03.03.1970
Efri deild: 50. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 723 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

11. mál, skipun prestakalla

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég mun að sjálfsögðu sem nefndarformaður hlutast til um það, að á milli umr. verði tekin til athugunar þau atriði, eða það var nú reyndar aðallega eitt atriði, sem hæstv. fjmrh. mæltist til, að frekar yrði skoðað af n. Ég mun hlutast til um, að það verði gert, og hugsanlegt, að fleiri atriði, sem komið hafa fram í ræðum hv. þm. hér við umr., gefi einnig ástæðu til frekari athugunar á einstökum atriðum frv.

Það var eitt atriði, sem kom fram, að ég held í ræðum tveggja hv. þm., og það var varðandi kristnisjóðinn. Það var látið að því liggja, að sú tekjuöflunarleið, sem honum er ætluð, sem sé að til hans renni prestslaun úr prestaköllum, sem ekki er þjónað eða niður verða lögð, gæti jafnvel slævt áhuga yfirmanna fyrir því, að skipað verði í þessi embætti eða menn fáist í þessi embætti. Nú er að sjálfsögðu skylt að auglýsa prestaköll, sem laus verða, þannig að það hlýtur að koma nokkuð af sjálfu sér. En ég vil aðeins benda á það, að þetta er bara ekki nein ný skipan mála, því að prestakallasjóðurinn, sem nú er, nýtur þess einmitt, að í hann falla laun eða hluti launa, sem sparast af launum í prestaköllum, sem prestar hafa ekki fengizt í. Það hafa mér vitanlega ekki hingað til a.m.k. verið uppi neinar getgátur um það, að þeir aðilar, sem samkv. l. hafa umráð prestakallasjóðsins, sem er kirkjuráð, hafi orðið til þess að draga eitthvað úr því, að prestar fengjust í þau prestaköll, sem laus eru.

Ég vil aðeins víkja að Þingvallaprestakalli, sem reyndar hv. síðasti ræðumaður gerði. Þó að samþ. yrði, að Þingvellir yrðu sérstakt prestakall, er það að því leyti ekki jafnrétthátt prestakall öðrum, að eftir þeirri skipan, sem í brtt. felst, yrði ekki um að ræða rétt fólks í sókninni til þess að kjósa sér prest. Vegna þess, að það virðist svo sem þm. sé ekki alveg ljós sá munur, sem er á brtt. einstakra nm., sem fram hafa komið hér, þ.e.a.s. annars vegar brtt., sem ég flyt, og hins vegar brtt. þriggja meðnm. minna, þá held ég, að í stuttu máli megi segja, að munurinn sé sá, að samkv. minni till. er lagt til, að Þingvellir verði sókn, en ekki prestakall, sókn, sem heyrir undir Mosfellsprestakall, en heimild til þess að skipa þar prest, sem jafnframt sé þjóðgarðsvörður. Samkv. brtt. þeirra þremenninganna er hins vegar lagt til, að Þingvellir verði sérstakt prestakall og þar skuli skipa prest, sem jafnframt gegni þjóðgarðsvarðarstarfi. Ég vil taka það fram, sem ég reyndar orðaði í minni fyrri ræðu, að í huga mér er enginn vafi á því, að heimildin yrði notuð samkv. minni brtt., ef að lögum yrði. Það hefur satt að segja aldrei hvarflað að mér neinn efi um það. En ef að því rekur, sem auðvitað er mjög vel hugsanlegt, að ekki fáist guðfræðingur í prestsstarfið, sem jafnframt vildi taka að sér þjóðgarðsvarðarstarf, eða enginn, sem hæfur yrði talinn, skulum við segja, þá yrði staðan sú, að annars vegar væri Þingvallasókn, sem félli þá undir Mosfellsprest og yrði þjónað af honum. Í hinu tilfellinu yrði staðan aftur þannig, að þarna væri prestslaust prestakall, sem nágrannapresti yrði þá væntanlega falið að þjóna og trúlega þá einmitt prestinum á Mosfelli. Ég vona, að hv. þdm. sé ljós sá munur, sem er á þessum tveimur brtt.

Ég vil þá aðeins fara nokkrum orðum um brtt. hv. 11. þm. Reykv. við mína till. Satt bezt að segja hafði ég upphaflega orðað þessa brtt. eða hún hafði verið orðuð eitthvað mjög svipað því, sem hann leggur til, að nú verði. Ég get hins vegar sagt, að það vakti einungis fyrir mér, að þessum tveimur aðilum yrði gert nokkurn veginn jafnhátt undir höfði, báðir gerðu till. til ráðh., annars vegar biskup, hins vegar Þingvallanefnd. Hitt er svo rétt, sem hv. þm. sagði, að réttur biskups við veitingu embætta er yfirleitt ekki annar en tillöguréttur. Veitingavaldið er að sjálfsögðu annars staðar. Og að athuguðu máli mundi ég út af fyrir sig geta fellt mig við þessa breyt. á minni brtt., ef hún mætti verða til þess, að auka líkur fyrir því, að hún næði samþykki.