25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (776)

196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970

Frsm. meiri hl. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. þetta um heimild til ríkisstj. til að taka lán vegna framkvæmdaáætlunar fyrir árið 1970, eins og hv. Ed. gekk frá því, en þar tók frv. nokkrum breytingum. Meiri hl. n. hefur skilað áliti og mælir með samþykkt frv., en meiri hl. skipa auk mín hv. 1. þm. Reykn., hv. 3. þm. Sunnl. og 1. landsk. þm., eða fulltrúar stjórnarflokkanna. Minni hl. hefur ekki skilað áliti, svo ég hafi séð, og í n. kom ekki fram, hvað það var sérstaklega, sem n. greindi á um í afstöðu til frv.

Í samhengi við þetta frv. eða um það leyti, sem það var lagt fyrir í hv. Ed., var útbýtt skýrslu um framkvæmdaáætlun ríkisins fyrir árið 1970. Ég sé ástæðu til að láta hér koma fram þakkir til hæstv. fjmrh. fyrir þessa skýrslu, sem er mjög ítarleg og fróðleg og er mun aðgengilegra fyrir hv. þdm. að fá slíka skýrslu til athugunar og yfirvegunar en að slíkt mál sé allt flutt í ræðuformi.

Ég sé ekki ástæðu til þess með tilliti til þess, að ekki hefur komið fram, hvað það er, sem veldur ágreiningi um þetta frv., að flytja hér um það langa framsöguræðu. Ég vitna til þess, að hæstv. fjmrh. hefur skýrt þetta mál bæði í framsögu og í þeirri skýrslu, sem hér liggur fyrir um framkvæmda- og fjáröflunaráætlun fyrir árið 1970. Þar er auðvitað um marga þætti að ræða, sem ástæða væri til að ræða frekar um, en með tilliti til þess, að ekki er rétt að eyða tíma þingsins, eins og nú er komið, nema sérstakt tilefni gefist til, þá læt ég hér staðar numið. Meiri hluti n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.