16.12.1969
Sameinað þing: 24. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (90)
1. mál, fjárlög 1970
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Hv. fjvn. hefur nú flutt skriflega brtt., sem búið er að samþykkja að taka hér á dagskrá með afbrigðum um það, að til Þjóðdansafélags Reykjavíkur verði veittar 50 þús. kr. vegna utanfararstyrks á þjóðdansamót, sem halda á í Stokkhólmi á þessu sumri og í tilefni af þeim tillögu flutningi vil ég lýsa því yfir fyrir mína hönd og hv. 1. þm. Vestf., að brtt. okkar á þskj. 189, II, þar sem gert var ráð fyrir 105 þús. kr. fjárveitingu í þessu skyni, er tekin aftur. Jafnframt vil ég færa fjvn. þakkir okkar fyrir að hafa tekið málaleitan okkar til greina. Þó að ég hefði að vísu kosið, að hægt hefði verið að koma til fulls til móts við hana, þá met ég þessa fjárveitingu og lít á hana sem viðurkenningu á starfi þessa félags, sem ég reyndi að gera grein fyrir í örstuttu máli við umr. hér fyrr í dag.