16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (674)
167. mál, Bjargráðasjóður Íslands
Frsm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Hæstv. félmrh. gerði ítarlega grein fyrir efni frv., þegar hann lagði það hér fram við 1. umr., og er því ekki ástæða til langrar framsögu með því nál., sem hér liggur fyrir, en heilbr: og félmn. hefur haft málið til athugunar, og leggur hún til, að það verði samþ. óbreytt.
Efni frv. er mjög einfalt. Það er, að aftan við 12. gr. l. bætist nýr stafliður, d, sem hljóðar þannig, með leyfi forseta: „vegna uppskerubrests á kartöflum samkvæmt reglum, sem bjargráðastjórn setur.“ En í l. um Bjargráðasjóð mun ekki þessa heimild að finna, en aftur vegna atvika, sem gerzt hafa, er talið nauðsynlegt og eðlilegt, að stjórnin fái einnig heimild til þess að bæta uppskerubrest í sambandi við kartöflurækt, ef um stórfelldan uppskerubrest er að ræða, eins og talið er, að hafi orðið sums staðar hér á landi á síðasta ári.