30.01.1970
Neðri deild: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (885)
29. mál, gerðardómur í kjaradeilu atvinnuflugmanna
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Það er í tilefni af ummælum, sem fram komu hjá hv. 6. þm. Reykv., sem ég tel ástæðu til að kveðja mér hljóðs. Hann lét þau orð falla, að samgmn. hefði ekki aflað sér upplýsinga um þá samninga, sem gerðir voru í fyrravor rétt eftir útkomu brbl. Þetta er rétt hjá honum. Ég fór fram á það í samgmn., að þetta yrði gert, og ég óskaði eftir, að fulltrúi flugmanna í fyrrnefndri deilu mætti hjá n. og gerði henni grein fyrir þeim samningum, sem gerðir voru í fyrravor, fimm dögum eftir að brbl. voru gefin út, og okkur er fullkunnugt um að voru gerðir, jafnframt að við fengjum gerðardóminn, sem féll eða okkur er tjáð að hafi fallið í september, held ég, að það hafi verið, um það, hvernig kjör flugmanna skyldu verða. Ég vildi kynna mér þetta hvort tveggja. En meiri hl. samgmn., sá meiri hl., sem mælir með samþykkt þessa frv., vildi ekki fallast á það, taldi enga nauðsyn á að kanna þetta meira. Þess vegna var það ekki gert.
Að öðru leyti skal ég ekki fara mikið út í þetta mál. Ég álít höfuðatriðið í þessu máli og hið langalvarlegasta, að það er farið að bera anzi mikið á því, þegar launastéttirnar og atvinnurekendur eiga í deilum, að þá sé gripið til þess að gefa út brbl., og ég hef fulla ástæðu til að ætla, að atvinnurekendur séu farnir að nota sér þetta, og geri ekki samninga, af því að þeir eigi von á því, að þetta verði leyst með brbl., eins og þarna var gert. Það tel ég alvarlegt og sérstaklega alvarlegt að því leyti, að með þessu er verið að þurrka út samningsréttinn. Það verður ekkert úr samningsrétti, ef þetta á að framkvæma svona. Það tel ég mjög alvarlegt.
Hæstv. ráðh. leggur áherzlu á, að frv. verði samþykkt, og það er ég ekki að lá honum, fyrst hann gaf brbl. út, þó að hann vilji það. Bæði er það skylda samkvæmt stjórnarskránni að leggja brbl. fyrir næsta þing og það væri a.m.k. ekki eðlilegt, að hann óskaði eftir því, að frv. yrði fellt. En brbl. hafa oft verið gefin út áður og nokkrum sinnum, að ég ætla, með þeim ákvæðum, að þau gildi til ákveðins tíma, og eins er um þessi. Ég man eftir brbl., sem féllu sjálfkrafa úr gildi, mig minnir 1. des., og einhver fleiri lög munu hafa verið svipað úr garði gerð. Þessi lög falla sjálfkrafa úr gildi 15. maí n.k. Nú hefði ég talið alveg eins skynsamlegt af hæstv. ráðh. að bíða með þetta til þess að vita, hvort þingið dragist ekki til 15. maí, svo að l. yrðu sjálfdauð, eins og hliðstæð lög sum hafa orðið áður. Þá hafa menn sloppið vel frá þessu. Sannleikurinn er sá, að það er varla ómaksins vert að vera að samþykkja þetta frv., hvernig sem menn líta á efni þess, þegar allir vita, að þessir aðilar sömdu um sín kjör fimm dögum eftir að brbl. voru gefin út. Svo fellur gerðardómur um þetta í september, að ég ætla, ágúst eða september, sem enginn maður lítur á og enginn hefur farið eftir. Loks eru gerðir nýir samningar núna í janúar, sem taka ýmsu öðru fram, og ég get ekki betur séð en þeir samningar séu algert lagabrot. Brbl. eru í gildi enn, og í 1. gr. þessara l. segir, að hæstiréttur tilnefni þrjá menn í gerðardóm, sem ákveði kaup og kjör atvinnuflugmanna og flugvélstjóra í Félagi ísl. atvinnuflugmanna og Flugvirkjafélagi Íslands við störf fyrir íslenzk flugfélög. Þetta er í fullu gildi. Ég veit ekki, með hvaða lagaheimild þessir aðilar hafa verið að semja um daginn. Er þetta ekki algert brot á þessari 1. gr.? Á þessu geta menn nú séð, hvað brbl. eru tekin alvarlega.
Ég held, að það sé ekkert ofmælt hjá okkur, sem minni hl. samgmn. skipum, að það sé ekki ástæða til að samþykkja þessi lög. Það hefur aldrei verið farið eftir þeim. Það er farið að gera nýja samninga þvert ofan í lögin. Þess vegna tel ég eðlilegt að fella frv., eins og greint er frá í okkar nál. En frá sjónarmiði hæstv. ráðh. hefði verið mjög skynsamlegt að bíða svolítið og vita, hvort frv. hefði ekki fengið hægari og minna áberandi dauðdaga.