20.03.1970
Efri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (680)
167. mál, Bjargráðasjóður Íslands
Utanrrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Í l. um Bjargráðasjóð frá 1967 er talin upp sú starfsemi, sem á kost á því að fá aðstoð úr afurðatjónadeild Bjargráðasjóðs, ef upp á koma erfiðleikar, og eru þar í núgildandi l. aðeins nefnd tvö atriði, það eru vanhöld á sauðfé og í nautgriparækt. Hins vegar er skylt að greiða í þessa afurðatjónadeild Bjargráðasjóðs af öllum búfjárafurðum.
Á s.l. ári kom það fyrir, eins og öllum er kunnugt, að kartöfluræktendur áttu víða um land í erfiðleikum vegna mikillar úrkomu og erfiðleika í sambandi við ræktun. Það hefur hins vegar verið talið eðlilegt, að þeir ættu eins og aðrir möguleika á því að fá aðstoð úr þessari búfjárlánadeild Bjargráðasjóðs, og það er það, sem þetta frv. fer fram á. Þessi uppskerubrestur á kartöflum á s.l. ári var víða mikill, sérstaklega hjá þeim, sem stunduðu þessa atvinnugrein í stórum stíl, og er þess vegna talið rétt, að nú verði bætt inn í l. ákvæðum um það, að heimild sé til þess að styrkja þessa starfsemi eða veita til hennar lán, ef á því er þörf.
Ég held, að þetta sé svo einfalt mál, að ég þurfi ekki að hafa um það miklu lengri framsögu, en leyfi mér aðeins, herra forseti, að leggja til, að frv. verði afgr. til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.