25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í B-deild Alþingistíðinda. (789)

196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð, og er þá rétt að byrja á því, sem hv. síðasti ræðumaður lauk máli sínu á, að það væri ósköp meinlaust að bera fram nýja till. um fjáröflun, af því að því væri lýst yfir í grg. með frv., að ríkisstj. mundi beita sér fyrir viðbótarfjáröflun, ef nauðsynlegt reyndist. Það merkir auðvitað ekki það, að það séu engar hömlur á því, hvað hægt sé að afla mikils fjár í því sambandi. Og ég tók það fram í framsöguræðu minni fyrir þessu frv., að það væri gert ráð fyrir því, að allstórar fjárhæðir mundu ekki þurfa að koma til greiðslu á þessu ári, m.a. 30 millj. vegna bygginga Háskólans og jafnvel aðrar fjárveitingar, sem líklegt er, að þurfi ekki að leggja út fyrr en á næsta ári. Miðað við frv., eins og það er, er hér ekki um hættulegar umframfjárhæðir að ræða. En ef menn meina eitthvað með því að leggja 15 millj. til viðbótar í rafvæðinguna, þá hlýtur það að vera með það í huga, að nota það á þessu ári, og því óumflýjanlegt að afla þess viðbótarfjár, sem getur nú reynzt örðugt.

Varðandi raforkumálin annars ætla ég ekki að taka þátt í löngum umræðum um þau. Er nánast dálítið broslegt að vera að karpa um það, af hverju sé ekki unnið meira en ætlunin er að vinna. Það má auðvitað alltaf segja svona um allar till., sem fram koma. Þetta er í fyrsta skipti, sem lögð er fram till. um að taka lán til rafvæðingar í sveitum. Það veldur því, að það er hægt að vinna fyrir, eins og áður hefur verið sagt og reyndar allir hv. þm. viðurkennt, miklum mun hærri fjárhæð en nokkru sinni hefur verið gert á einu ári og enda þótt miðað sé við minni krónur, er það miklu meira en sem því svarar, og náttúrlega má alltaf spyrja svona: „Af hverju takið þið ekki meira lán, og af hverju vinnið þið ekki enn þá meira?“ Þetta finnst mér nánast vera nokkuð óskemmtileg vinnubrögð, því að svona er hægt að taka á öllum málum. En ég skal ekki fara nánar út í þá sálma. Það hefur komið fram hér, af hverju við ráðum ekki fleiri sérfræðinga til þess að ljúka þessu, hvernig standi á þessum tæknilegu vandkvæðum, sem ég gat um. Ég vil aðeins taka fram, að það, sem ég á við í þessu, er, að það tekur langan tíma að tryggja það efni, sem þarf til veitulagnanna. Og þar sem þetta lægi þá ekki fyrir, ef þetta ætti að gerast, fyrr en nú við afgreiðslu þessa máls, skulum við segja, sem kynni þó enn að dragast, ef þar að auki þarf að gera ráðstafanir til að afla fjárins, þá er vitanlega ekki hægt að hefjast handa um pöntun á nauðsynlegu efni í þessu skyni, og rafmagnsveiturnar hafa ekki gert neinar ráðstafanir í þá átt.

Hitt er annað mál, að þær 15 millj., sem hafa verið teknar inn í frv., hefur rafmagnsveitunum verið heimilað fyrir alllöngu að gera ráðstafanir til að afla nauðsynlegs efnis til þess að geta unnið fyrir. Þetta er meginástæðan til þess, sem ég átti við, að tæknilegir erfiðleikar yllu því, að það væri ekki hægt að ljúka þessu á þessu ári. Auk þess er það einnig víst, enda er það svo á hverju ári og ekki sízt þegar um svo miklar framkvæmdir er að ræða sem nú, að það mun ekki takast að ljúka á þessu ári algjörlega þeim veitulögnum, sem ákveðnar eru innan ramma þeirrar framkvæmdaáætlunar, sem gerð hefur verið. Þetta hefur jafnan færzt nokkuð á milli ára og ekki sízt þegar svo mikið er fyrirhugað að vinna. Ég held sannast sagna, að það sé ástæðulaust fyrir okkur, þegar við skoðum þetta í alvöru, að vera að karpa um þetta atriði, þegar það liggur fyrir, að það verður samfellt haldið áfram þessum framkvæmdum á þessu og næsta ári og þessum línulögnum verður lokið örugglega á næsta ári. Það er sjáanlegt, að það er fjárhagslega hægt að tryggja, að svo verði gert. Það hygg ég að flestir, sem eru innan þessara marka, muni fullkomlega una við. Hitt er svo annað mál, sem hv. þm. segja um þá, sem eru ekki innan þessara marka. Það er mál út af fyrir sig og eðlilegt, að menn ræði um, þótt það sé kannske ekki eðlilegt í sambandi við þetta mál, hversu langt á að fara og hverjir verða næstu áfangar. Það geri ég ráð fyrir, að verði rætt á öðrum vettvangi.

Svo er annað atriði, sem ég tel nauðsynlegt að komi fram hér út af ræðu hv. 1. þm. Norðurl. e., til þess að það valdi ekki misskilningi, að það fé, sem er ætlað til orkurannsókna, miðast á engan hátt við áætlun Orkustofnunar um að flytja stór fallvötn til annarra byggðarlaga, eins og þar er gert ráð fyrir, og er nú nokkur draumaáætlun, ef svo má segja. Það er ekki ætlunin að vinna að neinni áætlunargerð í því sambandi fyrir það fé, sem hér er ætlunin að verja til orkurannsókna.

Varðandi Dettifoss, þá staðfesti raunar 5. þm. Norðurl. e. það, að það væri ekki sérstök ástæða til þess að fara út í endanlegar rannsóknir á Dettifossi, nema það væri einhver, að minnsta kosti sæmileg, vitneskja um það, til hvers væri hægt að hagnýta þessa orku, vegna þess, eins og hann réttilega sagði, að hv. 1. þm. Norðurl. e. upplýsti það, að það hefðu farið fram forrannsóknir í sambandi við Dettifossvirkjun, einmitt þegar verið var að ræða um álbræðsluna, sem allir voru nú ekki sammála um þá. En sleppum því. Þar af leiðandi er fyrir hendi nokkur vitneskja um Dettifossvirkjun. Hitt er annað mál, að það kostar mikið fé, tugi milljóna, að gera lokaathuganir á virkjunarframkvæmdum, hvort sem það er við Dettifoss eða aðrar meiri háttar virkjanir. En varðandi annars orkuathuganir eða forrannsóknir á ýmsum valkostum norðanlands og austan, þá er ætlunin, að það fé, sem nú er varið til orkurannsókna, verði m.a. notað til þessara þarfa, eins og ég áðan gat um, og verði þá fyrst og fremst að sjálfsögðu unnið að því, sem nauðsynlegast er að gera, þ.e.a.s. varðandi líkur á hagnýtingu orkunnar, því við skulum gera okkur grein fyrir því, að orkurannsóknir eru geysilega kostnaðarsamar framkvæmdir, og við erum ekki svo fjárauðugir, að við getum farið að leggja út í stórkostlegar rannsóknir á því sviði, nema það sé eitthvað í námunda við það, sem á síðan að hagnýta í nánustu framtíð.