25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í B-deild Alþingistíðinda. (941)
206. mál, kaup á sex skuttogurum
Frsm. 1. minni hl. (Björn Pálsson):
Herra forseti. Örfá orð, ég hef ekki miklu að svara. Hv. 10. þm. Reykv. hélt hér snjalla ræðu, eins og við var að búast. Hann gerði mikið úr því, að þessi stóru skip gætu verið að í lakara veðri og minni hætta væri að vera á þeim. Þetta er vafalaust rétt, en hitt hygg ég, að það verði ekki mikill ágóði af því að veiða norður í höfum eða vestur við Grænland í stórhríðum, og ef ís ræki mikið í kringum þau, þá hygg ég, að þau væru ekkert betri en minni skipin, þ.e. ef þau verða fyrir stórum jökum eða öðru slíku. Satt að segja legg ég ákaflega lítið upp úr því að vera að veiða í vitlausu veðri, hvort það eru heldur meðalskip eða stór skip. Ég held, að það verði enginn auðugur af því og það verði á engan hátt hagkvæmt.
Ég hef átt tal um það við Tryggva Ófeigsson, hvort þessir nýju skuttogarar þeirra mundu geta verið að í miklu verra veðri en togarar hans. Hann telur það ekki vera. Hann segir, að sínir togarar hafi veitt á svipuðum stöðum og það muni ekki öllu. Ég get persónulega ekki fullyrt um þetta, en hitt er ég viss um, að þótt þetta séu stærri skip og að einhverju leyti betur útbúin, þá ráða þau ekki við vitlaus veður, þau hafa ekki aðstöðu til að veiða í vitlausu veðri, enda mundi það ekki borga sig.
Það kom fram hjá hv. þm., að hann leggur mikið upp úr því, að þessum minni togskipum, sem ég var að tala um, verði veitt fyrirgreiðsla á næsta hausti. Það var í sjálfu sér ánægjulegt að heyra. Ég er hv. þm. þakklátur fyrir, að hann hefur þessa skoðun, en það, sem fyrir mér vakir, er, að mér finnst þetta nokkuð seint, af því að ég veit, að það eru ýmsir, sem hafa mikinn áhuga fyrir að fá þessi skip sem allra fyrst. Það er eins með þá og Reykjavík og aðra staði, sem leggja mikið upp úr því að fá þetta ákveðið strax. Það tekur sinn tíma að undirbúa þessi mál og fá skipin smíðuð.
Það er hárrétt hjá hv. þm., að fyrir Reykjavík og Akureyri og þessa stærri staði er nauðsynlegt að hafa þessa stóru togara, það tók ég fram í minni ræðu. Þess vegna má ekki lá mér það, þó að ég telji mér skylt að vekja athygli á því, að það eru fleiri, sem þurfa að lifa og hafa aðra aðstöðu. Þess vegna legg ég talsvert upp úr því, ef mögulegt væri að fá hliðstæða fyrirgreiðslu eða loforð um hana nú þegar fyrir þau skip, sem henta minni bæjarfélögum. Ríkisstj. getur að sjálfsögðu gefið út brbl. eða gefið loforð, þó að þingið sé hætt að starfa. Ég efast ekkert um, að hæstv. ráðh. hlýtur að vera það ljóst, að þörf er fyrir þessi skip. Ég tel ekki sanngjarnt, eins og ég tók fram áðan, að þau njóti ekki hliðstæðrar lánafyrirgreiðslu og stærri togarar. Og þó að það sé ekki gert meira í bili en að lána 7.5% vaxtalaust, þá þykir mér ólíklegt, að þessi skip þurfi ekki, áður en langt um líður, meiri fyrirgreiðslu, annaðhvort með styrkjum, eins og þau hafa notið undanfarin ár, eða þá með eftirgjöf á skuldum eða einhverju slíku. En við skulum ekki vera að spá neinum hrakspám. Reynslan sker úr þessu.
Viðvíkjandi því, sem kom fram hjá hv. þm., að hann mótmælti því, að þessi stóru skip mundu ekki losa hér: Ég hef aldrei fullyrt neitt um það, að þau losuðu ekki hér. Hitt er ég sannfærður um, og það kom fram hjá hv. þm., að þau sigla frekar með aflann en minni skipin, enda er það eðlilegt.