24.04.1970
Efri deild: 77. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í B-deild Alþingistíðinda. (810)

125. mál, leigubifreiðar

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Þar sem frsm. samgmn. er fjarstaddur í dag, hefur hann beðið mig að mæla hér fyrir þeirri brtt., sem samgmn. leggur til, að gerð verði á frv., sem hér liggur fyrir til 2. umr. Við athugun málsins í n. kom í ljós, að trúlega hefur fallið niður að setja inn í 5. gr. frv. sams konar ákvæði og er í 1. og 3. gr., þar sem fjallað er um fólksbifreiðar í 1. gr. og sendiferðabifreiðar í 3. gr., en í 5. gr. er fjallað um vörubifreiðar. Efni málsins er það, að yfirleitt er gert ráð fyrir, að sýslunefnd sé heimilt að ákveða, að allar leigubifreiðar fyrir fólksflutninga í sýslunni eða tilteknum hluta hennar skuli hafa afgreiðslu á bifreiðastöðvum, sem hlotið hafa viðurkenningu sýslunefndar. Og þá kemur hér ákvæði til viðbótar, svo hljóðandi:

„Nú tekur félagssvæði stéttarfélags fólksbifreiðastjóra til tveggja sýslna eða hluta úr þeim, en stéttarfélagið rekur fólksbifreiðastöð fyrir allt félagssvæðið, og er þá sýslunefndunum heimilt að ákveða, að allar fólksbifreiðar á svæðinu skuli hafa afgreiðslu á stöð félagsins.“

Þetta ákvæði þarf sýnilega að koma hér inn fyrir vörubifreiðar einnig, því að svo hagar til á vissum stöðum, að eðlilegast er að félagssvæðið nái til meira en eins sýslufélags.

Að öðru leyti þarf ég ekki að fjölyrða um frv. Í n. varð samstaða um að mæla með samþykkt þess og einnig um að flytja þá brtt., sem ég hér lýsti. Þegar málið var afgr. í n., var Karl Guðjónsson fjarstaddur. Að öðru leyti er n. samróma.