25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í B-deild Alþingistíðinda. (777)
196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970
Frsm. minni hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Nál. minni hl. fjhn. er ekki enn þá komið úr prentun og hefur því ekki verið útbýtt. En ég vil leyfa mér að gera hér grein fyrir því og þá á þann hátt að lesa nál.:
„Enn heldur ríkisstj. uppteknum hætti að leggja frv. um lántökuheimildir ríkissjóðs þá fyrst fram, þegar örfáir dagar eru til þingloka og fjölmörg önnur þingmál bíða afgreiðslu.
Lántökuheimildir þessa frv. nema nál. 1000 millj. kr. Eðlilegt væri, að þinginu gæfist kostur á að fjalla ítarlega um ráðstöfun svo mikilla fjármuna, en því er ekki að heilsa. Er ekki ólíklegt, að alþm. vildu t.d. athuga það nánar, hvort tímabært sé að hefjast handa um aukna raforkuöflun utan þess svæðis, sem Búrfellsvirkjun nær til. Og þegar um er að ræða 500 millj. kr. lántöku til lagningar hraðbrauta, kæmu að okkar dómi einnig til álita fleiri meiri háttar verkefni í vegagerð.
Það er eftirtektarvert, að í stað þess að áður voru erlend lán nær einvörðungu tekin til einstakra stórframkvæmda, til þess að efla arðbæran atvinnurekstur eða leysa verkefni, sem ætla mátti að hefðu þjóðhagslega þýðingu, þá er nú í vaxandi mæli notað erlent fjármagn til ýmissa smærri framkvæmda, sem áður þótti sjálfsagt að greiða með fjárveitingu á fjárlögum.
Á undanförnum árum hafa verið sívaxandi brögð að því, að alls konar skuldabréf eru með lögum undanþegin framtalsskyldu. Þetta teljum við óhæfu. Við teljum, að það sé frumskilyrði fyrir eðlilegu skatteftirliti, að eignir séu taldar fram, þó að þær séu undanþegnar skattlagningu, en slíkt getur í vissum tilfellum verið réttlætanlegt, og flytjum við brtt. við 3. gr. frv.
Eins og mál þetta ber að í Alþingi nú — og raunar áður — er útilokað að gera því þau skil, sem margir alþm. hefðu áreiðanlega viljað og vert væri. Við munum ekki flytja brtt. við þau ákvæði frv., sem fjalla um skiptingu lánsfjárins, þó með einni undantekningu, að því er varðar rafvæðingu í sveitum. Í þeim efnum hefur myndazt svo mikið ósamræmi milli byggðarlaga, að við teljum nauðsynlegt að flýta fyrir því, meira en frv. gerir ráð fyrir, að rafvæðingu landsins verði lokið.
Við leggjum til, að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:
1. Við 3. gr. Orðin „framtalsskyldu og“ falli brott.
2. Við 8. gr. Upptalningin, hvernig verja skuli lánsfé, breytist þannig: Í stað „15 millj. kr.“ til rafvæðingar í sveitum komi: 30 millj. kr., og niðurstöðutala breytist samkvæmt því í 371.8 millj. kr.“
Þetta er undirritað á Alþ. 25. apríl 1970, og undir það skrifa Vilhjálmur Hjálmarsson, Lúðvík Jósefsson og Þórarinn Þórarinsson.
Ég skal ekki tefja tíma hv. d. með frekari framsögu, en leyfi mér að afhenda hv. forseta nál. og þar með brtt. okkar, sem óskað er, að hann leiti afbrigða fyrir.