25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í B-deild Alþingistíðinda. (781)

196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970

Frsm. meiri hl. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð varðandi þær brtt., sem minni hl. fjhn. hefur nú flutt hér skriflega. Varðandi þá brtt. við 3. gr. frv. að fella niður undanþágu við framtalsskyldu spariskírteinanna, þá er það augljóst mál, að spariskírteinin mundu naumast seljast nema því aðeins að það sé ekki boðið upp á verri kjör en er í lánastofnunum almennt. Sparifé almennt er ekki framtalsskylt eða skattskylt.

Önnur brtt. frá minni hl. fjhn. er um að hækka lán til rafvæðingar í sveitum um helming, eða úr 15 millj. kr. í 30 millj. Það er auðvitað gott og blessað að fá aukið fjármagn til rafvæðingar í sveitum. En þetta er nú í fyrsta skipti, sem tekið er upp í framkvæmdaáætlun ríkisins fjármagn til þessara hluta. Á þessu ári er áætlað að verja miklu meira fjármagni til rafvæðingar í sveitum en nokkru sinni fyrr. Það er talið af þeim mönnum, sem hafa fjallað um undirbúning þessara framkvæmda, bæði í orkuráði, fagmönnum í Orkustofnuninni og af iðnaðar- og orkumálarn., að það muni vera mjög erfitt að vinna meira en þegar er ráðgert að þessum framkvæmdum á þessu ári. Ég skal nú ekki segja um það með fullri vissu, en ég tel, að það sé vel, ef það verður allt framkvæmt, sem þegar er áætlað að vinna. Það liggur einnig fyrir, að á þessu ári og hinu næsta er áætlað að ljúka rafvæðingu allra þeirra býla, þar sem meðatvegalengd á milli bæja er einn og hálfur km eða minna. Hvað tekur við í rafvæðingunni þar á eftir, hefur enn ekki verið ákveðið, en því hefur þó verið lýst yfir hér á hv. Alþ. af einum hæstv. ráðh., að ekki sé hægt að líta á það sem neitt stórvirki að ráðast í þann hluta, sem þá er eftir af rafvæðingu landsins, það er t.d. kaflann frá 1.5 til 2 km á milli býla, og er þess að vænta, að að því verði stefnt í næsta áfanga. Þegar eru komin inn í framkvæmdaáætlun þessa árs nokkur býli, þar sem vegalengd er 1.5–2 km milli bæja með sérstökum kjörum, sem heimaaðilar hafa orðið að bjóða fram. Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, með tilliti til þess, sem ég hef hér þegar sagt, að mæla með því, að þessi brtt. hv. minni hl. n. verði samþ.

Um það, sem hv. frsm. minni hl. gat um og raunar einnig síðasti hv. ræðumaður, þá breyt., sem gerð var á frv. í hv. Ed., að inn í frv. var tekin ný gr., þar sem heimilað var að taka lán allt að 500 millj. kr. til framkvæmda við hraðbrautir, þá er þess að geta, að hér er ekki að neinu leyti farið fram úr þeim heimildum, sem eru í vegáætlun, en nauðsynlegt mun hafa þótt að fella slíka heimild einnig inn í lög um þá heimild, sem hér er um að ræða fyrir ríkisstj. um lántökur.

Hv. síðasti ræðumaður, hv. 3. þm. Norðurl. v., taldi, að hér væri um margt farið rangt að. Það mætti kalla, að það nálgaðist hreina vitleysu að taka lán til framkvæmda, enda sumt af því, sem hér væri ráðgert að framkvæma, eiginlega hrein vitleysa. Nefndi hann í því tilfelli t.d. ýmsar rannsóknir í sambandi við orkuöflun og veitti þar að sínu leyti nokkur svör við ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e. Ég sé nú ekki ástæðu til þess að gera aths. við ræðu þessa hv. þm., en þó get ég ekki stillt mig um að láta það í ljós, að ég tel, að það væri lítið komið áleiðis með framkvæmdir í okkar landi, ef ekki væri til stórhugur og framsýni til þess að taka lán, þegar hagkvæm kjör bjóðast til þess að koma verkum áfram. Það er einmitt það, sem stefnt er að með samþykkt þessa frv. og með þeirri framkvæmdaáætlun, sem hér liggur fyrir.