03.03.1970
Neðri deild: 54. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í B-deild Alþingistíðinda. (691)
161. mál, dýralæknar
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta er samið af n., sem Dýralæknafélag Íslands kaus árið 1965. Hefur frv. verið í endurskoðun, bæði hjá rn. og eins hjá dýralæknum sjálfum, og fengið nokkrar breytingar í meðförunum. Dýralæknafélag Íslands hefur sagt, að eins og frv. er nú úr garði gert, séu þeir tiltölulega ánægðir með það og telji það stórt spor í framfaraátt og skapi aukna möguleika til þess að veita flestum héruðum landsins nauðsynlega dýralæknisþjónustu.
Það, sem felst aðallega í þessu frv., er t.d. það, að Árneshreppur verður ekki lengur aðskilinn frá Vestur-Húnaþingsumdæmi, þar sem hann er kominn í beint vegasamband við umdæmið, og þykir því eðlilegt að sameina það.
Sömuleiðis er lagt til, að Grafningshreppur verði aðskilinn frá Laugarásumdæmi og lagður undir Selfossumdæmi. Ferð úr Laugarási er mun lengri þangað en frá Selfossi, og reyndin hefur orðið sú, að bændur í téðum hreppi reyna að vitja héraðsdýralæknis að Selfossi. Viðkomandi héraðsdýralæknar telja þessa breytingu sjálfsagða.
Þá er einnig lagt til, að Vestur-Eyjafjallahreppur í Rangárvallasýslu verði sameinaður Víkurhéraði, og eru dýralæknar sammála um, að það sé eðlileg skipan, þar sem Víkurhérað hefur verið talið frekar lítið, en Helluumdæmi, Rangárvallaumdæmi, eigi að síður nægilega stórt fyrir einn dýralækni, þó að tveir austustu hrepparnir verði með Víkurhéraði, en Austur-Eyjafjallahreppur hefur verið það áður.
Þá er nýmæli í þessu frv. að ráða dýralækni án fastrar búsetu til þess að gegna dýralæknisþjónustu í forföllum héraðsdýralækna eða í einstöku annríki, t.d. með kjötskoðun, töku blóðsýnishorna o.fl.
Þá eru loks ákvæði um, að við Tilraunastöð háskólans í meinafræði að Keldum skuli að jafnaði starfa minnst tveir sérmenntaðir dýralæknar í staðinn fyrir minnst einn í gildandi lögum.
3. gr. frv. fjallar um starfssvið yfirdýralæknis og skyldur. Þar er greint efnislega frá starfssviði dýralækna og er nánar ákveðið um það en er í gildandi l. Þá er gert ráð fyrir því, að forseti skipi yfirdýralækni og héraðsdýralækna, en áður hefur það verið einföld skipun ráðh., sem hefur skipað dýralækna í embætti.
Héraðsdýralæknisumdæmin eru 20 talsins, en 3 af þeim eru enn óskipuð. Þessi héruð eru öll á afskekktustu og tekjurýrustu stöðum á landinu. Þau verða þess vegna vandfyllt nema með auknum föstum tekjum og þeim framtíðarhorfum, að dýralæknar þar geti sótt um og fengið betri embætti, þegar þau losna. Þess vegna er gert ráð fyrir í þessu frv., að staðaruppbót verði veitt, þar sem tekjurýrustu héruðin eru. En með því er verið að leitast við að bæta aðstöðu í dreifbýlinu og auka þjónustuna og afkomuöryggið.
Þá er nýmæli í þessu frv., að héraðsdýralækni er skylt að sinna brýnni vitjunarbeiðni í öðru dýralæknisumdæmi, ef viðkomandi dýralæknir þar er fjarverandi eða forfallaður.
Þá er einnig nýmæli um það, að yfirdýralæknir setur héraðsdýralæknum erindisbréf, þar sem kveðið er á um starfssvið þeirra, og er gert ráð fyrir, að landbrh. staðfesti það bréf.
Þá er gert ráð fyrir því, sem ekki er í gildandi l., að héraðsdýralæknar hafi heilbrigðiseftirlit með kjötvinnslustöðvum og mjólkurbúum í landinu, og það er vitanlega í fullu samræmi við lagasetningu í þeim efnum í nágrannalöndunum og þar sem hreinlæti er komið á gott stig.
Þá er gert ráð fyrir því, að dýralæknar sendi skýrslur um smitsjúkdóma mánaðarlega og yfirlitsskýrslu um heilsufar og sjúkdóma og læknisaðgerðir til yfirdýralæknis.
Þá eru viðurlög og ákvæði um það í frv., að dýralæknar gegni störfum sínum af árvekni og samvizkusemi.
Það er gert ráð fyrir því, að í hverju héraði, eða þar sem minnst er, séu 1600 mjólkurkýr, og þykir það vitanlega lítið og skapa litlar tekjur, því að dýralæknar eru tæplega sóttir langan veg nema það séu mjólkurkýr eða dýrustu gripirnir, sem eru veikir. En samkv. síðustu upplýsingum frá Hagstofu Íslands munu eftirtalin umdæmi teljast staðaruppbótaumdæmi: Snæfellsness-, Dala-, Barðastrandar-, Ísafjarðar-, Norðausturlands-, og Austur-Skaftafellssýsluumdæmi. En af þessum umdæmum eru Austur-Skaftafells-, Snæfellsnessog Dalaumdæmi setin dýralæknum.
Í frv. er gert ráð fyrir, að dýralæknar fái nokkurn skrifstofustyrk úr ríkissjóði, þar sem þeir eru ekki aðnjótandi embættisbústaðar. Ósamræmi hefur skapazt í tekjum hjá þeim, sem njóta embættisbústaðar, og hinna, sem verða að byggja yfir sig sjálfir eða skapa sér eigin húsnæði.
Þá er í frv. gert ráð fyrir því, að veita megi lán til bifreiðakaupa handa nýjum dýralæknum, sem sækja um starf hjá ríkinu. Það er vitað mál, að ungir dýralæknar koma skuldugir frá námi og eiga erfitt með að koma sér í starf með því að kaupa allt, sem til þess þarf, þ. á m. bifreiðar, sem eru dýrar, eins og allir vita.
Þá er nýmæli í frv., sem gerir ráð fyrir því, að um fast áhaldasafn verði að ræða, sem fylgi hverju umdæmi, og umdæmið eigi þetta safn. Það er mikið lagt upp úr því, að þetta verði sett í lög, m.a. vegna þess, sem áðan var lýst, að dýralæknar koma skuldugir frá námi og eiga erfitt með að koma fótum undir sig í byrjun. Hér er vitanlega aðallega um að ræða tæki, sem sjaldan eru notuð, en hvert umdæmi þarf að eiga, en eru tiltölulega dýr. Það er vitanlega talsverður stofnkostnaður, sem hér er um að ræða, sem ríki og héruð taka þátt í að leysa.
Þá er gert ráð fyrir því í frv., að dýralæknar fái aðstöðu til þess að taka frí á 10 ára fresti um 6 mánaða skeið til þess að mennta sig betur og endurnýja kunnáttu sína, en það þykir nauðsynlegt og sjálfsagt um dýralækna eins og ýmsa aðra embættismenn, svo sem kennara, mannalækna og fleiri embættismenn, sem fá frí eftir vissan árafjölda.
Þá er gert ráð fyrir því, að heimilt verði að setja dýralækni, sem ekki hefur lokið námi, um stundarsakir til þess að gegna héraðsdýralæknisumdæmum, ef skortur er á lærðum læknum.
Þetta eru aðalnýmælin í frv., og eru dýralæknar, sem sérstaklega hafa fjallað um þetta frv., sammála um, að stigið væri stórt framfaraspor með því að lögfesta frv. Það er von mín, að hv. Alþ. fallist á það.
Þetta frv. er að vísu í heimildarformi, þannig að það verður ekki framkvæmt, nema til þess fáist nokkurt fé, en það á ekki að verða svo kostnaðarsamt að framkvæma flest atriði frv., að það ætti að þurfa að dragast kostnaðarins vegna. Það er vegna þess, að dýralæknar eru tiltölulega fáir, þeim fjölgar hægt, og kostnaðurinn verður þess vegna takmarkaður af lögfestingu þessa frv.
Ég vil, herra forseti, leggja til, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.