06.11.1969
Efri deild: 11. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
57. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Mér þykir rétt að segja nokkur orð um þetta frv., því að enda þótt svo vilji til, að starfsbróðir minn, hæstv. sjútvmrh., hafi hér lagt þetta frv. fram og talað fyrir því, þá sé ég enga ástæðu til annars en láta það koma fram, að það er fyrst og fremst ég, sem ber ábyrgð á því að gera till. um að fella niður tillagið til Fiskveiðasjóðs í sambandi við afgreiðslu fjárl., og því ekki óeðlilegt, að ég taki á mig þá sök, ef um einhverja sök er að ræða.
Hv. 1. þm. Norðurl. v. taldi, að það væri ófært að fella þetta framlag niður. Hins vegar tók hann það fram, sem er að sjálfsögðu kjarni málsins, að það gæti verið erfiðleikum bundið að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög. Ég hygg, að við séum ekki á öndverðum meiði um það, að þeirri stefnu verði að framfylgja, og það er nákvæmlega þess vegna, sem þetta framlag er fellt niður nú og hefur verið fellt niður undanfarin tvö ár.
Vegna þrenginganna, sem verið hafa, og erfiðleika á því að ná saman endum um afkomu ríkissjóðs án þess að leggja út í nýjar skattahækkanir, hefur verið talið óumflýjanlegt að leita allra úrræða, meðan svo væri ástatt, til að jafna metin án þess að þurfa að grípa til stórfelldrar nýrrar skattálagningar. Þó hefur í raun og veru ekki verið hægt að jafna þessi met og ríkisstj. fengið ákúrur fyrir það frá hv. stjórnarandstæðingum, að ríkissjóður væri rekinn með halla, en ekki mundi það auðvelda að leysa þann vanda, ef ekki mætti gera þær ráðstafanir, sem þó er lagt til að gera, m.a. með þessu frv.
Það fer auðvitað ekki á milli mála, að Fiskveiðasjóður Íslands er ein mikilvægasta lánastofnun í landinu, sem verður að geta rækt sitt hlutverk. En hitt er annað mál, að það er heldur engum efa bundið, að afkoma þeirrar stofnunar er slík og starfsaðstaða, að það er hægt að leysa fjárþörf hennar með lántökum, sem ekki er hægt í sambandi við meginhlutann af útgjaldaliðum ríkissjóðs. Þetta er sterk stofnun, sem betur fer, og getur verið þess umkomin að taka lán, ef hægt er að afla þeirra, ekki sízt vegna þess, að lánveitingar hennar eru til útflutningsframleiðslunnar. Auðvitað verður jafnan að reyna að búa þannig að henni, að hún geti starfað með eðlilegum hætti.
Það hefur ekki haft nein áhrif á útlánareglur Fiskveiðasjóðs, hvort fjár hafi verið aflað til hans með lánum eða ekki, þannig að það kemur á engan hátt niður á sjávarútveginum sem slíkum, þ.e.a.s. þeim, sem þurfa á lánum að halda úr Fiskveiðasjóði til fiskiskipabygginga eða fiskvinnslustöðva, að svo miklu leyti sem ástæða þykir til að veita slík lán. Það verður auðvitað metið hverju sinni. Og ég legg á það ríka áherzlu, að það er ekki ætlunin með þessu frv., að það leiði til neinnar takmörkunar á útlánum Fiskveiðasjóðs umfram þær takmarkanir, sem hefðu verið settar, hvort heldur þetta framlag hefði verið í fjárl. eða ekki. Þetta er vitanlega kjarni málsins, eins og sakir standa.
Ástæðan til þess, að þetta frv. er framlengt í eitt og eitt ár, er eingöngu sú, að ég álít það ekki sjálfsagt mál, að ríkissjóður leggi ekki eitthvert framlag til Fiskveiðasjóðs, en það verði að meta eftir því, sem hagur ríkissjóðs batnar, hvort auðið er að gera það og þá að hvaða marki það skuli gert. Einmitt þess vegna eru tímamörkin sett varðandi niðurfellingu framlagsins. En ég hygg, að við getum orðið sammála um það hér í þessari hv. d., að fjárhagur ríkissjóðs hefur að sjálfsögðu ekki batnað svo frá árinu 1968, þegar þetta framlag var fyrst fellt niður, að möguleiki sé til að endurskoða þessa afstöðu nú. Þetta eru rökin fyrir því, að enn þá er farið fram á það við hið háa Alþ., að þetta framlag verði niður fellt jafnhliða því sem ríkisstj. mun gera ráðstafanir til þess að afla Fiskveiðasjóði með öðrum hætti viðunandi starfsfjár.
Ég vil vekja athygli á því, að það eru aðeins örfá ár síðan nokkurt framlag, sem hægt er að nefna því nafni, var veitt úr ríkissjóði til Fiskveiðasjóðs. Það var fyrst árið 1964. Fram að þeim tíma hafði árlegt framlag til Fiskveiðasjóðs numið 2 millj. kr., sem að sjálfsögðu hafði ekki nokkur áhrif á afkomu sjóðsins til eða frá. Ástæðan til þess, að framlagið var aukið 1964, var í sambandi við aðstoð við sjávarútveginn á þann veg, að það var létt af sjávarútveginum að hluta til útflutningsgjaldi og raunverulega veittur ríkissjóðsstyrkur í þessu formi til sjávarútvegsins með því að taka upp þetta framlag til Fiskveiðasjóðs í staðinn fyrir útflutningsgjaldið, þannig að þetta aukna framlag er til komið með mjög sérstökum hætti. Raunar má þess vegna segja, að rökin fyrir því séu alls ekki þau sömu í dag eins og voru þá, vegna þess að síðar hefur hagur útvegsins verið réttur með öðrum aðgerðum.
Þetta tel ég nauðsynlegt, að menn hafi í huga. En kjarni málsins er sem sagt sá, að þess er ekki annars kostur nú en að gera þessa ráðstöfun, þó að það hefði vitanlega verið mjög æskilegt, og um það er ég sammála hv. 1. þm. Norðurl. v., að jafnvel hefði verið hægt að auka framlög ríkissjóðs til Fiskveiðasjóðs eins og til annarra sjóða ýmissa. En annars er ekki kostur, eins og hag ríkissjóðs er nú háttað, ef við ætlum að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög, en gera þessa ráðstöfun.
Við getum talað um það óljósum orðum, að yfirbyggingin í þjóðfélaginu sé orðin of mikil. En það hefur ekki enn þá fundizt úrræði til þess, að hægt væri að skera þá yfirbyggingu svo niður þrátt fyrir rækilegar athuganir, sem fulltrúar allra flokka hafa tekið þátt í, að þar sé hægt að benda á úrræði, sem geta komið í staðinn fyrir þann sparnaðarlið, sem hér er um að ræða.
Þetta er kjarni málsins, og vildi ég gjarnan, að það kæmi hér skýrt fram, einmitt þetta atriði, að Fiskveiðasjóði verði séð fyrir fjármagni. Það er engu slegið föstu um það, að í framtíðinni verði ekki, þegar fjárhagur ríkissjóðs batnar, beint framlag til Fiskveiðasjóðs. Það er engu slegið föstu um það, þó að þessi till. sé nú enn gerð, miðað við árið 1970, einnig vegna þess, að það er síður en svo, að afkoma ríkissjóðs hafi batnað.