25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
206. mál, kaup á sex skuttogurum
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil á margan hátt taka undir þau orð, sem hv. síðasti ræðumaður viðhafði, er hann taldi, að það frv., sem hér er til umr., gangi alls ekki nógu langt til hjálpar þessari tegund útgerðar, sem er nú margrædd hér á hæstv. Alþ. og reyndar víðar en hér. Ég vil þó hins vegar benda honum á það, að það eru þó til einstaklingar í dag, sem telja sig geta ráðizt í þessa útgerð, að vísu vegna þess, að þeir höfðu nokkurn grundvöll til þess að ráðast í þessa útgerð, sem ég veit, að togaraútgerðarmenn almennt í dag hafa alls ekki. Persónulega hefði ég viljað, að lengra hefði verið gengið, talið það nauðsynlegt, ekki sízt vegna þess, — og þá vil ég nú aðeins koma að orðum hv. þm., Björns Pálssonar, 3. þm. Norðurl. v., er hann fór að taka inn í þetta dæmi ströndina alla,..— að það er staðreynd, að það eru fimm staðir hér á Íslandi í dag, sem hafa lagt gífurlega mikið upp úr þessum atvinnurekstri, hafa stundað hann og hafa talið það ómetanlegt vegna sinnar atvinnu. Persónulega álít ég, að þetta frv., sem nú er lagt fram, sé kannske fyrst og fremst til þess að koma á móti þessum fimm stöðum á Íslandi, þótt við heyrum hins vegar, að síðasti ræðumaður telji þar alls ekki nógu langt gengið, og veit ég þá, að hann á við það byggðarlag, sem hann kemur frá. En samt sem áður hafa hvorki ríkisstj. né lánastofnanir hér á Íslandi treyst sér til þess að ganga lengra, þótt mikið hafi gengið á að reyna að fá betri kjör, en þau hafa ekki fengizt, m.a. vegna þess, að það eru menn hér á Alþ: sem telja, að þótt þessi útgerð, sem er kannske á margan hátt lífsskilyrði þeirra staða, sem ég hef þegar getið um, sé í veði, þá megi ekki koma henni til hjálpar á þann hátt, sem hér er gert. Ég leyfi mér að fullyrða, að sú togaraútgerð, sem nú er á Íslandi, verður búin að vera eftir, ég vil segja 4–5 ár, ef ekkert verður að gert. Við komum kannske til með að eiga 4–5 skip eftir það. Hin skipin eru komin svo langt fram yfir það, að skynsamlegt geti talizt að reka þau, jafnvel þótt þau hin sömu skip hafi verið fengsæl. Við getum tekið dæmi um eitt skip Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem skilar á 21 degi meðalafla Vestmannaeyjabáta, sem hafa staðið sig bezt á s.l. vertíð. Þarna eru um borð 28–30 menn, sem skila þessum afla, og ef við höfum þann góða hag eða þá góðu afkomu, sem ég veit að togararnir hafa skilað í vetur, þá mundi ég huga að því, að slíkir tímar hafa verið hjá okkur áður, þótt þeir hafi átt sínar lægðir eins og vélbátaflotinn og önnur útgerð á Íslandi. Við skulum ekki ganga fram hjá því, hafandi þetta í huga, að þetta er útgerð, sem við eigum auðvitað aldrei nokkurn tíma að leggja niður. Hún er nauðsyn, ekki aðeins fyrir þá staði, sem reka togaraútgerð í dag, heldur og aðra staði, eins og komið hefur fram hjá þeim aðilum, sem hafa rætt um þessi mál.
Ég tek heils hugar undir með þeim, sem hér hafa talað um það á þann veg, að það séu staðir allt í kringum land, sem þurfi að eignast togara til þess að landa afla, ekki aðeins hjá sér, heldur eiga þeir skilyrðislaust líka að geta leitað til annarra staða erlendis, þegar aflaverðmætið verður svo mikið, að það fari langt fram úr öllu, sem gæti hugsast með kannske margfaldri vinnslu hér heima. Auðvitað á ekki að stöðva neina útgerð þá, því að við eigum að geta notið slíkra hlunninda, þegar þannig stendur á.
Hins vegar greinir menn á, og ég veit, að það hefur orðið þó nokkur ágreiningur um það, hvar ætti að skera í sundur. Á að láta þessi sérstöku fríðindi, sem okkar togarar svokölluðu fá að njóta með þessu frv., ná út yfir allan flotann, og eru þau yfirleitt fríðindi fyrir allan flotann, eða hefur önnur tegund flotans kannske meiri fríðindi í dag? Þar á ég við bátaflotann. Eru það kannske ekki miklu meiri hlunnindi, sem bátaflotinn nýtur? Hann getur fengið allt að 90% að láni. Að vísu er talað um okurvexti, en eru það ekki líka okurvextir, þegar við þurfum að setja á okkar nýja, væntanlega togaraflota bæði gjaldeyrisklásúlur og okurvexti, jafnvel þótt um sé að ræða 7.5% frá ríkinu, sem þarna kemur til greina sem framlag, sem þó eru viss ákvæði um, sem ég hef aldrei kunnað að meta? Hitt hlýtur að vera bæjarfélaganna á hverjum stað, hvað þau vilja gera fyrir þessa eða aðra útgerð. Ég þekki það vegna veru minnar í nokkur ár í atvinnuleysistryggingasjóði, sem hefur m.a. lánað peninga til atvinnujöfnunarsjóðs, sem hefur staðið að því að kaupa skip frá Reykjavík, sem ekki hefur notið hlunninda atvinnujöfnunarsjóðs, að það eru bæjar- og sveitarfélögin á þessum stöðum, sem hafa tekið þátt í því að ábyrgjast lán og lána beint, til þess að svo mætti verða, að þessi skip okkar gætu komizt til þeirra, sem, eins og hv. þm. Björn Pálsson benti réttilega á, hefur orðið þeim til stórkostlegs framdráttar, og auðvitað þurfa fleiri slík skip og stærri að koma inn í það dæmi.
Hvar á að skera í sundur með það, hvort við séum að tala um vélbát, dagróðrabát, landróðrabát eða togara? Ég held, að þingið hafi á nokkurn hátt gert það á sínum tíma með ákvörðun um það, hverjir gætu notið landhelginnar. Ég vil meina það, að við þurfum nú umfram allt að tala um togara, sem eru úthafstogarar, togara, sem geta sótt á fjarlæg mið, séu ekki hér á heimamiðum, nema þegar þannig aflast og tækifæri gefast til að þeir geti komið með nýjan og ferskan afla til vinnslustöðvanna hér við land, sem þeir geta auðvitað líka gert af fjarlægum miðum.
En vegna þeirra bollalegginga, sem hv. 3. þm. Norðurl. v. var að hafa um það, að það væri tiltölulega sama, hvort um væri að ræða 300 tonna skip eða 1000 tonna skip, get ég ekki annað en spurt þennan ágæta þm.: Var það sama fyrir hann, þegar hann var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd, hvort um væri að ræða opna trillu eða Húna 1, þegar hann kom þangað fyrst? Mig minnir, að ég hafi einhvern tíma lesið eða heyrt, hvílíka býsn og dásemd um var að ræða, þegar það skip kom þangað, og vissulega var það það miðað við það, sem fyrir var.
1000 tonna skuttogari í dag getur stundað veiðar í N.-Atlantshafi við flestar aðstæður og á flestum miðum. Ég vil alveg hiklaust halda því fram, að 600 tonna skip geti ekki gert það. Þau byggðarlög, sem búa við togaraútgerð í dag og ætla sér að búa við togaraútgerð og telja hana nauðsyn fyrir sig og sína fiskvinnslu og sitt athafnalíf, ætla sér ekki að gera út minni báta, sem koma daglega að landi. Hin stóru skip eiga, þó að þau leiti á grunnmið í öðru eins aflamagni og verið hefur þar síðustu vikurnar, að leita víða til fanga. Ég vil segja það, ekki aðeins útgerðarinnar vegna, heldur líka þeirra, sem um borð í skipunum eru, að þeir eiga fyllilega skilið það öryggi, sem slíkt skip hefur fram yfir minni skipin í N.-Atlantshafinu og norður við Grænland og Nýfundnaland í vetrarveðrum.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa mörg orð um þetta frv. Ég tek hins vegar heils hugar undir það, þótt ég verði ekki fylgjandi því að þessu sinni, að þær brtt., sem hér hafa komið fram um minni skipin, nái fram að ganga, einfaldlega vegna þess, að ég hef sjálfur lýst því yfir við minni hl. í sjútvn., að ég telji ekki aðeins rétt, heldur og nauðsynlegt, að þessum málum verði ráðið til lykta á næsta hausti. Hins vegar hafa ýmis formsatriði ekki verið leyst í sambandi við bæði rekstraráætlanir og annað, eins og hv. þm. Lúðvík Jósefsson gat hér um áðan, og ég tel alveg sjálfsagt, að menn bindi sig ekki við 1000 tonna togara. En hv. sjútvrn., sem þetta frv. flytur, hefur ekki fengið till. um þessa stærð út í loftið, heldur af mikilli og góðri athugun, þar sem það m.a. var ekki aðeins borið undir helztu togaraútgerðarmenn, sem stunda togaraútgerð í dag, og miðað við reynslu nágrannaþjóða okkar, heldur og þeirra togaraskipstjóra, sem bezt hafa sýnt hæfni sína á síðustu misserum og árum. Þannig er ekki verið að segja það um leið, að verið sé að fara í vitlausa stærð, þótt það séu teknir sex togarar af þessari stærð.
Hins vegar hefur það líka legið ljóst fyrir, að ákveðnir staðir hér á landi þurfa á minni skipum að halda, sem geta líka sótt, ekki aðeins hér á grunnmið og mið landgrunns, heldur líka á fjarlægari mið. Og ég er heils hugar fylgjandi því, að ríkisstj. vinni að því í sumar að útbúa till. um fyrirgreiðslu við slík skip, áður en þing kemur saman að hausti. En ég tel, að þessi lausn og sú fyrirgreiðsla, sem er ætluð með þessu frv., sé svo nauðsynleg og brýn, að hana megi ekki daga uppi á þessu þingi. Enda hef ég heyrt það á hv. þm. stjórnarandstöðunnar, þótt þeir hafi ekki sýnt algjöra samstöðu með okkur um okkar nál., að þeir hafa hinn sama hug, og fyrir það vil ég þakka þeim.
Vegna brtt., sem kom fram hjá hv. þm. Lúðvík Jósefssyni í sambandi við verksmiðjuskuttogara, þá vil ég líka taka það fram hér, að ég tel nauðsynlegt fyrir íslenzku þjóðina að eignast slíkt skip. Ég hef marglýst þessu yfir opinberlega, og það er eiginlega til skammar fyrir íslenzku þjóðina, mestu fiskveiðiþjóð á norðurhveli jarðar, að slík skip skuli ekki vera í hennar eigu. Ég hef hins vegar haft þá skoðun, að áður en við gengjum út í kaup á slíku skipi, miðað við að við erum fjárvana þjóð á margan hátt, þá ættum við frekar að stíga það spor, sem við erum að stíga nú, og næsta skrefið tel ég vera að kaupa nokkra skuttogara af minni gerð til staðsetningar allt í kringum land.
Ég mótmæli um leið þeirri skoðun, að þessir stærri togarar muni síður landa afla sínum hér heima og auka atvinnu en minni togararnir, þótt ég taki það líka fram, að þessi skip eiga að hafa allan rétt m.a. vegna skipshafna sinna, til þess að leita þess markaðar, sem beztur er hverju sinni. Ef menn vilja kosta einhverju til, til þess að landa hér heima til þess að auka atvinnu, þá verða fleiri að taka þátt í því en skipshöfnin.
Að svo mæltu vil ég aðeins lýsa yfir því, að ég styð þetta frv., eins og það er komið fram. Ég mun greiða atkv. gegn brtt. í trausti þess, að Alþingi Íslendinga og ríkisstj. beiti sér fyrir því, að ráðið verði fram úr þeim vandamálum, sem þar hafa komið fram og bent er á í brtt.