03.03.1970
Efri deild: 50. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (827)
11. mál, skipun prestakalla
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft þetta frv. alllengi til meðferðar og rætt það á mörgum fundum. Eins og fram kemur í grg. með frv., skipaði hæstv. menntmrh. vorið 1965 nefnd til þess að gera till. um framtíðarskipan prestakalla, og var síðan frv. um skipun prestakalla og prófastsdæma lagt fyrir Alþ. 1966, en varð ekki útrætt.
Frv., sem í meginatriðum er byggt á till. prestakallanefndar, liggur nú fyrir í nokkuð breyttri mynd frá því, sem það var 1966, en þær breytingar hafa verið gerðar við meðferð málsins í rn. og eftir athugun þess hjá prestastefnu, kirkjuráði og á kirkjuþingi. Þær breyt., sem orðið hafa á frv. síðan 1966, eru raktar í grg. þess.
Með þessu frv. er að því stefnt að samræma skipulag þjóðkirkjunnar því þjóðfélagsástandi, sem við búum við í dag. Meginbreyt. frá núgildandi l., sem í frv. felast, eru annars vegar fækkun prófastsdæma og prestakalla og hins vegar stofnun kristnisjóðs. Prófastsdæmin eru nú 21 að tölu. Þegar gerðar voru allmiklar breytingar á prestakallaskipuninni árið 1952, voru hins vegar ekki gerðar breytingar á skipan prófastsdæma. Með þessu frv. er hins vegar lagt til, að prófastsdæmunum verði fækkað í 15, og í aths. með frv. er frá því greint, hver þau prófastsdæmi eru, sem yrðu þá sameinuð öðrum.
Við 1. umr. málsins hér í þessari hv. þd. var því beint til n., að hún athugaði, hvort ekki væri ástæða til þess að skilgreina nánar mörk Reykjavíkurprófastsdæmis, sem m.a. nær inn í önnur lögsagnarumdæmi, nær yfir Kópavog og Seltjarnarnes, svo að dæmi séu tekin. Ástæðan til þess, að ekki eru talin upp prestaköll og sóknir í Reykjavíkurprófastsdæmi, er sú, að mér er tjáð, að samkvæmt núgildandi l., — og enda gert ráð fyrir því í þessu frv., að sú skipan haldist áfram, - þá er fjöldi prestakalla í því prófastsdæmi breytilegur miðað við fólksfjölda og aðrar aðstæður, og þarf ekki til þess löggjöf hverju sinni að fjölga prestaköllum. Það væri því, má segja, tjaldað til einnar nætur að telja upp prestaköll í prófastsdæminu, þar sem á því geta orðið breytingar með skömmu millibili, og ég vil aðeins minna á það, að það mun vera til heimild, sem enn hefur þó ekki verið notuð, til að stofna, að ég held, tvö ný prestaköll í Reykjavík.
Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um prófastsdæmin, en snúa mér þá að prestaköllunum. Þau eru nú utan Reykjavíkur 109 að tölu, en með frv. er lagt til, að þeim verði fækkað um 17, eða í 92. Af þessum 17 prestaköllum eru nú 14 prestslaus og er þá gegnt af nágrannaprestum, en í þremur þeirra situr prestur í embætti. Ber þar fyrst að telja Þingvelli, sem ég mun síðar víkja að. Í öðru lagi er það Tjörn á Vatnsnesi, sem samkv. frv. yrði sameinuð Breiðabólstað í Vesturhópi, en eins og nú er, þá gegnir presturinn á Tjörn jafnframt Breiðabólstað. Þriðja prestakallið er svo Hvammur í Laxárdal. Þess ber að geta, að þessar breytingar, sem varða þá þessi þrjú prestaköll, koma ekki til framkvæmda, meðan þeir prestar, sem þjóna nú þessum prestaköllum, gegna embætti. Það er líka rétt að vekja athygli á því ákvæði 15. gr. frv., sem segir, að prestar, sem nú þjóna þeim prestaköllum, sem lögð eru niður, missi ekki tekjur af þeim sökum, og er þá átt við þá presta, sem nú gegna nágrannaprestaköllum auk sinna eigin.
Í 6.–9. gr. frv. eru heimildir biskupi til handa að ráða prestvígða menn til ýmissa starfa, sem nánar eru þar tilgreind.
Ég skal þá víkja nokkrum orðum að ákvæðum frv. um kristnisjóð. Samkv. frv. skulu til kristnisjóðs renna þeir sjóðir, sem fyrir eru. Annars vegar er það kirkjujarðasjóður, sem myndazt hefur við sölu kirkjujarða, en í frv. er ákveðið, að andvirði annarra en prestssetursjarða, sem seldar verði eftir gildistöku l., skuli renna í kristnisjóð. Hinn sjóðurinn er svo prestakallasjóður. Í prestakallasjóð hefur runnið það fé, sem sparast við það, að prestakall er prestslaust, svo að ekki kemur til greiðslu embættislauna eða hluta þeirra, og er þá samkvæmt núgildandi l. miðað við byrjunarlaun presta. Kirkjuráð ráðstafar prestakallasjóði samkv. núgildandi l. til þeirra verkefna, sem því eru þar falin. Aðaltekjur kristnisjóðs verða þá samkvæmt þessu árlegt framlag úr ríkissjóði, sem nemi hámarkslaunum presta í þeim prestaköllum, sem lögð verða niður, og laun, sem sparast á hverjum tíma, þegar prestakall er prestslaust, svo að ekki kemur til greiðslu embættislauna eða hluta þeirra, og er þá, eftir frv., miðað við hámarkslaun presta. Tekjuöflun sjóðsins er þannig í aðalatriðum í samræmi við það, sem gilt hefur um prestakallasjóð. En þegar niður eru lögð svo mörg prestaköll sem frv. gerir ráð fyrir, aukast að sjálfsögðu stórum tekjurnar, þegar frá líður, þ.e.a.s. þegar sú skipan, sem frv. gerir ráð fyrir, verður að fullu komin til framkvæmda.
Um hlutverk kristnisjóðs er fjallað í 21. gr. frv. Ég sé ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um ákvæði 21. gr. Ég vil samt aðeins minnast á 6. tölulið gr., því að það bar nokkuð á góma í n., hvort ætlunin væri með þessu að styrkja stúdenta til náms við guðfræðideild háskólans, þar sem þeir eiga þegar sama rétt og aðrir stúdentar til lána og styrkja úr því almenna námslána- og styrkjakerfi stúdenta eða íslenzkra námsmanna, og nm. sýndist mörgum nokkuð hæpið, ef kristnisjóður ætti að hafa með höndum námsstyrkjafyrirgreiðslu að þessu leyti, sem 6. töluliður 21. gr. gæti gefið tilefni til að ætla. Ég vildi aðeins láta þessa getið, en n. hefur þó ekki flutt brtt. við þessa gr. frv.
Eins og ég áður sagði, hefur n. rætt frv. á mörgum fundum. Ég býst við því, að öllum hv. þdm. sé það ljóst, að mörg ákvæði í þessu frv. eru mönnum viðkvæm a.m.k. og þá fyrst og fremst íbúum þeirra héraða, sem þau sérstaklega snerta, og á ég þá við prestaköllin, sem í ráði er að leggja niður. En það þýðir þó ekki annað en að horfast í augu við þróunina. Þáttur kirkjunnar í sögu okkar og menningu hefur verið svo ríkur, að nú á dögum, mér er óhætt að segja, þverrandi kirkju- og trúrækni, hafa menn kannske tilhneigingu til þess að líta öllu frekar á kirkjuna sem sögulega erfð en sem lifandi afl í þjóðfélaginu, sem á fyrst og fremst erindi til samtíðarinnar, hvað sem líður horfinni tíð. En ég held, að einmitt í ljósi þessa eigi maður að skoða þetta frv., sem stefnir að því, að um leið og lögð eru niður prestaköll, sem reynslan hefur sýnt, að prestar fást ekki til að þjóna, sé því fé, sem við það sparast, varið til þess að efla og styrkja kristilegt starf á ýmsum sviðum.
Eins og fram kemur í nál. á þskj. 307, þá fékk n. á fund til sín biskupinn yfir Íslandi og formann Prestafélags Íslands, og enn fremur bárust n. nokkur erindi, og skal ég nú gera grein fyrir þeim erindum.
Það er þá fyrst að geta erindis frá biskupi frá 20. nóvember, sem ég skal lesa, með leyfi hæstv. forseta. Erindi biskups er svo hljóðandi:
„Ég leyfi mér hér með að senda hv. menntmn. Ed. Alþ. nokkrar ályktanir varðandi frv. það til l. um skipun prestakalla og prófastsdæma og kristnisjóð, sem nú liggur fyrir þinginu. Þessar ályktanir eru frá prestastefnu þessa árs, frá kirkjuþingi 1968, og frá hinum almenna kirkjufundi í október þessa árs, en álit þessara stofnana má teljast álit þjóðkirkjunnar í heild, að svo miklu leyti sem hennar áliti í tilteknum málum verði til skila komið. Allar ályktanirnar eru á sömu lund og bera með sér, að um meginatriði þessa frv. er mjög víðtæk og einhuga samstaða meðal þeirra, sem láta málefni kirkjunnar til sín taka, bæði meðal presta og leikmanna. Ég vil vekja athygli á því, að ályktun prestastefnunnar á s.l. vori var samþ. einróma, enda höfðu engar raddir heyrzt á þeim vettvangi, er ekki töldu það höfuðnauðsyn fyrir kirkjuna að fá þetta mál afgreitt sem allra fyrst í þá stefnu, sem frv. markar. Sama máli gegnir um hinn almenna kirkjufund, sem haldinn var á Akureyri fyrir mánuði, en hann sóttu um 100 fulltrúar kirkjunnar, prestar, sóknarnefndarmenn og annað áhugafólk, sem vegna trúnaðarstarfa á vegum safnaða og kirkjulegra félagssamtaka hefur atkvæðisrétt á þessum fundum.
Þess vil ég leyfa mér að geta sérstaklega, að megindrögin að þeim hluta fyrirliggjandi frv., sem fjallar um kristnisjóð, tekjur hans og verksvið, voru samþykkt á kirkjuþingi 1964, en skeytt við frv. um skipun prestakalla, þegar það var lagt fyrir Alþ. 1966. Þessi þáttur umrædds máls hefur því verið til umræðu í 5 ár. Gerðir kirkjuþings eru sendar öllum prestum og öllum sóknarnefndum, og allir hafa átt þess kost að kynna sér frv. frá 1966. Ég get fullyrt það, að hvergi hefur komið fram gagnrýni frá kirkjulegum aðilum á hugmyndinni um kristnisjóð. Þvert á móti hafa allar raddir farið í eina átt um að styðja það atriði og óska þess, að því mætti framgengt verða. Hitt er öllum að sjálfsögðu ljóst, að engin lög af þessu tagi geta í hverju atriði fullnægt öllum óskum né tekið tillit til allra minni háttar ágreiningsefna. En ég tel óumdeilanlegt, m.a. í ljósi hjálagðra ályktana, að um meginefni frv., eins og það liggur nú fyrir, sé eins almenn samstaða og unnt er að gera sér vonir um í máli eins og þessu.
Mér hafa ekki borizt héraðsfundargerðir frá þessu hausti. Ég hef og ekki beint tilmælum til héraðsfunda um að láta uppi álit sitt á málinu að þessu sinni, þar sem það hefur svo lengi verið á dagskrá og jákvæð afstaða kirkjunnar liggur ljóst fyrir, þótt athugasemdir hafi eðlilega komið fram úr einstökum héruðum um breytingar þær, sem frv. gerir ráð fyrir á prestakallaskipun í viðkomandi sýslum. Ég tel að gefnu sérstöku tilefni rétt að senda yður ályktun héraðsfundar Mýraprófastsdæmis frá 1966, þar sem hún sker úr um viðhorf heimamanna til Staðarhraunsprestakalls.“
Þá fylgir hér með frá biskupi samþykkt prestastefnunnar, sem var afgr. þar einróma, og er svo hljóðandi: „Prestastefna Íslands 1969 lýsir vonbrigðum sínum yfir því, að frv. til l. um skipun prestakalla og kristnisjóð hefur enn ekki hlotið afgreiðslu á Alþ. Sætir sá dráttur furðu, ekki sízt þegar þess er gætt, hve rækilegan undirbúning málið hefur fengið. Frv. prestakallan. þeirrar, sem kirkjumrh. skipaði, hefur verið lagt fyrir kirkjuráð, kirkjuþing og prestastefnu. Hafa allir þessir aðilar lagt fram mikla vinnu við athugun á frv. og mótun þess, og hafa þeir allir lýst sig samþykka því í megindráttum. Þar eð prestastefnan telur, að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða, sem leitt geti til bættrar starfsaðstöðu kirkjunnar, leyfir hún sér að beina þeim eindregnu tilmælum til kirkjumrh., að hann beiti sér fyrir því, að frv. til l. um skipun prestakalla og kristnisjóð verði lagt fyrir næsta Alþ. og hljóti afgreiðslu á sama þingi. Einnig vill prestastefnan enn að nýju ítreka eindregnar óskir sínar um afnám almennra prestskosninga.“
Þar með lauk samþykkt prestastefnunnar. Biskup segir enn fremur:
„Þess skal getið, að prestastefnan var að þessu sinni mjög fjölsótt, og sótti hana allur þorri þjónandi presta landsins. Í umræðum hreyfði enginn andmælum eða aths. við þessa ályktun,og var hún samþykkt „umræðulaust og samhljóða, “ eins og segir í fundargerðinni.“
Þá er ályktun kirkjuþings 1968, svo hljóðandi: „Kirkjuþing ályktar að skora á Alþ. að afgreiða á því þingi, sem nú stendur yfir, frv. til l. um veitingu prestakalla og skipun prestakalla og kristnisjóð, er áður hefur verið lagt fyrir Alþ.“
Þá er loks samþykkt almenns kirkjufundar frá því í október 1969:
„Hinn 17. almenni kirkjufundur, haldinn á Akureyri 24.–26. okt. 1969, skorar eindregið á Alþ. að samþykkja frv. það, sem liggur fyrir þinginu um skipun prestakalla og kristnisjóð.“
Þetta var erindi það, sem n. barst frá biskupi.
Þá barst n. erindi frá stjórn Prestafélags Íslands, sem ég álít rétt að hér verði kynnt, en erindi Prestafélagsins eða stjórnar Prestafélagsins, sem er dags. 1. nóv. 1969, hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Stjórn Prestafélags Íslands vill ekki láta hjá líða, að fram komi álit hennar vegna frv. til I. um skipun prestakalla og prófastsdæma og um kristnisjóð, er nú liggur fyrir Alþ.
Stjórnin þakkar kirkjumrh., Jóhanni Hafstein, áhuga hans á umbótum í málum þjóðkirkjunnar. Enn fremur þakkar hún ráðh., að ýmsar lagfæringar hafa verið gerðar á frv. frá því, að það var lagt fyrir Alþ. 1966, og telur hún þær nær allar til bóta. Þó vill stjórnin sem málsvari prestastéttarinnar lýsa því yfir, að hún harmar, að koma skuli til mála fækkun sóknarpresta meðal vaxandi þjóðar og við vaxandi þörf kirkjulegs starfs.
Stjórn Prestafélags Íslands telur undirbúning frv. ófullnægjandi frá byrjun. Telur hún, að prestakallan., er gerði fyrstu drög að því, hafi haft ónógan tíma til undirbúningsstarfsins, enda hafi hún ekki gert neina alvarlega tilraun til þess að rannsaka, hversu starf hinnar íslenzku þjóðkirkju mætti bezt ná til allra landsmanna né heldur, hvert teljast mætti hæfilegt starfssvið prestum og próföstum, svo sem ráðh. hafði þó fyrir hana lagt.
Þá vill stjórnin gera eftirfarandi aths. við frv. í einstökum atriðum.
I. kafli.
1. gr. Stjórn Prestafélags Íslands er eindregið mótfallin niðurlagningu Þingvallaprestakalls. Vekur hún athygli á, að bæði kirkjuþing og prestastefna hafa lagt til, að prestakallið haldist við. Stjórnin telur ósæmandi að leggja niður prestssetur á hinum fornhelga stað, enda sjáanlegt, að þar er mikið og vaxandi verksvið fyrir prest. Þótt prestakallið sé nú talið fámennt, skal á það bent, að fjöldi fólks hefur sumarsetur í kallinu og ferðamennirnir þar jafnan á sumrin fjölmennari en nokkurs staðar ella hérlendis. Er augljóst, að í náinni framtíð mun messað á hverjum helgum degi í Þingvallakirkju að sumarlagi.
Þá vill stjórnin vekja athygli á, að prestastefna, kirkjuþing og kirkjuráð voru sammála um að æskja þess, að Núpsprestakall í Dýrafirði og Árnesprestakall á Ströndum fengju að haldast. Enn fremur æsktu prestastefna og kirkjuþing þess, að Staðarhraunsprestakall á Mýrum héldist við.
Stjórnin telur 5 þús. manna söfnuð í Reykjavík algert hámark.
2. gr. Stjórn Prestafélags Íslands leggur til, að afnumin verði úr frv. orðin „að jafnaði“ í 1. lið 2. gr. Er það í samræmi við óskir prestastefnu, kirkjuþings og kirkjuráðs.
3. gr. breytist til samræmis við 2. gr. Í stað orðalagsins „Heimilt er“ komi orðalag úr frv. kirkjuþings: „Skipta skal“ o.s.frv.
5. gr. Úr henni falli brott orðin „ef um embættisbústað í eigu ríkissjóðs er að ræða.“
10. gr. Tekið verði í hana ákvæði 12. gr. í frv. kirkjuþings: „Auglýsa skal til umsóknar allar þær stöður, sem um ræðir í 6– 9. gr.“
Á eftir 14. gr. komi 17. gr. úr frv. kirkjuþings: „Víðlend og afskekkt prestaköll skulu njóta staðaruppbóta samkvæmt mati kirkjustjórnar á staðháttum að fengnum till. Prestafélags Íslands.“ Ákvæði þetta er runnið frá prestastefnu.
II. kafli.
Stjórn Prestafélags Íslands þykir miður, að prestastefnu skyldi ekki gefast kostur á að fjalla um ákvæði frv. um kristnisjóð jafnframt því, að hún fjallaði um prestakalla- og prófastsdæmaskipan.
Varðandi kristnisjóð vill hún lýsa svofelldu áliti:
20. gr. Tekjur sjóðsins virðast af skornum skammti og ekki fyrirsjáanlegt, að þær muni vaxa í hlutfalli við þarfir og vöxt þjóðar og kirkju, enda virðist óeðlilegt, að megintekjustofn sé af niðurlagningu prestsembætta, er fátækir söfnuðir í strjálbýli hafa notið.
21. gr. Í 2. lið komi orðalag úr frv. kirkjuþings: „Enda hafi starfið áður verið auglýst með venjulegum hætti.“ 23. gr. orðist sem 26. gr. í frv. kirkjuþings: „... á stjórn hans. Skal kirkjuráð semja starfsáætlun fyrir sjóðinn og leggja hana ásamt endurskoðuðum reikningi hans fyrir hvert reglulegt kirkjuþing til fullnaðarákvörðunar og samþykktar. Reikningsleg endurskoðun skal framkvæmd af ríkisendurskoðuninni.“
Svo segir að lokum:
„Stjórn Prestafélags Íslands lítur svo á, að umrætt frv. geti aðeins skoðazt sem upphaf að gagngerðri endurskoðun og umbótum á stjórn, skipan og starfsaðferðum þjóðkirkjunnar og sambandi hennar við ríkisvaldið. Vill hún einkum minna á, að kirkjuþing hefur þegar undirbúið og samþykkt að sínu leyti frv. um þrjú biskupsdæmi á Íslandi. Telur stjórnin fulla ástæðu til þess að gera Alþ. og ríkisstj. ljóst, að meiri hluta presta og annarra áhugamanna um kirkjumál á Íslandi er fullkomið alvörumál, að sú skipan komist á.“
Þá hefur n. borizt svo hljóðandi bréf:
„Á fundi Þingvallanefndar, sem haldinn var hinn 28. nóv. s.l., var samþykkt að fara þess á leit við hv. menntmn. Ed. Alþ., að hún geri að till. sinni þá breyt. á frv. til I. um skipun prestakalla og prófastsdæma og um kristnisjóð, að Þingvallaprestakall haldist og verði ekki fellt niður. Tilmæli þessi voru samþykkt einróma á fundi Þingvallanefndar. Nefndin fól undirrituðum að koma þessum tilmælum á framfæri, enda gert með bréfi þessu.
Virðingarfyllst,
Þingvöllum, 3. desember 1969.
Eiríkur J. Eiríksson,
þjóðgarðsvörður.“
Þá hefur n. fengið ljósrit af undirskriftalistum úr Árnesprestakalli, og er formáli svo hljóðandi — þetta er dags. 15. febr. 1969:
„Sú frétt hefur borizt til okkar hér í Árneshreppi, að fyrirhugað sé að leggja Árnesprestakall niður og sameina það Hólmavíkurprestakalli. Þessari fyrirætlun leyfir sóknarnefnd og söfnuður Árneskirkju sér hér með að mótmæla, og treystum við undirrituð herra biskupnum yfir Íslandi og hinu háa Alþingi til þess að virða vilja okkar í þessu efni.“
Þessi áskorun er undirrituð af 96 manns í sóknarnefnd og söfnuði Árneskirkju.
Þá er loks að geta áskorunar, sem n. hefur borizt úr Árnesþingi og er svo hljóðandi:
„Vér undirritaðir alþingiskjósendur í Árnesþingi mótmælum harðlega því ákvæði frv. til I. um skipun prestakalla og prófastsdæma og um kristnisjóð, sem nú liggur fyrir Alþ., að Þingvallaprestakall verði lagt niður og Þingvellir lagðir undir Kjalarnesprófastsdæmi. Teljum vér, að sú skipan, sem komið var á árið 1958, er prestinum var falið þjóðgarðsvarðarstarfið á Þingvöllum, sé heppileg og hafi reynzt vel. Sú afgreiðsla málsins dróst að vísu um of, en er í samræmi við rökstudda dagskrá frá Alþingi árið 1933, er ríkisstj. og Þingvallanefnd var falið að semja um prestssetrið á Þingvöllum með tilliti til friðunar staðarins. Rökin fyrir niðurfellingu Þingvallaprestakalls munu vera þau, að prestakallið sé fámennt, og er það rétt. Búsettir sóknarmenn eru fáir, en hins vegar er augljóst, að prestsstarfið þar nær langt út fyrir sóknina. Um Þingvöll fara tugir þús. innlendra og erlendra gesta á hverju ári, og þótt þeir séu vissulega ekki þar í kirkjulegum erindum, eru þeir ófáir þar á meðal, sem leita þar prestlegrar þjónustu og einkum vegna helgi staðarins. Sparnaður yrði enginn af þessari ráðstöfun, því að útilokað er, að þjónusta prestakallsins gæti orðið kostnaðarminni en nú er. Þingvellir eru þjóðarhelgidómur og um leið höfuðhelgidómur kirkjunnar við hlið Skálholts og Hóla. Þar var kristni lögtekin árið 1000, þar fór fram lagasetning kirkjunnar í 7 aldir, þangað gaf Ólafur helgi kirkju um árið 1018, og vafalítið hefur prestur verið þar óslitið síðan nema árin 1928–1958.
Við teljum, að það sé að misbjóða bæði sögu þjóðarinnar og kirkjunnar á freklegan hátt, ef gert er ráð fyrir að fella Þingvelli inn í annað prófastsdæmi. Væri Árnesþing þar að vissu leyti svipt Þingvöllum. Má minna á, að Árnesingar líta á Þingvelli sem eina sína mestu prýði og sæmd, þótt alþjóð eigi þá að vísu. Áttu og Árnesingar mikinn hlut að hinum mikla viðburði, er kristni var þar lögtekin. Þó að þess séu dæmi, að sóknir sama prestakalls séu ekki allar í sama prestakalli, er það mjög óheppilegt og í þessu dæmi óhæfa, því að Þingvöllur er einn sterkasti drátturinn í svipmóti héraðsins og of mikill aðili í sögu þess og lífi til þess að vera fleygt til og frá eins og umkomuleysingja. Árnesingar munu aldrei þola, að nokkur hluti héraðs þeirra verði settur undir lögsögu annarra héraða, hvorki í veraldlegum né kirkjulegum efnum. Teljum við, að umrædd tillaga sé mjög svo neikvæð í alla staði. Nú fara í hönd þjóðhátíð og þúsund ára minning kristnitökunnar, og teljum vér, að gera verði stórátak hið allra fyrsta til uppbyggingar staðarins og þá ekki sízt með endurbyggingu Þingvallakirkju. Munum við Árnesingar styðja það mál með ráðum og dáð sem og allir góðir Íslendingar.
Selfossi, 15. desember.“
Undir þetta skrifa fimm Árnesingar, og seinna bárust svo undirskriftir. Það var þykkur bunki, og ég hef nú ekki talið, hve margir hafa skrifað þar undir, en þeir skipta áreiðanlega hundruðum.
Ég hef þá kynnt þau erindi, sem n. hafa borizt. Það hefur að vísu tekið nokkurn tíma, en vegna þess, hve mörg atriði þessa frv. eru, eins og ég áður sagði, mönnum viðkvæm, þá taldi ég rétt, að hér kæmi fram allt það, sem n. hefur borizt af bréfum og erindum.
Allar þær ábendingar og till., sem fram koma í þessum erindum, sem ég nú hef lýst, hafa að sjálfsögðu verið til athugunar hjá n. Um afstöðu n. til þeirra læt ég nægja að vísa til brtt., sem n. í heild flytur á þskj. 308, sem og til brtt. einstakra nm. Ég skal láta þess getið um leið, að einmitt Þingvellir voru þrásinnis og ítarlega til umr. í n., þótt ekki næðist samstaða allra nm. um brtt. varðandi þá.
Ég skal þá gera grein fyrir brtt., sem n. flytur á þskj. 308. 1.– 4. og 7. brtt. varða Austfirði. Í n. var okkur frá því skýrt, að þm. Austf. í báðum þd. væru þess fýsandi, að þessar breytingar yrðu gerðar á frv., og taldi n. þá rétt og eðlilegt að taka þær brtt. upp, þar sem hún gat einnig fyllilega á efni þeirra fallizt.
Þá skal vikið að 1. brtt. Í frv. eru prófastsdæmin þar eystra nefnd, eins og reyndar nú er, Norður-Múlaprófastsdæmi og hins vegar Suður-Múlaprófastsdæmi. Nú er það svo, að það, sem nú er nefnt Norður-Múlaprófastsdæmi og maður skyldi þá ætla, að væri bundið við sýslumörkin, nær töluvert inn í Suður-Múlasýslu. Því er lagt til, að heitum prófastsdæmanna tveggja þar eystra verði breytt og að í stað Norður-Múlaprófastsdæmis verði nyrðra prófastsdæmið nefnt Múlaprófastsdæmi. 4. brtt. er um breytingu á heiti Suður-Múlaprófastsdæmis, og get ég vitnað til þeirra röksemda, sem fram hafa komið um hið fyrra, og er lagt til, að í stað heitisins Suður-Múlaprófastsdæmi komi Austfjarðaprófastsdæmi.
Þá skal ég víkja að 2. brtt. Samkv. frv. er lagt til, að Valþjófsstaður leggist niður sem prestssetur og þær sóknir, sem nú liggja til Valþjófsstaðarprestakalls, leggist til annarra prestakalla, þ. á m. nýs prestakalls, Egilsstaðaprestakalls. Þá munu eftir frv. þrír prestar, þ.e.a.s. Egilsstaða-, Eiða- og Vallanesprestur, sitja sunnan Lagarfljóts og ekki ýkjalangt á milli prestssetra, og þaðan yrði svo þjónað sóknum norðan fljótsins. En af þeim, sem helzt hafa beitt sér fyrir þeirri brtt., sem n. flytur, er talið eðlilegt að halda sér í bili í meginatriðum við núverandi skipan prestakalla á þessu svæði, þ.e.a.s. á Héraði, þótt prestssetrið á Valþjófsstað sé reyndar afskekkt, og þetta er rökstutt með því, að það megi gera ráð fyrir því í framtíðinni, að þéttbýliskjarni myndist norðan fljótsins, væntanlega þá við brúna, og þá yrði eðlilegast, að prestur sitji þar.
Þá kem ég að 5. brtt. Það er öllum hv. þdm. að sjálfsögðu kunnugt, að prestslaust hefur verið að Kvennabrekku, síðan presturinn þar lézt á s.l. hausti. Það er talið vafasamt, að prestur fáist þangað, en hins vegar mun ekkja síðasta prestsins, sem þar sat og sat staðinn með miklum ágætum, hafa mikinn hug á að geta búið þar áfram með börnum sínum. N. hefur rætt töluvert prestakallaskipan á þessum slóðum, og nm. urðu sammála um að gera það að till. sinni, að prestssetrið verði flutt frá Kvennabrekku í Búðardal, þar sem, eins og menn vita, er nokkurt þéttbýli, og jafnframt verði heiti prestakallsins breytt, þannig að það heiti þá framvegis Hjarðarholtsprestakall, en Búðardalur er í Hjarðarholtssókn. Ætla mætti það, að íbúar héraðsins felldu sig vel við það, að prestakallið beri framvegis nafn hins fornfræga höfuðbóls.
Þá er 6. brtt. Í 52. tölul. í 1. gr. frv. er lögð til sú breyting, að prestssetur flytjist frá Hvammi í Dölum að Hvoli í Saurbæ, og jafnframt verði heiti Hvammsprestakalls breytt í Hvolsprestakall. Þessi breyting er líklega til komin vegna þess, að prestur sá, sem nú þjónar prestakallinu, situr á Hvoli, en húsakynni í Hvammi munu vera úr sér gengin. Við 1. umr. hér í hv. þd. var því beint til n., að hún beitti sér fyrir þeirri breyt. á frv., að Hvammur yrði áfram prestssetur og heiti prestakallsins óbreytt. N. hefur orðið við þessari ósk, og þegar það er gert, er það m.a. haft í huga, að Hvammur er vel settur með tilliti til nálægðar tveggja skólasetra, Staðarfells og Lauga, en slíkt hlýtur að vega allþungt, því að það er eðlilegt, að á það sé lögð nokkur áherzla að auðvelda prestum á hverjum stað að ná til slíkra staða, sem skólasetur eru, og annast þar bæði kirkjulega þjónustu og jafnvel uppfræðslu á öðrum sviðum.
Um 7. brtt. er það að segja, að hún er tengd annarri brtt. Það er sem sé lagt til, vegna þess að í 2. brtt. er lagt til, að Möðrudalssókn falli til Valþjófsstaðarprestakalls, eins og nú er, að það haldist áfram, og þá varð um leið að gera þá breyt. á 87. tölul. að fella þar úr Möðrudalssókn.
Ég hef þá gert grein fyrir afstöðu n. og þeim brtt., sem hún flytur. Eins og fram kemur í nál. á þskj. nr. 307, mælir n. með frv. með þeim breyt., sem ég nú hef lýst, en nm. áskilja sér jafnframt rétt til að flytja frekari brtt. og fylgja brtt., sem fram kunna að koma. Einn nm., Gils Guðmundsson, 5. þm. Reykn., skrifar undir nál. með sérstökum fyrirvara.
Ég ætla þá að leyfa mér, hæstv. forseti, að gera stuttlega grein fyrir brtt., sem ég flyt á þskj. 311 og varðar Þingvelli. Um fyrri brtt. er það að segja, að með henni er lagt til, að Þingvellir falli undir Mosfell í Grímsnesi, m.ö.o., þeir verði ekki sjálfstætt prestakall, heldur sókn í Mosfellsprestakalli, og um leið er d-liður 1. brtt., að Þingvellir falli út í 36. tölul., þar sem þeir hefðu, eins og frv. gerir ráð fyrir, fallið undir Mosfell í Mosfellssveit, og þar með verið í Kjalarnesprófastsdæmi. Síðari brtt. er um það, að ný gr. bætist inn í frv. og hljóði svo sem þar segir, að ráðh. sé heimilt, að fengnum till. biskups og Þingvallanefndar, að skipa prest, er sitji á Þingvöllum og þjóni Þingvallasókn, enda gegni hann þá jafnframt starfi þjóðgarðsvarðar.
Önnur brtt. varðandi Þingvelli er fram komin frá öðrum hv. meðnm. mínum þrem. Þar er lagt til, að Þingvellir haldist áfram sem prestakall og verði í Árnesþingi. Það er nokkur munur á þeirri brtt. og þeirri, sem ég flyt, og ég vona, að hv. flm. þyki ég ekki taka fram fyrir hendur sér, þó að ég leyfi mér að gera örlítinn samanburð á þessum þremur meginbrtt., til þess að þdm. megi vera ljós sá munur, sem á þeim er, sem er þó að vissu leyti ekki ýkjamikill. Samkv. minni till. yrðu Þingvellir ekki sjálfstætt prestakall, heldur sókn, en með heimildargr., sem byndi í sér heimild til þess að skipa prest, sem þar sitji, sem þó jafnframt gegni starfi þjóðgarðsvarðar. Þá verður staða sóknarinnar í rauninni nánast sú sama og að hún væri sérstakt prestakall. Ég tel ekki ástæðu til að ætla annað en slík heimild yrði notuð. Hitt er annað, að það getur enginn sagt fyrir um það, hvort unnt yrði í framtíðinni að fá prest til þess að sækja um Þingvelli, sem jafnframt vildi taka að sér að gegna starfi þjóðgarðsvarðar. Verður aldrei hægt um það að fullyrða. En báðar brtt., bæði mín og þeirra þremenninganna, meðnm. minna, mundu, ef ekki fengist prestur, sem jafnframt vildi gegna þjóðgarðsvarðarstarfinu, í báðum tilfellum leiða til þess, að enginn prestur sæti á staðnum. Það er rétt í sambandi við þessar till., sem fram eru komnar um að binda saman prestsstarfið og þjóðgarðsvarðarstarfið, að taka það fram, að eins og þetta yrði samkv. þessum brtt., hvor þeirra sem samþykki hlyti, ef þær yfirleitt hljóta samþykki, mundi það leiða til þess, að prestskosningar gætu ekki farið þar fram, vegna þess að gert er ráð fyrir, að það sé að fengnum till. biskups og Þingvallan., sem skipað verði í þetta starf.
Það eru að sjálfsögðu fleiri atriði, sem hefði verið hægt að nefna í sambandi við frv. og ekki þá sízt í sambandi við ýmsar ábendingar, sem hafa komið í erindum til n. Eg sé þó ekki ástæðu til þess að tína það allt upp, enda gæti það orðið nokkuð langt mál.
Ég hef þá gert grein fyrir, eins og ég áður sagði, afstöðu n. til frv. og þeim brtt., sem n. hefur flutt, og einnig þeim, sem ég hef flutt ein, og sé þá ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, a.m.k. ekki nema þá ef tilefni gefst til síðar.