25.04.1970
Neðri deild: 83. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í B-deild Alþingistíðinda. (942)
206. mál, kaup á sex skuttogurum
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður. Endurnýjun togaraflotans er eitt þeirra mála, sem hv. ríkisstj. hefur sofið allt of lengi á. Og það er sannast sagna komið á elleftu stund að ráðast í endurnýjun togaraflotans. Það mál hefur verið vanrækt allt of lengi, og þess vegna verður nú að gera svo stórt átak sem við höfum ýtrast afl til.
Ég tel, að þær till., sem fram eru komnar um endurnýjun togaraflotans, séu allar mjög svo eðlilegar og nauðsynlegar, þegar við lítum á, hvernig komið er. Það er auðvitað ekki fjarri sanni, sem hv. 10. þm. Reykv. sagði hér áðan, að ef ekki verður myndarlega á málinu tekið ekki síðar en á komandi hausti, þá vofir það yfir, að við höfum enga togaraútgerð. Það er mjög óhyggilegt að láta það dragast árum saman að endurnýja okkar fiskiskipaflota og hrökkva svo upp með andfælum einn góðan veðurdag, þegar í óefni er komið, og verða þá að gera slík átök, að það ofbýður okkar fjárhagslegu getu. En þannig var komið, þegar nýsköpunartogararnir voru keyptir. Þá var hér ekki um aðra togara að ræða en lítt sjófæra ryðkláfa, og þá varð að gera eitt heljarátak til þess að endurnýja togaraflotann, en af þessu leiðir aftur, að þau skip eru nú öll jafngömul og verða ónýt mjög um sömu mundir. Við erum enn að falla í þessa sömu gröf í stað þess að hafa á okkur andvara og sinna árlegri endurnýjunarþörf á togaraflotanum. Ég játa, að það væri geysilegt átak að byggja núna í einu 20 skip, 12 1000 tonna skip, 8 500–700 lesta skip og e.t.v. 2500–3000 lesta verksmiðjuskip. En þessa alls er þörf, ef við ætlum að sækja fram og láta ekki togaraútgerð lognast út af eða leggjast niður. En svo framarlega sem það er rétt, að hæstv. ríkisstj. telji ekki möguleika á að stíga stærra skref en hún gerir með því að leggja til, að byggðir séu sex 1000 lesta skuttogarar, þá er ég þeirrar skoðunar, að það hefði leyst úr meiri þörf, ef ekki yrði hægt að taka nema hluta af málinu til úrlausnar, víðar á landsbyggðinni að ráðast í það nú sem hluta af viðfangsefninu að byggja tíu 500 tonna skip. Og ég held, að ég hefði kosið það fremur, að frv. hefði verið um að byggja nú þegar tíu 500–600 tonna skip í staðinn fyrir sex 1000 tonna skip.
En ekki eru nú frammi till. um það, og mun ég þá í fyrsta lagi lýsa stuðningi mínum við þetta frv., þó að það taki ekki þann hluta málsins fyrir, sem ég hefði talið skynsamlegast. Einnig mun ég freista þess með öðrum hv. þm. að taka málið fyrir til úrlausnar allt saman, eins og það blasir við okkur, og ráðast í þetta heljarátak, þótt ég viti, að þar er teflt á tæpasta vað um fjárhagslega getu, að taka ákvörðun um að endurnýja togaraflotann með einu átaki með byggingu um 20 togskipa 500–1000 tonna og eitt verksmiðjuskip.
Það er óneitanlega veitt allmikil aðstoð til þess að greiða fyrir kaupum á þessum sex togurum. Þó er ég hræddur um það, að hin getuminni bæjarfélög geti ekki risið undir því að eignast þessi skip, og þyrftu þau þó að dreifast á ýmsa staði. Það má vel vera, að Reykjavík ráði við þetta, en ég efast um, að aðrir kaupstaðir geti það, og sennilega mun að því draga, að það verði meiri aðstoðar þörf.
Ég sé ekki, hvernig ætlað er, að þessi sex skip, sem frv. fjallar um, dreifist um landið. Ég hef séð það nýlega, að annar stjórnarflokkurinn hefur borið fram till. í borgarstjórn Reykjavíkur um það, að Bæjarútgerð Reykjavíkur endurnýi sig með fjórum skipum. Það er minni flokkurinn, en sá, sem segist hafa forystuna oft og tíðum í framfaramálunum. Hann hefur borið fram till. í borgarstjórninni um það. Það sá ég í Alþýðublaðinu rétt fyrir skemmstu, að bæjarútgerðin eigi ekki að stíga minna skref en það að kaupa fjögur skip í einum áfanga. Þá verður harla lítið eftir handa stóra flokknum og landsbyggðinni allri saman. Mér finnst þess vegna vera farið þarna af stað eins og það hafi ekki verið hlustað á stórhug og kröfugerð annars stjórnarflokksins. Nema þá að Sjálfstfl. ætli sér mjög lítinn hlut í þessari nauðsynlegu og aðkallandi uppbyggingu.
Ég hef lýst afstöðu minni til þessa máls. Ég hefði talið hyggilegra að byggja fleiri og smærri skip nú í fyrsta áfanga, ef það er skoðun ríkisstj., að ekki sé hægt að taka á endurnýjunarmálinu öllu nú. En væri hins vegar sú skoðun uppi, sem hv. 10. þm. Reykv. mælti fyrir hér áðan, að ekki væri neitt undanfæri um heildarendurnýjun togaraflotans nema fram á næsta haust, þá væri eðlilegast að sníða endurnýjunarmálinu öllu einn sameiginlegan ramma nú, þó að framkvæmdin yrði tekin í tveimur eða þremur áföngum. Það held ég væri eðlilegast, úr því við erum nú komin í slíkt óefni með þessi mál eftir allt of langan drátt, allt of langan svefn hæstv. ríkisstj. varðandi þessi grundvallarmál atvinnuveganna.