09.12.1969
Sameinað þing: 21. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í B-deild Alþingistíðinda. (67)
1. mál, fjárlög 1970
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég á nú heldur bágt með að tala hér fyrir þeim brtt., sem ég hef lagt hér fram og ekki er búið að útbýta enn þá, hefði nú eiginlega viljað fara fram á það við forseta að fresta því, að ég talaði fyrir þeim brtt., sem ég ætlaði eingöngu að tala hér fyrir, þar til þeim verður hér útbýtt. Ég óska því eftir að fá að taka til máls, þegar till. hefur verið útbýtt.