05.03.1970
Neðri deild: 55. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (634)

14. mál, gagnfræðanám

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Það er óþarfi að fara mörgum orðum um, að hér sé um að ræða framhaldsnám eftir skólaskyldu. Það er augljóst og sjálfsagt viðurkennt af öllum. Það er líka rétt, að sú regla hefur gilt, að ríkið hefur greitt allan kostnað við framhaldsnám, en í þessu frv. er gert ráð fyrir, að kostnaðinum verði skipt milli ríkis og sveitarfélaga. Skýringin á þessu atriði er fyrst og fremst sú, að hér er um heimildarlög að ræða og algera nýjung. Því er óhjákvæmilegt að ýmis ákvæði um þetta framhaldsnám eftir gagnfræðaskólana verði endurskoðuð á næstunni.

Hv. 1. þm. Vestf. sagði það hafa verið upplýst í n., að samningar hefðu verið gerðir milli ríkisins og Reykjavíkurborgar. Var um það spurt í n., hvort samningar hefðu verið gerðir milli ríkisins og Reykjavíkurborgar, en ég bar munnlega þær upplýsingar frá menntmrn., að það væri ekki um neina samninga að ræða, heldur að ákvæði um mat á því, hve mikil kennsla skuli greidd, væru túlkuð sveitarfélögunum eins mikið í hag og hugsanlegt er innan ramma skólakostnaðarlaganna. Væri litið svo á, að hér væri um óvenjulega kennslu og tilraunir að ræða. Það er rétt, sem hv. þm. segir, að hér er ekki um mikið mál að ræða, vegna þess að ríkið greiðir kennarakostnaðinn allan hvort eð er. Ef ríkið ætti að greiða annan kostnað, yrðu sveitarfélögin að meta húsnæði og notkun þess og gera ríkinu reikning fyrir það, að þessi tilraun er gerð í skólahúsnæði, sem þau hafa yfir að ráða. Ég held, að hér sé ekki um að ræða brot á meginreglu með þessu ákvæði. Ég held, að það sé eðlilegt, að kostnaðarákvæðin, sem um er deilt, verði tekin til endurskoðunar með þessu máli öllu, sem eðli sínu samkvæmt hlýtur að verða endurskoðað í ljósi reynslunnar á næstu 2–3 árum, auk þess sem það er vitað að l. um skólakostnað, þar sem þetta ákvæði ætti að sjálfsögðu heima til frambúðar, hljóta líka að koma til endurskoðunar á næstu 2 árum.