09.04.1970
Efri deild: 67. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (909)

206. mál, kaup á sex skuttogurum

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Togaraútgerð á Íslandi hefur frá öndverðu verið mikilvægur þáttur í sjávarútvegi Íslendinga. Miklar sveiflur hafa þó orðið á afkomu hans. Hefur sú staðreynd mestu ráðið um það, hvenær endurnýjun þessara framleiðslutækja hefur átt sér stað. Mætti í því sambandi jafnvel tala um kynslóðir togaranna. Of langt tal yrði þó að rekja hér sögu togaraútgerðar á Íslandi frá upphafi. Þó skal rifjað upp, að á árunum fyrir síðustu heimsstyrjöld var afkoma togaraútgerðarinnar slæm. Skipin voru gömul og úr sér gengin, en fjármagn lítið til úrbóta. Samt sem áður voru það togararnir, sem mest áhrif höfðu á hag Íslendinga á stríðsárunum. Vegna ófriðarástandsins kom það í hlut togaranna að flytja afla sinn á erlendan markað. Þá lögðu togararnir að vissu leyti grundvöll að velmegun eftirstríðsáranna.

Eitt fyrsta verk ríkisstj. eftir stríðið var að semja um kaup á nýjum togurum. Árin 1945 og 1946 samdi hún um smíði 32 togara í Bretlandi, og síðar, árið 1948, var svo samið um smíði 10 togara til viðbótar.

Fyrstu árin eftir styrjöldina gekk togaraútgerð sæmilega, en þegar frá leið, jukust erfiðleikar útgerðarinnar, m.a. vegna síhækkandi kostnaðar. En hér kom einnig annað til. Landhelgin var stækkuð árin 1950 og 1952, og var íslenzki togaraflotinn þá einnig látinn víkja úr fiskveiðilögsögunni. Útfærsla fiskveiðilandhelginnar hófst með lokun Húnaflóa árið 1950, og í kjölfar þeirrar ráðstöfunar var landhelgin færð út í 4 mílur árið 1952. Voru þá grunnlínupunktar settir á yztu annes og þar með lokað fjörðum og flóum. Árið 1958 var landhelgin færð út í 12 mílur, og loks árið 1961 var grunnlínupunktum breytt, og voru þá innan landhelgislínu allstór og mikilvæg svæði út af Faxaflóa, Húnaflóa, Héraðsflóa og á Selvogsbanka, sem til þess tíma höfðu verið heimil togurum til veiða. Þess skal þó getið, að landhelgisútfærslan tók ekki að fullu til íslenzkra togara, en samt sem áður töldu margir, að veiðisvæði togaranna hefðu verið rýrð um 60–80% með öllum þessum aðgerðum.

Eftir 1956, er afli fór minnkandi á Barentshafi og þar í grennd, færðu togararnir sig í auknum mæli vestur á bóginn til Grænlands, Labrador og Nýfundnalands. Einnig jókst sóknin á heimamiðin hér við Ísland. Árin 1958 og 1959 fundust mjög auðug karfamið við austurströnd Norður-Ameríku, og var þar um að ræða uppgripaafla um 2–3 ára skeið. Þetta leiddi enn á ný til smíði nokkurra nýtízku togara, stærri en þeirra, sem áður höfðu verið í íslenzka togaraflotanum. Þegar hin gjöfulu karfamið við Labrador og Nýfundnaland voru uppurin upp úr 1960, voru heimamiðin nær þau einu, sem sótt var á mestan hluta ársins, en skerðing þessara miða hafði þá þegar orðið, eins og áður er að vikið, mjög tilfinnanleg fyrir togarana.

Þróun aflamarkaðanna á árunum eftir 1960 var óhagstæð og átti það við um allra þjóða togara. Hins vegar fór sókn stórra verksmiðjutogara á miðin á Vestur-Atlantshafi vaxandi, og hefur mátt heita, að þangað hafi vaxandi flota þessara skipa frá Vestur-Evrópu að langmestu leyti verið stefnt. Þessi þróun eftir 1960 kom mjög niður á rekstri togaranna, og þrátt fyrir nauðsyn þess að endurnýja þann skipakost, sem fyrir var, varð ekki vart við neinn áhuga eigenda skipanna í þá átt. Eins og kunnugt er, hafa gengisbreytingin haustið 1968 og þær ráðstafanir, sem gerðar voru í sambandi við hana, verulega breytt rekstrargrundvelli togaraútgerðarinnar til hins betra frá því, sem áður var. Hefur afkoma þessara veiða stórbatnað við þessar ráðstafanir. Í stað áhugaleysis ríkir í fyrsta sinn um langt árabil nokkur bjartsýni um endurnýjun á þessum framleiðslutækjum. Er hér um að ræða eina meginástæðu þess, að frv. þetta er hér lagt fram, en þó kemur fleira til.

Hinar miklu síldveiðar á fyrra helmingi þessa áratugs, sem nú er að líða, og hagstætt verðlag á afurðum síldveiðanna ýttu mjög undir uppbyggingu þessa flota, sem hentugur var fyrir þær veiðar. Togararnir gátu hins vegar ekki keppt við síldveiðiflotann um sjómennina, m.a. vegna mjög mikils afla hins síðarnefnda, sem aftur leiddi til þess, að fjármagnið leitaði þangað. Þessi um of einhæfa þróun í uppbyggingu íslenzka fiskiskipaflotans hefur lýst sér í því, að borið hefur á skorti á hráefni til þýðingarmestu greinar fiskiðnaðarins, frystiiðnaðarins. Nauðsyn ber því til að gera ráðstafanir til aukinnar hráefnisöflunar fyrir frystihúsin.

Ein afleiðingin af samdrætti togaraútgerðarinnar hefur orðið sú, að útgerðin hefur færzt á fáa staði og þýðing togarafisksins er staðbundnari en var á tímabili, þegar togararnir voru gerðir út meira og minna frá öllum landsfjórðungum. Enn fremur er rétt að benda á, að þróun nýrra skipagerða hefur komið til, sem nauðsynlegt er að Íslendingar kynnist af eigin raun. Síðast, en ekki sízt, ber að huga að því, að þær staðreyndir hafa skapazt í fiskveiðum á N.-Atlantshafi, að mikilvægir fiskstofnar hafa gengið til þurrðar. Er því fyrirsjáanlegt, að gera verður ráðstafanir þeim til verndar. Fyrir Íslendinga er því mikil nauðsyn að halda ekki aðeins sínum hlut á hinum hefðbundnu veiðisvæðum umhverfis landið, heldur einnig að skapa sér sem bezta aðstöðu til að veiða á fjarlægum miðum með þeim skipum, sem til þess duga. Í þeim efnum verður togaraflotinn þungur á metunum.

Frv. það, sem hér liggur fyrir, er árangur af starfi n., sem skipuð var fyrir réttum 3 árum, eða 6. apríl 1967, til að gera tillögur um kaup á nýjum skuttogurum. Í n. eiga sæti Davíð Ólafsson, þáverandi fiskimálastjóri, sem jafnframt er form. n., Jón Axel Pétursson bankastjóri, til vara Jónas G. Rafnar bankastjóri, tilnefndir af Fiskveiðasjóði Íslands, Loftur Júlíusson skipstjóri, til vara Páll Guðmundsson skipstjóri og Ingólfur Stefánsson skipstjóri, tilnefndir af Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Loftur Bjarnason útgerðarmaður og Vilhelm Þorsteinsson framkvstj., til vara Matthías Jónasson framkvstj, og Valdimar Indriðason framkvstj., tilnefndir af Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda, og Pétur Sigurðsson alþm., til vara Magnús Guðmundsson matsveinn, tilnefndir af Sjómannasambandi Íslands.

Eftir að togaranefndin hafði gert ítarlegar athuganir og rekstraráætlanir, gerði hún till. um smíði á skuttogara um 1000 brúttórúmlestir að stærð eða 59 m að lengd. Hafa að undanförnu farið fram viðræður af hálfu rn. við þá aðila, sem áhuga hafa sýnt um kaup á slíkum togurum. Niðurstöður viðræðnanna liggja ekki endanlega fyrir og því ekki ákveðið enn um kaupendur. Ekki er vitað endanlega um þau kjör, er skipin geta fengizt á. Lán og lánskjör frá hugsanlegum skipasmíðastöðvum munu ekki liggja fyrir, fyrr en útboðsfrestur er liðinn, en ríkisstj. hefur falið togaranefnd að bjóða út smíði 6 skipa af umræddri gerð og stærð á opnum alþjóðamarkaði. Hér er um að ræða að uppfylla sérstakar þarfir íslenzks sjávarútvegs, sem ekki verða uppfylltar eingöngu með minni gerðum skipa, og er þar að leita raka fyrir því, að farið er út á þá óvenjulegu braut að styrkja smíði þeirra sérstaklega með framlagi af ríkisfé. Eru þetta hliðstæðar ráðstafanir og aðrar togaraútgerðarþjóðir við N.-Atlantshaf hafa gert að undanförnu. Þá er og gert ráð fyrir tiltekinni lánafyrirgreiðslu af hálfu ríkisvaldsins.

Ekki þarf að rekja efni einstakra greina frv., enda nánar gerð grein fyrir efni þeirra í aths. við það. Þó skal þess getið, að gert er ráð fyrir að lán fáist með skipunum, er nemi 80% af byggingarkostnaði þeirra. Af þeim 20%, sem eftir standa, er áætlað, að væntanlegir kaupendur greiði 7.5%, sveitarfélag það, sem skipið verður gert út frá, leggi fram önnur 7.5% og loks að 5% komi svo frá ríkinu. Enn fremur leggi ríkið fram sem svarar 2.5% af byggingarkostnaðinum, og verði því fé varið til útbúnaðar á skipunum, þannig að heildarframlag ríkisins nemi sem svarar 7.5% af byggingarkostnaði. Gert er ráð fyrir, að framlag ríkisins verði endurgreitt, en þó ekki fyrr en öll lán hafa verið greidd, og þá án vaxta. Gert er ráð fyrir, að byggingarlán verði yfirtekið af ríkisábyrgðasjóði og endurlánað til allt að 18 ára. Þá er gengið út frá því, að kaupendur skipanna skuli sem fyrr greiða ákveðinn hundraðshluta af brúttóaflaverðmæti þeirra til að standa undir greiðslum afborgana og vaxta lánanna. Um það verður að setja nánari reglur, ef frv. nær fram að ganga. Hafa verið samdir sérstakir skilmálar um kaup á þessum togurum og gerðar áætlanir um greiðslur afborgana og vaxta.

Eins og ég sagði í upphafi, hefur gætt mikils ójafnvægis í endurnýjun togaraflotans. Vonandi verður sú endurnýjun, sem nú væntanlega á sér stað, upphaf þess, að togaraflotinn verði í framtíðinni endurnýjaður og oftar og jafnar en verið hefur. Þurfa Íslendingar að eiga þess kost á hverjum tíma að kynnast því fullkomnasta í þessu efni, sem um er að ræða. Mun það hafa verið stefna ríkisstj. að stuðla að stöðugri og jafnari endurnýjun þessara framleiðslutækja í framtíðinni. Frv. það, sem hér er lagt fram, hefur að geyma sérstakar ráðstafanir til eflingar íslenzkum sjávarútvegi, sem mun leiða til aukinnar hráefnisöflunar, betri nýtingar frystiiðnaðarins og áframhaldandi þátttöku Íslendinga í fiskveiðum á mikilvægum fiskimiðum, sem þeim er nauðsynlegt að tryggja sér aðgang að.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa um þetta frv. fleiri orð á þessu stigi málsins, en geri till. um, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.