03.03.1970
Efri deild: 50. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (834)

11. mál, skipun prestakalla

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Enda þótt ég eigi sæti í menntmn. þessarar hv. d., hef ég ekki undirritað neitt nál. vegna fjarvistar í janúarmánuði, þegar málið var til lokameðferðar, og þess vegna ætla ég að leyfa mér að verja örfáum mínútum af tíma d. til þess að gera grein fyrir skoðun minni í þessu máli, en það skal ekki verða langt mál.

Ég vil þá fyrst lýsa yfir því, að ég mun fylgja þessu frv., eins og það liggur fyrir í meginatriðum, og hefði fyrir mitt leyti viljað standa fyllilega að þeim till., ef ég hefði getað komið því við að mæta, sem n. flytur í heild á þskj. 308. Ég hygg, að þær séu allar til bóta og í samræmi við óskir sóknarbarna á viðkomandi stöðum, enda fluttar hér af fulltrúum þeirra. Þó er eitt atriði í frv., sem raunar hér hefur verið vikið að af hv. þm. Reykn., Gils Guðmundssyni, en það eru ákvæði 20. gr. um tekjur kristnisjóðs, að í hann skuli renna samkv. c-lið þau laun, sem sparast á hverjum tíma, þegar prestakall er prestslaust, svo að ekki komi til greiðsla launa eða hluta þeirra, eins og þar segir. Ég tel, að þetta ákvæði sé vafasamt og það geti orkað þannig, að minni áhugi sé á æðri stöðum fyrir því að skipa í prestakallið, þar sem tekjurnar renna til kirkjunnar hvort eð er og kirkjan hefur ráðstöfunarrétt yfir þeim annars staðar. Ég hafði áður en endanleg afgreiðsla við þetta frv. fór fram í menntmn. verið að velta þessu fyrir mér. Ég skal játa, að ég hef fellt þær vangaveltur niður að mestu um skeið, en þetta rifjast upp fyrir mér nú við afgreiðslu málsins hér og í framhaldi af því, sem hv. þm. Reykn. sagði áðan um þetta atriði. Og raunar vil ég nú ganga lengra og segja, að mér finnst eins og honum, að það væri eðlilegra, að þarfir kristnisjóðs væru metnar á hverjum tíma og það yrði með einu eða öðru móti þá reynt að útvega fjármagn til að mæta þeim fremur en að geta hans sé svona tilviljunum háð, eins og ákveðið er í þessu frv., ef það verður að lögum.

Þá eru nú ekki fleiri atriði, sem ég ætla að gera hér að umtalsefni utan Þingvallaprestakalls, en fyrir því hef ég mjög mikinn áhuga, að Þingvellir fái að halda áfram að vera sérstakt prestakall. Ég tel raunar annað ekki sæmandi. Ég tek undir þau rök, sem hv. 5. þm. Sunnl. flutti fyrir þeirri till., sem fram er sett á þskj. 310 um það, þar sem það sé greinilega vilji Alþ., að Þingvellir séu jafnrétthátt prestakall og önnur prestaköll í landinu, og af þessum orðum hlýtur þá að leiða það, að ég er ekki nógu ánægður með brtt. hv. 2. þm. Reykv. á þskj. 311, þar sem gert er ráð fyrir því, að Þingvellir séu gerðir að sókn í öðru prestakalli, enda þótt svo sé ráðgert, að þar skuli sitja prestur, þ.e.a.s. ef ráðh. þóknast að ákveða svo hverju sinni. Ég tel, að Alþ. undirstriki sérstöðu Þingvalla bezt með því að gera þá að prestakalli, og ég fyrir mitt leyti óttast það ekki, að það fáist ekki hæfur prestvígður maður til að gegna báðum þeim störfum, sem brtt. á þskj. 311 gerir ráð fyrir, alveg eins hér eftir eins og hingað til. Komi það í ljós mót minni spá a.m.k. og ég hygg fleiri, þá það, þá verður að taka afleiðingunum af því, og þá verður að hugsa til einhverra annarra aðgerða til þess að halda uppi reisn Þingvalla. En mín spá er sú, að á það muni ekki reyna, heldur muni áframhald verða á því, að prestvígður maður, sem um leið væri hæfur til þess að gegna stöðu þjóðgarðsvarðar, fengist í þetta embætti.

Ég tel, að það sé verulegur munur á þessum tveimur brtt. Í mínum huga er hann það, og ég get vel skilið það, að ýmsir Íslendingar telji Þingvelli eins konar sameign þjóðarinnar, og ég hygg, að það fari þá ekki illa á því, að Alþingi geri sér það líka ljóst, að Þingvellir hafa nokkra sérstöðu með því að skipa sóknarnefndarmálum eða kirkjumálunum þar með nokkuð öðrum hætti en gert er annars staðar. En vitanlega er það ljóst, að með því að tengja þessi embætti saman er um algera sérstöðu að ræða, þar sem prestskosningum verður ekki við komið. Ég hygg, að það saki ekki svo mjög, þar sem meginverkefni þessa manns yrði líklega þjóðgarðsvarzla, a.m.k. eftir að önnur sóknin hefur verið tekin frá honum. En hvernig sem fer um afgreiðslu þessarar till., vil ég þó þakka hv. form. menntmn. fyrir það að koma til móts við óskir Þingvellinga með þeirri till., sem hún hefur borið fram, því að hún er vitanlega miklu betri en sú lokleysa, sem gert er ráð fyrir í frv., að leggja Þingvelli undir prestakall í annarri sýslu.