24.04.1970
Neðri deild: 81. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (743)

57. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil þakka forsrh. fyrir svör hans. Þau voru raunar á þá leið, sem ég bjóst við, að hann virðist vera í nokkrum vafa í þessu máli, en bendir á, að Alþ. gæti haft önnur úrræði til þess að svipta Fiskveiðasjóð þessu framlagi fyrir árið 1969. Það er vitaskuld alveg rétt. Það er hægt að gera það einhvern tíma síðar, ef Alþ. er þá þess sinnis að gera það. En hins vegar er það að sjálfsögðu töluvert annað, að Fiskveiðasjóður fái þetta framlag greitt á árinu 1969, jafnvel þó að upphæðin verði dregin frá seinna, sem mundi þá vera undir því Alþ. komið, sem þá situr.

Út af því, sem hæstv. forsrh. sagði um stöðu Fiskveiðasjóðs, að hann væri ríkisstofnun og að taka mætti úr einum vasanum og láta í hinn, þá er það að vísu rétt, að Fiskveiðasjóður er að því leyti ríkisstofnun, að hann er stofnaður með lögum. En stjórn hans er skipuð skv. sérstökum lögum, þannig að hann er engan veginn hluti af ríkissjóði. Enda er það líka svo, að starfsfjár Fiskveiðasjóðs er að mjög verulegu leyti aflað á annan hátt en ríkissjóður aflar sinna tekna, þ.e.a.s. með útflutningsgjaldi á sjávarafurðir, sem fluttar eru út úr landinu og eru eign þeirra aðila, sem að sjávarútvegi og sjávarvöruiðnaði standa.