06.11.1969
Efri deild: 11. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (723)

57. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég tel, að með frv. þessu sé stefnt í alveg öfuga átt. Fiskveiðasjóður er fjárvana, eins og hæstv. sjútvmrh. reyndar viðurkenndi í framsöguræðu sinni hér áðan. Hann má því einskis í missa af þeim tekjum, sem hann hefur áður haft, heldur þarf þvert á móti að vinna að því að efla hann mjög verulega á næstunni frá því, sem nú er.

Fiskveiðasjóður á að baki langa og merkilega sögu. Hann er, ef ég man rétt, stofnaður árið 1905 og er elzta lánastofnun fyrir sjávarútveginn. Hann var stofnaður á þann hátt, að ríkissjóður lagði honum til stofnfjárframlag jafnframt því, sem l. gerðu þá ráð fyrir því, að árlegt framlag yrði greitt til Fiskveiðasjóðs úr ríkissjóði. Þær fjárhæðir, sem þá voru til nefndar, mundu sjálfsagt hljóma hlægilega í eyrum okkar hér nú, þar sem stofnfjárframlagið var 100 þús., en hið árlega framlag var ákveðið 6 þús. kr. En ég býst við því, að ef það væri borið saman við fjárlög, eins og þau voru á þeim tíma, kæmi það fram, að hér var ekki um óverulegar upphæðir að tefla að þeirrar tíðar hætti.

Fiskveiðasjóður hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki og hefur gert mjög mikið gagn í okkar atvinnuvegi. Um það verða naumast skiptar skoðanir. Það má segja, að verksvið hans hafi verið fært út að ýmsu leyti, og á því hefur verið full þörf. Þess vegna hefur fjárþörf sjóðsins farið vaxandi.

Nýlega hefur Fiskveiðasjóður stigið stórt skref í rétta átt að mínum dómi. Þar á ég við þá ákvörðun stjórnar Fiskveiðasjóðs að lána til skipasmíðastöðvanna til skipabygginga, þó að samningur hafi ekki þá verið gerður um sölu skipanna. Ég er ekki í vafa um það, að þessi ákvörðun á eftir að verða mikilvæg og til mikils gagns fyrir skipasmíðarnar í landinu. En mér finnst það vægast sagt dálítið köld kveðja af ríkisvaldsins hálfu í garð sjóðsins, rétt eftir að slík ákvörðun hefur verið tekin, að fella niður ríkissjóðsframlagið.

Ég veit ekki, hversu lengi þetta ríkissjóðsframlag eða sú upphæð, sem Fiskveiðasjóður hefur fengið á undangengnum árum, hefur staðið. En hins vegar hygg ég, að það hafi verið lengst af svo í sögu sjóðsins, að það hafi verið um að tefla fjárframlög úr ríkissjóði. Það var að vísu fellt niður með l. frá 1968 í eitt ár. Gert var ráð fyrir því í fyrra að fella það niður um eitt ár.

Ég skal ekki neita því, að það geti verið fyrir hendi aðstæður, sem geti réttlætt slíkt, að því sé frestað og fellt niður gjald um eins árs skeið. En mér sýnist, að með þessu frv., þó að það sé nú þetta form enn þá á því, að það sé þarna talað um tvö ár, 1969, sem að vísu er nú senn liðið, og 1970, sé verið að marka þarna stefnu gagnvart Fiskveiðasjóði, þá stefnu að fella niður framlag ríkissjóðs til hans. Það marka ég m.a. af því, sem segir í grg., og mér finnst hún bera þess vottinn, að menn hugsa þar til þess, að þetta verði fellt niður til frambúðar. Það held ég, að sé skökk stefna.

Ég held einmitt, að það þurfi að efla Fiskveiðasjóðinn alveg sérstaklega, og það er m.a. af því, að ég álít, að hans bíði ný og aðkallandi verkefni, sem hann verður sennilega að sinna á næstunni. Þar á ég við, að um það er mikið talað og ekki að ástæðulausu, að eitt brýnasta verkefnið í okkar atvinnumálum sé að bæta hráefnismeðferðina og ekki sízt á fiskiafurðunum og gera þær verðmætari með þeim hætti. Þá meðferð má sjálfsagt bæta bæði á sjó og landi.

Það liggur ljóst fyrir, að ég ætla samkv. tilraunum, sem þegar hafa verið gerðar, að hægt er til mikilla muna að bæta meðferð á fiski um borð í skipunum, ef í skipunum er sá búnaður, sem til þess þarf. Það er hins vegar vitað mál, að til þess að setja þvílíkan búnað í skipin þarf talsvert mikið fé og svo mikið, að það virðist eiginlega vera um megn útgerðinni, eins og sakir standa. Þó er alveg víst, að þarna eru í húfi verulegir fjármunir. Ég hygg þess vegna, að breytingu í þessa átt verði ekki við komið, nema útgerðarmenn fái einhvers staðar fyrirgreiðslu, og auðvitað má hugsa sér, að sú fyrirgreiðsla geti verið með ýmsum hætti og komi úr ýmsum áttum.

En ég hygg, að það fari ekki hjá því, að augu margra staðnæmist í því sambandi við Fiskveiðasjóð. Þess vegna er það spá mín, að Fiskveiðasjóður verði á næstunni að sinna fleiri og meiri verkefnum en hann gerir nú, og þess vegna álít ég, að það verði að gera ráð fyrir því, að hann þurfi á fjármagni að halda í æ ríkara mæli. Þess vegna álít ég ekki rétt að fara inn á þá braut, sem hér er gert, að fella niður þetta framlag ríkisins. Í þessu frv. eru að vísu aðeins tekin til tvö ár, en ég óttast, að það verði fordæmi, ef þetta verður samþykkt, og stefnt verði í þá átt.

Auðvitað verður einhvern veginn að sjá ríkissjóði farborða, og um það er ekki deilt. En þá er það sígilda matsatriði að gera það upp við sig, hvað á að fara út, hvað á að vera þar áfram. Ég fellst á það, að tekjuöflunarmöguleikar ríkissjóðs fram yfir það, sem nú er, séu takmarkaðir, en ég held, að með þessum hætti sé ráðizt á garðinn, þar sem sízt skyldi. Ég held, að það, sem á ríður í okkar þjóðfélagi nú, sé að styrkja undirstöðurnar og viðurkenna þá staðreynd, að allt veltur á, að undirstöðurnar séu sterkar. Yfirbyggingin er sennilega orðin fullmikil hjá okkur, og ég álít, að það beri frekar og verði frekar að taka til við þá hliðina en undirstöðuna. Ef undirstöðurnar eru í lagi, þá er hægara að byggja yfirbygginguna þar á.

Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, herra forseti, við þessa 1. umr. málsins, en að öðru leyti fer það nú að vísu til n. sem ég á sæti í, og þá gefst kostur á að kanna það nánar og þá afstöðu þeirra stétta og þeirrar stofnunar, sem hér er um að tefla. En ég vil aðeins undirstrika það, að það kemur bæði fram í grg. og var tekið fram af hæstv. sjútvmrh., að það yrði að sjá Fiskveiðasjóði fyrir fé.

Við vitum nú, hvaða leiðir hafa verið farnar í því efni, sennilega því miður, af því að ekki hefur verið annars kostur, sem sé í æ ríkari mæli að hverfa að því ráði að taka erlend lán. Það hafa nú margir fengið nokkuð sára reynslu af því, hvað það gildir að byggja of mikið á slíkri fjáröflun. Og í þessu frv. eða grg. þess er nú ekki reyndar nein grein gerð fyrir því, hvernig á að afla þessa fjár. En ég tel það sem sagt meginatriði, að það megi alls ekki þrengja kost Fiskveiðasjóðs, heldur verði að stefna að því að efla hann á allan hátt. Það er í samræmi við þá stefnu, sem kemur fram í frv., sem við höfum flutt og munum flytja hér, framsóknarmenn, að við gerum ráð fyrir því einmitt, að Fiskveiðasjóður verði að eiga hlut í því að leysa þessi mál.