20.04.1970
Neðri deild: 78. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Svo sem hv. þdm. er öllum kunnugt frá fyrri árum, þá hefur sá háttur verið á hafður varðandi meðferð framkvæmdaáætlunar hér á Alþ., að málinu hefur verið skipt þannig, að fjmrh. hefur árlega flutt yfirlitsskýrslu um framkvæmdaáætlunina í víðari skilningi þess orðs, þ.e.a.s. gefið yfirlit yfir framkvæmdir almennt í landinu, fyrst og fremst opinberar framkvæmdir, en einnig framkvæmdir sveitarfélaga eigi síður en ríkis. Auk þess hefur í þeirri skýrslu verið gefið yfirlit yfir liðið ár og jafnframt gerð nokkur grein fyrir því, hvernig almennt væri ástatt um fjárfestingar- og framkvæmdamál í landinu í heild. Þetta hefur verið ítarleg skýrsla, sem þar til á s.l. þingi var flutt munnlega. Þá höfðu komið fram óskir um, að skýrslan yrði flutt þinginu skriflega, og það þá gert, án þess að hún væri sérstaklega lesin upp á þingfundi, og var henni útbýtt í Sþ. Hins vegar voru uppi nokkrar gagnrýnisraddir, bæði á s.l. þingi og raunar áður, að það væri ekki gott að slíta þetta úr tengslum hvort við annað. Og það kom stundum fyrir, að vinnubrögð voru með þeim hætti, að það hafði ekki unnizt tími til að ganga endanlega frá skýrslugerð þessari, áður en óumflýjanlegt var að leggja fyrir Alþ. frv. um lántöku vegna framkvæmdaáætlunarinnar.

Þannig varð þetta á síðasta þingi, að skýrslan sjálf var ekki tilbúin, fyrr en stuttu áður en þingslit urðu, og hafði þá verið afgr. frv. um lántökurnar. Ég skal fúslega fallast á, að sú tilhögun var ekki æskileg og heppileg, því að eðlilegt var, að hv. þm. hefðu skýrsluna í höndum, þegar afstaða væri tekin til frv. um lántökur vegna framkvæmdaáætlunar ríkissjóðs. En því varð ekki við komið, vegna þess að ekki hafði tekizt að afla allra þeirra upplýsinga, sem þurfti að afla, frá einstökum aðilum, sjóðum og fyrirtækjum um fyrirhugaðar framkvæmdir þeirra, þegar óumflýjanlegt reyndist að fá lagaheimildirnar hér á þingi vegna lántöku til áætlunarinnar.

Nú hefur sá háttur verið á hafður í þetta sinn, sem ég vona, að hv. þm. falli betur, að engin sérstök skýrsla hefur verið flutt í Sþ., en hins vegar var útbýtt hér á Alþ. umræddri skýrslu með sams konar efni og verið hefur í skýrstu þessari undanfarin ár, samtímis því sem frv. um lántöku vegna áætlunarinnar var tekið til umr. í hv. Ed. Það hefur því gefizt svigrúm til þess að athuga skýrsluna sjálfa og hafa hana til hliðsjónar, þegar hv. Ed. hafði málið til meðferðar í n. þar, og þá ekki síður að sjálfsögðu hefur gefizt tóm til þess fyrir þm. hér í hv. Nd. að kynna sér þessa skýrslu.

Ég sé enga ástæðu til þess sérstaklega að vera að rekja efni yfirlitsskýrslunnar um framkvæmdaáætlunina. Hún liggur hér fyrir með tilheyrandi fylgiskjölum. Ég vil aðeins víkja að því og benda á, að í 6. töflu með framkvæmdaáætlunarskýrslunni er að finna sundurliðun eða heildaryfirlit yfir það, hvernig fjáröflun vegna framkvæmdaáætlunarinnar muni verða á þessu ári. Gert er ráð fyrir því, að útgjöld vegna framkvæmdaáætlunarinnar muni nema um 810 millj. kr., og er þá bæði átt við þann hluta áætlunarinnar, sem er í þrengri merkingu framkvæmdaáætlun ríkissjóðs, og að hinu leyti fjáröflun á vegum Framkvæmdasjóðs til hinna ýmsu fjárfestingarlánasjóða, en eins og hv. þdm. er kunnugt, er það hlutverk Framkvæmdasjóðs að sjá fyrir fjárþörf þessara sjóða.

Áður en ég vík að frv. sjálfu, vil ég aðeins minnast á það varðandi sjóðina, að þar eru sérstök vandamál, sem ekki er gerð grein fyrir í þessari fjáröflun, sem hér er gerð till. um, hvernig leysa skuli. Er þar fyrst og fremst um að ræða Fiskveiðasjóð, sem þarf á að halda miklu hærri fjárhæðum nú en undanfarin ár vegna stóraukinna skipasmíða innanlands. Er gert ráð fyrir því, að þar skorti fjármagn, sem nemi um 180 millj. kr. umfram það, sem ráðgert er að veita Fiskveiðasjóði samkvæmt fjáröflunaráætluninni, eins og hún liggur hér fyrir. Það hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til þess að afla þessa fjár, og tel ég, að góðar horfur séu á, að það leysist allt með viðunandi hætti.

Þá er enn fremur annað vandamál, sem ekki er heldur gert ráð fyrir að leysa endanlega í þessu yfirliti, sem ég vitnaði til, en það er fjáröflun vegna Vegasjóðs í sambandi við hraðbrautaframkvæmdir á þessu ári, sem eru fyrirhugaðar allverulegar, og hefur um það verið gerð sérstök áætlun. En hins vegar hefur verið tekið inn í frv., svo sem það nú liggur fyrir, heimild fyrir ríkisstj. að taka allt að 500 millj. kr. lán til hraðbrautaframkvæmda. Þar er í rauninni ekki um nýja heimild að ræða, vegna þess að í vegáætlun er að finna heimild, sem nemur hærri fjárhæðum en þetta, en ég vil taka það fram, að hér er um að ræða hluta þeirrar heimildar, sem er í vegáætlun, en ekki viðbótarfjáröflun. Það þykir nauðsynlegt vegna fyrirhugaðrar lántöku í Alþjóðabankanum til hraðbrautaframkvæmda að hafa sérstaka heimild í því formi, sem nú er gert ráð fyrir að afla í frv. um lán vegna framkvæmdaáætlunarinnar. Auk þess er þar gert ráð fyrir, að það þurfi að afla nokkurs viðbótarfjár vegna hraðbrautagerða eða nokkuð á annað hundrað millj. kr. auk alþjóðabankalánsins.

Húsnæðismálin eru svo sérstakt atriði, sem ég sé ekki ástæðu til að fara út í hér, vegna þess að um það vandamál er fjallað í sérstöku frv., sem liggur hér fyrir hinu háa Alþingi.

Ég skal þá aðeins víkja nokkrum orðum að frv. um lán vegna framkvæmdaáætlunar, en þar er fyrst og fremst um að ræða lántökuheimildir fyrir ríkisstj. til þess að afla nauðsynlegs fjár vegna framkvæmda, sem beinlínis eru á vegum ríkisins. Þar er gert ráð fyrir því, að fjár verði aflað með sama hætti og undanfarin ár, annars vegar með útgáfu á spariskírteinum, í svipuðu formi og verið hefur síðustu árin, og hins vegar með töku svokallaðs PL-480 láns eða vörukaupaláns í Bandaríkjunum. Gert er ráð fyrir því, að sú lántaka verði nokkuð lægri eða það nýtist ven en undanfarin ár eða um það bil 100 millj. kr. lægri en í fjáröflunaráætlun s.l. árs, en hins vegar er gert ráð fyrir því, að lántaka í spariskírteinaformi verði mun hærri, þ.e.a.s. spariskírteini verði sama upphæð og var á s.l. ári, en tvöfaldist sú upphæð, sem gert er ráð fyrir að fá með endursölu á spariskírteinum í stað þeirra, sem þarf að innleysa.

Þrátt fyrir þessa tekjuöflun, sem er í heild um 70 millj. kr. hærri en var á árinu 1969, standa samt út af áætluninni rúmar 60 millj. kr. Það voru 25 millj. kr. á s.l. ári. Gert er ráð fyrir því, að sumar af þeim fjárveitingum, sem áætlaðar eru í framkvæmdaáætluninni, muni ekki koma til greiðslu á þessu ári, m.a. sérstök fjárveiting vegna bygginga á vegum Háskóla Íslands, sem ekki er talið, að muni vera þörf á á þessu ári, þannig að það megi færast til næsta árs að afla þess fjár. En hins vegar er nauðsynlegt að marka nú þegar stefnu, sem fylgt skuli í sambandi við fjármögnun í framkvæmdir á vegum Háskólans, sem hljóta að verða mjög miklar á þessum áratug. Það eru líka horfur á, að ýmsar aðrar fjárveitingar frestist eitthvað, en ef það verður ekki, þá yrði að taka bráðabirgðalán til að jafna þessi met. Þetta leiðir af sér, að ekki er um að ræða neinn möguleika til þess að bæta við öðrum framkvæmdum en hér er lagt til. Það yrði þá að gerast með þeim hætti að fella niður einhverja útgjaldaliði, ef þm. sýndist, að æskilegra væri að taka lán til einhverra annarra framkvæmda en hér er ráðgert.

Þær framkvæmdir, sem ætlunin er að verja umræddu lánsfé til, eru nákvæmlega tilgreindar í 7. gr. frv., og sé ég ekki ástæðu til að rekja þær í einstökum atriðum, vegna þess að í grg. frv. er einnig að finna mjög rækilega skilgreiningu á því, í hverju þessar framkvæmdir eru fólgnar. Auk þessara framkvæmda er rétt að geta þess, að lagt er til að breyta heimild til lántöku vegna Áburðarverksmiðju ríkisins, sérstaklega vegna stækkunar verksmiðjunnar.

Í síðasta lagi er lagt til að heimila að endurlána Framkvæmdasjóði af PL-480 lánsfé, allt að 32 millj. kr., til kornhlöðubyggingar í Rvík. Ástæðan til þess, að þessi lánveiting er veitt með þessum hætti, er sú, að þrír stærstu innflytjendur á þessu sviði, SÍS, Fóðurblandan hf. og Mjólkurfélag R-víkur, hafa komið sér saman um að byggja kornhlöðu, sem þeir telja að muni verða til mikilla hagsbóta og til þess að hægt sé að selja þessa vöru með lægra verði en verið hefur hér og jafnframt að hagnýta betur en tekizt hefur til þessa þau boð um kornvörukaup í Bandaríkjunum, sem gera mögulegt að nota PL-480 lánið. Þetta er hin sérstaka ástæða til þess, að lagt er til að heimila lánveitingu til Framkvæmdasjóðs vegna þessa sérstaka fyrirtækis, að með þessum hætti er fenginn möguleiki til þess að hagnýta á næstu árum betur það lánsfé, sem hér er um að ræða, og mundi það því auðvelda fjáröflun til annarra mikilvægra framkvæmda á næstu árum, vegna þess að aðilarnir að umræddri kornhlöðu hafa skuldbundið sig til þess næstu árin að kaupa korn frá Bandaríkjunum, þannig að hægt væri að hagnýta, eins og ég sagði, þennan möguleika til lána, ef hann á annað borð gefst á næstu árum með svipuðum hætti og verið hefur. Þetta eru hin sérstöku rök fyrir því, að þótt hefur rétt að líta á þessa umsókn með þessum sérstaka hætti.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að vera að þreyta menn á lengra máli. Ég vonast til þess, að í þessum gögnum, sem ég hef vitnað til, sé að finna allar þær upplýsingar, sem hv. þm. þurfa á að halda til þess að átta sig á, hvað felst í hinum einstöku atriðum frv. Málið hefur þegar verið svo lengi til meðferðar hér í þinginu, frá því að því var útbýtt í Ed., að ég vonast til, að auðið verði fyrir hv. n. í þessari d. að taka mjög skjótt afstöðu til málsins, en ég leyfi mér að leggja til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.