14.04.1970
Efri deild: 69. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (650)

14. mál, gagnfræðanám

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég ætla nú ekki efnislega að fara að ræða þetta mál, en aðeins víkja nokkrum orðum að þeirri brtt., sem hér er komin fram og sem felur það í sér, að líta beri á þessar framhaldsdeildir sem menntaskólastig og þar af leiðandi, að ríkissjóður skuli bera af þeim allan kostnað. Hv. frsm. n., 2. þm. Reykv., hefur nú nokkuð vikið að þessu efni, en ég vildi þó bæta þar við nokkrum orðum.

Það er auðvitað alveg rétt, að framhaldsskólastigið og þá auðvitað menntaskólastigið í þessu tilfelli er greitt af ríkissjóði samkv. sérlögum, og þá má segja, að ef hér væri um stofnun menntaskóla að ræða, að þá væri eðlilegt, að það yrði einnig svo. Nú liggur hins vegar ekkert fyrir um það, að svo sé. Það er skýrt tekið fram í forsendum brbl., að hér sé um að ræða deildir í tilraunaskyni, framhaldsdeildir við gagnfræðaskólana til þess að undirbúa þessa nemendur betur undir framhaldsnám, sem sannast sagna á því stigi var ákaflega óljóst um, í hvaða átt mundi þróast.

Það hefur síðan verið að því unnið að reyna að fastmóta þessar deildir og gera sér grein fyrir því, hvaða þátt þær ættu að hafa og stöðu í fræðslukerfinu. Eins og hv. þm. er kunnugt, er það algert undantekningaratriði, eins og okkar skólaskipun er í dag, að menntaskólastig og gagnfræðaskólastig sé rekið saman sem sameiginlegur skóli, og það út af fyrir sig þyrfti að sjálfsögðu að athugast mjög náið, áður en því yrði slegið föstu, að hér skyldi komið á fót hvarvetna um landið nýjum menntaskólum.

Það veit heldur enginn um það í rauninni, hvort hér sé um nám að ræða, sem samsvarar framhaldsnámi í neðstu bekkjum menntaskóla. Það getur eins búið nemendur undir aðra skóla, og enn eru ekki til fastmótaðar till. um það, hvernig beri að líta á þetta framhaldsnám. Það er sem sagt, eins og í brbl. segir, eingöngu sett á laggirnar í tilraunaskyni, og með hliðsjón af því var að sjálfsögðu eðlilegt, eins og efni málsins er á þessu stigi, að á þetta yrði litið sem framhaldsdeildir við gagnfræðaskólana og kostnaður greiddur sem gagnfræðaskólakostnaður.

Það liggur þegar í augum uppi við athugun á frv., eins og það er orðað, að það væri auðvitað af og frá, að einstök sveitarfélög gætu farið að ákveða að setja á laggirnar menntaskóla, sem væri kostaður að öllu leyti af ríkinu. En eins og 1. gr. frv. er orðuð eða viðbótin við l., sem þar er greint frá og mundi verða 65. gr. l., þá er gert ráð fyrir því, að ákvörðunaraðilar um þetta séu heima í héraði. Það þarf að vísu leyfi menntmrn. til, en ljóst er af öllu orðalagi greinarinnar, að það er gert ráð fyrir, að öll ákvörðunin sé fyrst og fremst í hendi aðila heima í héraði. Þetta er auðvitað af og frá, sem ég veit, að allir hv. þm. geta gert sér grein fyrir og eru sammála, að einstök sveitarfélög geti ákveðið það að setja upp skóla eða fyrirtæki með einhverjum hætti, sem algerlega er kostað af ríkinu. Það yrði þá að breyta allri uppbyggingu þessara framhaldsdeilda, ef ætti að samþykkja þá ákvörðun, að ríkið skyldi greiða allan kostnaðinn.

Ég skal ekkert um það segja, hver að lokum verður niðurstaða þessa máls og hvernig þessar deildir þróast. En það er þó svo viðamikið atriði og umfangsmikið að gera sér grein fyrir því, að ég held nú, að við nánari athugun hljóti allir að sannfærast um það, að á þessu stigi sé útilokað að taka ákvörðun um það, að hér sé verið að setja á fasta framhaldsskóla, hvort sem þeir heita framhaldsdeildir menntaskóla eða eitthvað annað, sem við vitum þá ekki, hvað kalla skuli. Helzt er það þó menntaskólastig, eins og hv. flm. brtt. sagði. En það yrði þá að bera að með allt öðrum hætti og mönnum yrði að vera ljóst, hvert yrði stefnt, og hvort ætti að fara að setja upp, eins og ég segi, menntaskólastig víðs vegar um landið á svo mörgum stöðum, að enginn veit, hve margir þeir staðir yrðu í rauninni. Það er einfalt mál að gera þetta, ef ekki þarf að gera annað en leggja til nemendurna og ríkið á að borga kostnaðinn. Ég sannast sagna skil ekki annað en menn hljóti að gera sér grein fyrir því við nánari athugun, að á þessu stigi málsins er útilokað að stíga sporið til fulls.

Ég held því, eins og málin standa í dag og með hliðsjón af því, sem er hugsun þeirra brbl., sem hér er verið að staðfesta, að þá sé það eitt í anda þeirra, að sú tilhögun verði höfð, að á þetta sé litið sem tilraunastig, sem geti þróazt í einhverjar áttir í framhaldsnámi, sem við vitum þó ekki um enn þá, og þar af leiðandi meðan ekki er vitað um, hver sú þróun verður, þá sé eðlilegt og það eina, sem auðið sé að gera, sé að líta á þetta sem tilraunadeildir við gagnfræðaskólana og verði því að líta á það sem þátt í gagnfræðanámi.

Af þessum sökum tel ég ekki vera mögulegt á þessu stigi málsins, þó að ég þekki vel óskir sveitarfélaganna, sem eru eðlilegar. Sveitarfélögin vilja alltaf losna við að borga það, sem þeim er gert að greiða. Það er skiljanlegt og ekki hægt að dæma þau fyrir það, en ég held, að það brjóti í bága við alla eðlilega hugsun í þessu máli að ákveða, að sveitarfélögunum sé fengið það vald í hendur að setja á stofn ríkisskóla með þessum hætti.