27.04.1970
Efri deild: 81. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (903)

29. mál, gerðardómur í kjaradeilu atvinnuflugmanna

Frsm. meiri hl. (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Eins og hv. dm. sjá, er nál. ekki komið á borð þeirra, en málið er gamalt og er til staðfestingar á brbl. um lausn á kjaradeilu atvinnuflugmanna og flugvélstjóra og fór hér í gegnum d. 17. marz s.l. Samgmn. náði ekki samstöðu um stuðning við frv., og meiri hl. vill mæla með samþykkt þess, en minni hl. gegn samþykkt frv. Því miður liggja nál. ekki fyrir, og ég mun ekki hafa lengri framsögu við málið. Þetta er 29. mál. Hv. þm. geta skoðað grg. eða það, sem fylgir frv., en l. gilda til 15. maí 1970, og þess vegna þarf staðfesting á þeim að komast í gegn á yfirstandandi þingi.