27.04.1970
Neðri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (792)

196. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1970

Frsm. minni hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Ég vil ásamt hv. 5. þm. Norðurl. e. leyfa mér að flytja skriflega brtt. við 8. gr. frv. á þessa leið: „Upptalning, hvernig verja skuli lánsfé, breytist þannig: Í stað „15 millj. kr.“ til rafvæðingar í sveitum komi: 25 millj. kr., og niðurstöðutala breytist samkvæmt því í 366.8 millj. kr.“

Þetta atriði var nokkuð mikið rætt hér á laugardaginn við 2. umr. málsins og ég þarf þess vegna ekki að nota mörg orð, þegar ég fylgi þessari brtt. úr hlaði. Ég vil taka fram, að hæstv. fjmrh. gat ekki sannfært mig um það, að útilokað væri um alla efnisútvegun umfram það, sem þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til að útvega. Ég trúi því ekki, að það sé svo miklum vandkvæðum bundið að fá jafneinfalda hluti og staura og strengi, en það eru þeir efnishlutar, sem fyrst koma til nota við lagningu raflína, eins og kunnugt er.

Það vita sjálfsagt allir, sem vilja vita, a.m.k., að það horfir mjög óvænlega um sumaratvinnu skólafólks. Ég hygg, að við línulagnir af því lagi, sem hér um ræðir, falli til nokkuð mikil verkamannavinna, og einnig þess vegna tel ég það hagkvæmt, ef hægt væri að auka framkvæmdir á þessu sviði. Ég vil árétta það, sem virtist alveg fara fram hjá hæstv. ráðh., eftir orðum hans á laugardaginn að dæma, sem ég sagði þá, að jafnvel þó ekki væri hægt að nýta allt þetta fjármagn til framkvæmda umfram það, sem þegar er ráðið, þá væri þó kostur að afla á þennan hátt fjármagns inn í kerfið og létta að einhverju leyti á þeim skyndilánum, sem ráðgerð eru á vegum sveitarfélaganna, sem hafa raunverulega ekki tök á að standa undir þeim, þó þau í nauðvörn brjótist í því. En ég vil einnig endurtaka það, sem ég sagði þá, að þó ég hafi þetta í huga, þá er það þó fyrst og fremst það, sem fyrir mér vakir og okkur flm. þessarar till., að hraða framkvæmdum svo sem auðið er.

Það kom fyllilega fram hjá hæstv. ráðh. við 2. umr., að hann taldi það bera vott um ábyrgðarleysi hjá þeim, sem þá stóðu að flutningi till., sem gekk nokkuð lengra en þessi. Ég var þá einmitt búinn að tala mig „dauðan“ og gat ekki mótmælt þessu. En ég vil nú bara benda á það, að hér er um að ræða mál upp á 1000 millj. kr. Þetta er lagt fyrir Alþ. til meðferðar og þn., sem fjallar um málið, eða hluti þn. flytur eina brtt., sem nemur 15 millj. kr. Það er varla hægt að gera ráð fyrir minni till. til breytinga á svo stóru máli, úr því að það er á annað borð lagt fyrir Alþ. til meðferðar. Og í annan stað í sambandi við tal um ábyrgðarleysi, að þá vil ég aftur, og þá kannske örlítið greinilegar en ég gerði við 2. umr. minna á niðurlagsorð aths. við lagafrv., og þær koma frá ríkisstj. eins og frv. sjálft auðvitað. En þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Svo sem fram hefur komið er kostnaður við fyrirhugaðar framkvæmdir áætlaður samtals 356.8 millj. kr., en það er 61.8 millj. kr. hærri fjárhæð en ofangreindri fjáröflun nemur. Í fyrri áætlun, sem fylgdi fjárlagafrv. 1970, voru óleyst fjárhagsvandamál af þessu tagi 25 millj. kr. Þar sem telja verður líklegt, að nokkur hluti framkvæmdanna frestist til næsta árs, vegna þess að undirbúningi er ekki nægilega langt komið, mun þessi mismunur lækka allverulega, en ríkisstj. mun beita sér fyrir nauðsynlegri viðbótarfjáröflun, ef á þarf að halda.“

Þessi tillöguflutningur okkar hv. 4. þm. Norðurl. e. nú og okkar, sem fluttum hliðstæða till. við 2. umr., er byggður á nákvæmlega sama plani og lagt er hér af hálfu ríkisstj. Hún skilur þannig við sitt frv., að það er gert ráð fyrir því, að nokkrar fjárhæðir vanti fyrir utan það, sem fastmótaðar áætlanir liggja fyrir um, hvernig afla skuli. Ríkisstj. mun beita sér fyrir nauðsynlegum viðbótarfjárhæðum, ef á þarf að halda. Það, sem við leggjum til þarna, er aðeins að hækka þetta bil nokkuð og í þeirri veru, að ríkisstj., á sama hátt og hún í frv. gerir ráð fyrir að afla viðbótarfjár, ef þarf, þá bæti hún við þeirri upphæð, sem okkar till. fjallar um. Það getur svo vel verið, að hæstv. ríkisstj. þyki þessi málatilbúnaður broslegur eins og hæstv. ráðh., sem ræddi þetta mál af hálfu ríkisstj. við 2. umr. Það má vel vera, það fer eftir smekk. En mér þykir þetta mál ekkert broslegt. Og ég held, að íbúum í þeim byggðarlögum, þar sem þrír bæir af hverjum fjórum eru utan við samveitusvæðið, þyki heldur ekki vera hér um neitt sérstaklega broslega hluti að ræða.

Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. Ég vil bara láta það koma fram að lokum, að ég vil engan veginn fallast á það, að framkvæmd þessara mála, eftir að náð er 11/2 km markinu, eins og talað er um að ná í ár og næsta ár, sé nokkurt mál út af fyrir sig. Ég tel alveg tvímælalaust, að framkvæmdir á þeim áfanga verði og hljóti að koma í beinu framhaldi af því, sem nú er talað um að ljúka í ár og næsta ár. Og þá hlýtur það að skipta máli upp á áframhaldið og upp á það, hvenær þessum aðgerðum verði lokið, hvort það fæst meira eða minna fjármagn inn í kerfið á þessu ári.

Ég vil biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir till., af því að hún er skriflega fram komin.