað en það eitt, að þeir afgreiða málið ósköp einfaldlega með því að segja, að þetta sé ekki hægt. Ef félagshyggjan fengi að ráða, svo að ég vitni nú í hv. 3. þm. Vesturl., þá átti þetta aldeilis að breytast, því þá á að vera hægt að verja ekki 100 millj., heldur milljörðum til aukinna framkvæmda í þjóðfélaginu, án þess að það komi við nokkurn. Það verður ekkert smáræðis dýrðarríki, sem upp rennur, þegar sú stund kemur, að þessir ágætu menn taka við stjórninni.
Varðandi hina löngu lesningu hv. 3. þm. Vesturl., sem er jafnframt endurskoðandi ríkisreikninga, um sparnaðarlögin frá 1968, þá ætla ég nú ekki að fara að gera þau sérstaklega hér að umtalsefni, ekki vegna þess, að ég vilji ekki gjarnan um þau ræða, heldur vegna þess, að ég álít, að ríkisreikningur sé ekki hér á dagskrá, hann kemur hér væntanlega á dagskrá, þegar hann hefur lokið endurskoðun hans innan tíðar, þá mun hann koma hér á dagskrá með venjulegum hætti, þannig að þá verður hægt að ræða hann. Ég gerði í stórum dráttum grein fyrir afkomu ársins 1968 í fjárlagaræðu minni í haust og sé enga ástæðu til að endurtaka það. Varðandi einstök atriði, sem hann líka taldi, þá má nú finna á því ýmsar skýringar, sem ég skal játa, að ég hef ekki í minni mínu allar nú. Ég man, að hann gerði lítið úr þeim sparnaði, þegar það frv. var flutt, þannig að það er engin breyting í því efni frá hv. þm. En það eru nú ýmsar skýringar, sem munu koma á daginn, þegar á að fara að athuga það nánar, sem hann til tók og verður auðvitað að hafa hliðsjón af, þegar það er metið, hvort útgjöld hafa farið fram úr áætlun eða ekki. Ég tel það t.d. ákaflega hæpið, þegar tiltekið er, hvaða dómsmálastjórn hafi farið fram úr áætlun, að taka þar útgjöld vegna hægri umferðar, sem að vísu endurgreiðist með sérstökum hætti aftur, en er bókfært á útgjöld á þetta ár, jafnvel þó að tekið sé lán. Sýslumanninn í Hafnarfirði hefur hv. þm. haft á heilanum í nokkur ár og það eru líka til skýringar á því, sem ég ætla ekki að fara að orðlengja hér um. Það má lengi tala um þetta og ég skal ekki fara að þreyta menn í því efni nú. Ég tók það fram. strax, þegar þetta frv. var flutt, að það mætti gera ráð fyrir, að töluvert af þessum sparnaði yrði ekki raunhæft, en þetta væri fyrst og fremst flutt í trausti þess, að unnt væri að veita þarna aðhald. Ég tók það t.d. greinilega fram, bæði um lögreglustjórnina og dómsmálastjórnina, að það væri ekki að vænta þessa sparnaðar á þessu ári, en þetta væri stefnumarkandi og þetta mál hefur verið til meðferðar m.a. hjá þeirri undirnefnd, sem hv. þm. á sæti í, að gera ákveðnar tillögur í þessu efni. Sama var að segja um fræðslumálastjóra embætti ég benti á það, að ekki mundi verða raunhæfur sparnaður í því, fyrr en væri búið að koma þar á skipulagsbreytingu og koma því inn í menntmrn., að það væri stefnumörkun, sem ætti að horfa til aukins sparnaðar, þegar þar að kæmi, þannig að 30–40 millj. kr. af þessum sparnaði væri hæpið, að mundu skila sér á þessu ári og ég hygg, að það fari nokkuð nærri lagi, þegar málið er skoðað niður í kjölinn. Sannleikurinn er líka sá, að 1968 fóru fjárl. hlutfallslega ekki mikið fram úr áætlun, þegar teknar eru þær sérstöku heimildir til útgjalda, sem veittar voru á því ári vegna sjávarútvegsins og ég tel jafngilda fjárl. Þá fóru fjárl. í heild ekki nema 225 millj. kr. fram úr áætlun og af þeirri upphæð voru um 120 millj. á tveimur liðum, annars vegar vaxtakostnaður vegna yfirdráttar í Seðlabankanum og hins vegar útgjöld vegna ríkisábyrgðasjóðs. Að sjálfsögðu er rétt, að það var skakkt metið hjá mér, að hagur sjávarútvegsins mundi batna á því ári. Hann versnaði enn stórlega og leiddi til þessara aukaútgjalda, ég held, að það geti ekki talizt neitt sukk, það varð að greiða þessi gjöld og ekki um annað að ræða, en að bíta í það súra epli, ef svo má segja.
Varðandi svo allan þennan mikla sparnað, þá er gott og blessað að heyra um hann talað ár eftir ár. Ég beitti mér fyrir því fyrir tveimur árum að koma á samvinnu milli fjvn. og fjmrn. til þess að kanna þessi mál niður í kjölinn og þar eiga allir flokkar sæti, að undanteknum nýja flokknum, sem mér skilst, að sé nýhlaupinn af stokkunum, en hann á nú ekki mann í fjvn., en aðrir flokkar eiga þar sæti og ég held, að menn hafi starfað þar saman af hógværð og raunsæi og löngun til að láta gott af sér leiða. En ég hef ekki heyrt, að það hafi komið þar fram, að menn hafi fundið púðrið, sem sagt, að menn hafi þar fundið einhver töfraráð til þess að lækka stórkostlega útgjöld ríkisins, þannig að það væri hægt að móta þá stefnu, sem er mikið talað um hér af þessum ágætu mönnum, að það ætti að vera hægt að auka í stórum stíl útgjöld til verklegra framkvæmda. Allt það, sem þeir hafa bent á, hefur vissulega verið tekið til athugunar og engir árekstrar orðið í því efni enn þá og ég efast ekki um, að það er fram sett af velvilja. En þess vegna er svolítið þreytandi að heyra enn þá talað um það, að menn verði sér til skammar, ef þeir eigi að tala um sparnað, nema því aðeins, að hv. þm. ætli að lifa eftir þeirri reglu og haldi, að hann verði sér til skammar, ef hann talar um sparnað, – ég veit það ekki. En mér finnst ósköp leiðinlegt og þreytandi að hlusta á svona tal, vegna þess að ég held, að það sé ábyggilega vilji allra að spara. Mér dettur ekki í hug, að ég sé að tína í menn neina veraldarinnar vizku í því efni, en ég áleit, að þetta væri spor í rétta átt á sama hátt og ég áleit, að væri spor í rétta átt að setja hagsýslustofnunina á laggirnar og hvað sem menn um það segja, þá er ég í engum efa um það, að það hefur sparað ríkinu stórfé, vegna þess að þó að útgjöld hafi hækkað, þá skulum við ekki halda, að það geti ekki hafa verið um að ræða beinlínis stórfelldan sparnað af þeirri einföldu ástæðu, að það er í mörgum tilfellum, sem útgjöld gátu hafa hækkað mun meira, ef ekki hefði verið komið við hagkvæmari vinnubrögðum og aðhaldi. Þetta held ég sannast sagna, að við ættum að leggja niður deilur og karp um, vegna þess að það er ástæðulaust.
Það vilja allir spara, bæði stjórn og stjórnarandstaða, en það er ekki eins þægilegt og menn halda, vegna þess að það verður ekki sparað í stórum stíl, nema með því að skera niður þá þjónustu, sem þjóðfélagið veitir borgurum sínum. Þetta vitum við. Við verðum að borga opinberum starfsmönnum þeirra laun, það þýðir ekkert annað en að beygja sig fyrir því. Og ég efast um, að það sé hægt í stórum stíl að fækka opinberum starfsmönnum. Ég veit að vísu, að það er hægt að gera það að nokkru marki og benti á það í minni fjárlagaræðu, en ég skal jafnframt játa, að varlega hefur verið farið í það á þessu ári, þó að væri hægt að finna úrræði til að fækka um nokkra tugi manna, vegna þess ástands, sem hefur verið í atvinnumálum. En að það velti á milljónatugum, ég tala nú ekki um milljörðum, ef mætt yrði öllum þeim kröfum, sem uppi eru og hv. frsm. minni hl. sagði, að ætti að vera auðvelt að gera með breyttri stefnu, það held ég, að sé barnalegt að álíta eða tala um, að sé nokkur alvara á bak við. Það er allt of augsýnileg blekking til þess.
Ég skal aðeins víkja að þeim brtt., sem hér hafa komið fram frá minni hl. Ég sé ekki ástæðu til að ræða sérstaklega ræðu hv. 6. landsk. þm. þar sem hún var að mestu leyti endurtekning á því, en þó í mildara formi, sem aðal frsm. hafði haldið fram. En eitt atriði vakti að vísu athygli mína í ræðu hans. Hann talaði um það, að lækkun tekjuskatts kæmi hinum efnameiri mest til góða og það vakti athygli mína vegna þess, að hér var til umræðu um daginn frv., þar sem það var lagt til af hálfu Framsfl. að lækka tekjuskattinn enn þá um nálægt 300 millj. kr. með hækkun á skattvísitölu um 40 stig til viðbótar því, sem gert er ráð fyrir að hækka hana, sem mundi leiða af sér þessa skattalækkun, sem vissulega kemur fyrst og fremst þeim til góða, sem betur eru settir í þjóðfélaginu, en það kom mér undarlega fyrir sjónir, að einn af þessum flokksbræðrum hv. 6. landsk. þm., sem ég held, að sé flokksbróðir hans enn þá, lýsti því yfir, að hann styddi mjög eindregið þetta frv. Að öðru leyti vil ég ekki gera það að umtalsefni.
Varðandi bætur almannatrygginganna vil ég upplýsa það hér út af þeirri till., sem hér liggur fyrir, að það mál er í sérstakri athugun. Hins vegar er það alls ekki svo, að bætur almannatrygginga hafi síðustu 10 árin rýrnað svo stórkostlega. Það vill svo til, að ég hef hér fyrir mér samanburð um það, sem gerður hefur verið af sérstakri n., sem í eiga sæti mjög fróðir menn undir forystu ráðuneytisstjórans í félmrn., þar sem athugað er, hvað vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað frá því í apríl 1959 þangað til í nóvember 1969, og hún hefur hækkað þá um 284.3 stig, en elli– og örorkulífeyrir einstaklinga hefur á því tímabili hækkað um 332%, barnalífeyrir um 270%, fullur ekkjulífeyrir um 312% og ekkjubætur um 286%, en fæðingarstyrkir, ég hef ekki prósentutölu þeirra hér, en þeir hafa hækkað um mun meira, heldur en sem hér segir. Fjölskyldubætur hafa ekki hækkað að fullu í hlutfalli við þetta, en það er nokkuð flókið mál, því að á þessu tímabili hafa orðið á þeim skipulagsbreytingar, en það er talið af n., að það sé ekki rétt, að fara að gera víðtækar breytingar á þeim bótum, nema því aðeins að taka til heildar endurskoðunar skipulag þeirra bóta og allt það kerfi, sem verið hefur til umræðu, eins og hv. þm. vita, um eins til tveggja ára skeið, að gera þar víðtækar breytingar á. En jafnframt er þess að gæta, að fjölskyldubæturnar eru ekki venjulegur þáttur tryggingakerfisins, heldur er þar um að ræða beinar greiðslur úr ríkissjóði, sem inntar hafa verið af höndum eftir því, hvernig árað hefur hverju sinni. Það hefur verið reynt að halda fremur í horfinu með lífeyrinn og það, sem honum hefur fylgt, en hér á sínum tíma var því ekki að leyna, að fjölskyldubætur voru nokkuð notaðar til þess að borga niður vísitölu og var þá gagnrýnt töluvert, að það skyldi vera gert. Nú er það að vísu úr sögunni, vegna þess að síðan vísitalan breyttist er ekki jafnauðvelt um vik og ekki eins ódýrt að greiða niður vísitölu með hækkun fjölskyldubóta, þannig að sú aðferð er úr sögunni. En ég vildi láta það koma fram hér, að það er gert ráð fyrir því, að lífeyrisbæturnar verði hækkaðar sem nemur þeirri hækkun, sem orðið hefur hjá láglaunafólki á kaupgjaldi þess. Það hefur orðið nokkur rýrnun á þessum bótum, þó að þær hafi hækkað, þegar 10 ára tímabil er tekið. Það var rýrnun núna tvö síðustu árin, vegna þess að þær höfðu hækkað fram til þess tíma mun meira heldur en framfærsluvísitalan hafði hækkað. En það er gert ráð fyrir því að hækka bæturnar núna þannig, að bótaþegar verði jafnsettir varðandi uppbætur á þessar bætur sínar eins og láglaunafólk fær nú.
Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða mikið till. um 350 millj. kr. Um það mætti margt segja, en ég held, að höfuð vandamál okkar atvinnuvega sé ekki endilega í því fólgið, að það vanti 350 millj., heldur sé kjarni málsins sá, að við búum þannig að okkar atvinnuvegum núna, sem vissulega hafa náð sér mjög á strik, ekki sízt útgerðin, að ekki verði lagðar á þá nýjar byrðar, sem eyðileggja þennan grundvöll, sem þeir eru nú að komast á. Það eru ekki lánveitingar, en ef þetta á að veitast sem styrkir, þá hefur það nú líka sínar hættur í för með sér, hvernig á, á 5 árum að halda, en það er eitt atriði í þessu, sem er vissulega vandamál og það eru togarasmíðarnar innanlands. Ég skal ekki út í þá sálma fara hér, enda er það ekki mál, sem beint heyrir undir mig. En ég held, að menn verði mjög alvarlega a.m.k. að íhuga, hvaða afleiðingar það hefur varðandi annan atvinnurekstur í landinu, ef ríkið á að fara að borga beinlínis niður togarana og hversu hagkvæmt það geti talizt. Ástæðan auðvitað til, að togaraflotinn hefur grotnað niður, sem hann vissulega hefur óhæfilega mikið gert, er einfaldlega sú, sem allir vita, að önnur útgerð hefur verið mun hagkvæmari og menn hafa þess vegna farið yfir í aðra útgerð í stórum stíl, en ekki rekið togara, sem alls ekki hafa borið sig, þó að þeir hafi fengið verulegan styrk. Hvort menn eiga að fara út í stóreflingu á togaraflotanum og leggja til þess ríkisstyrk, það skal ég ekkert fullyrða um á hvoruga hliðina á þessu stigi, en ég held, að það mál þurfi allt miklu meiri skoðunar við, áður en er farið að slá því föstu, að það skuli gert, enda vakna þá líka spurningar um, hvað eru togarar og hvað eru ekki togarar. Og koma þá ekki kröfur úr öðrum áttum? Við vitum, að það eru önnur atvinnufyrirtæki til, sem má segja, að geti haft vissa þjóðfélagslega þýðingu, en það er auðvitað alltaf þægilegra að reka fyrirtæki, ef menn geta fengið gefins svo og svo stóran hluta stofnkostnaðarins, þegar þeim er hleypt af stokkunum. Og það kynni fleirum en togaraeigendum að detta í hug að fara fram á það. Ég tel því ekki mögulegt að fallast á þessa till. eins og hún liggur fyrir, en vildi varðandi tryggingabæturnar láta þetta koma fram hér og jafnframt benda á það, að mikill meiri hl. þeirrar hækkunar fjárlagafrv. nú, eins og það liggur fyrir frá fjvn., er hækkun á fjárfestingar framlögum beinum, þannig að það eru rúmar 100 millj. af þessum 170–180 millj., sem um er að ræða, sem ganga til verklegra framkvæmda beinlínis og að öðru leyti er um að ræða útgjaldaliði, sem ég álít, að fjvn. hafi metið rétt, að væri óumflýjanlegt að taka upp, svo sem enn stórfellda hækkun vegna sjúkratrygginganna, sem þýðir ekkert annað en beygja sig fyrir og er reikningsleg staðreynd.
En það eru nokkur atriði enn eftir, sem ég skal ekki fara út í hér, sem fjvn. mun taka til nánari athugunar og hefur jafnframt í athugun hjá ríkisstj. fyrir 3. umr., en ég vil aðeins að lokum endurtaka það, sem ég áðan sagði, að ég reikna með því, að þegar gerð verður grein fyrir tollafrv., sem ég vonast til, að verði á fimmtudaginn, geti ég gefið heildaryfirlit yfir það, hvaða stefnu ríkisstj. hyggst fylgja varðandi tekjuöflun og hvernig þau málefni öll standa og þá jafnframt, með hvaða hætti verði jafnaður hallinn á fjárlagafrv., eins og það kemur nú við 2. umr. og mun eiga eftir að hækka eitthvað útgjöldin við 3. umr.