06.11.1969
Efri deild: 11. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (722)
57. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1970, sem lagt hefur verið fyrir Alþ., er fjárveiting til Fiskveiðasjóðs Íslands á árinu 1970 færð niður. Er frv. þetta lagt fram í samræmi við þá stefnu, sem í fjárlagafrv. hefur verið tekin í þessu efni.
Svo sem Alþ. er kunnugt, var beint framlag úr ríkissjóði til Fiskveiðasjóðs fellt niður á árinu 1968. Enn fremur var felld niður fjárveiting til Fiskveiðasjóðs í fjárlögum ársins 1968. Frv. um breyt. á l. sjóðsins fyrri ákvörðun til staðfestingar var lagt fyrir síðasta Alþ., en náði ekki fram að ganga á því þingi. Frv. er því lagt fram nú að nýju. Í því er einnig gert ráð fyrir, að framlag ríkissjóðs falli niður árið 1970, svo sem áður sagði. Gengisbreytingin í nóvember s.l. veldur verulegri hækkun á útflutningsgjaldi, sem er mikilvægur tekjustofn sjóðsins. Miðað við útflutningsspá Efnahagsstofnunarinnar fyrir árið 1969, munu tekjur Fiskveiðasjóðs af útflutningsgjaldinu einu aukast um 16.5 millj. kr. á því ári frá því, sem ella hefði orðið. Af þessum sökum og vegna annarra ráðstafana, sem gerðar hafa verið til að skapa sjávarútveginum traustari afkomugrundvöll, hefur verið talið rétt að fella niður fjárveitingu úr ríkissjóði til Fiskveiðasjóðs Íslands.
Á næsta ári verður greiðslubyrði Fiskveiðasjóðs mikil vegna greiðslu erlendra lána til skipasmíða undanfarinna ára og vegna fyrirhugaðra lánveitinga til smíða innanlands. Fiskveiðasjóði verður að afla fjármagns eftir öðrum leiðum til þess að geta staðið við eðlilegar skuldbindingar á árinu 1970. Enn fremur er til athugunar, á hvern hátt Fiskveiðasjóði verður framvegis séð fyrir því fjármagni til þess að mæta þeim auknu kröfum um lánveitingar til sjávarútvegsins, sem fyrirsjáanlegar eru á næsta ári. Ráðstöfun þessi er því gerð í trausti þess, að Fiskveiðasjóður muni að öllu leyti geta staðið við fjárhagsskuldbindingar sínar í framtíðinni þrátt fyrir niðurfellingu ríkissjóðsframlagsins.
Herra forseti. Ég tel ekki þörf á því að fara um þetta frv. fleiri orðum, en legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.