25.11.1970
Neðri deild: 23. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)
9. mál, Iðnlánasjóður
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég get vel komizt af með stutta aths., enda get ég tekið undir flest af því, sem hæstv. ráðh. sagði nú í síðustu ræðu sinni. En ég vildi aðeins segja nokkur orð í tilefni af því, sem hann sagði, að verið væri að gera samanburð á atvinnuvegum. Það er alveg rétt, að áður fyrr nutu sjávarútvegur og landbúnaður að ýmsu leyti forréttinda umfram iðnaðinn. En það gerðist eiginlega á þeim tíma, þegar iðnaðurinn var verndaður bæði með innflutningshöftum og tollum og hafði þess vegna alls ekki sambærilega aðstöðu við t. d. sjávarútveginn, sem þurfti að keppa á erlendum mörkuðum. Nú er hins vegar komið þannig, að innflutningshöftin eru úr sögunni — og við skulum vona, að það ástand geti haldizt áfram — en tollarnir einnig að hverfa, og nú stendur iðnaðurinn eiginlega orðið á sama grundvelli og sjávarútvegurinn, þ. e. a. s. hann verður annaðhvort að keppa á erlendum markaði ellegar hann verður að keppa á markaði hér heima, þar sem erlendir aðilar hafa sömu aðstöðu. Og þess vegna verður að vinna að því nú, ef iðnaðurinn á að standast þessa nýju samkeppni og þessa breyttu aðstöðu, að hann njóti t. d. alls ekki lakari kjara, hvort heldur er í skattamálum, lánamálum eða á öðrum sviðum, heldur en t. d. sjávarútvegurinn, því að staða þessara beggja atvinnugreina er nú nokkurn veginn að verða sú sama. Og þess vegna finnst mér ákaflega óeðlilegt, að á þeim tíma, sem t. d. sjávarútvegurinn þarf ekki að greiða nema 6½% vexti af stofnlánum sínum, — sem ég er alls ekki að segja, að sé of lágt og vildi gjarnan vera með í því, ef það væri hægt, að hafa þá lægri, — þá finnst mér það, að iðnaðurinn eigi að búa við hliðstæð vaxtakjör hvað stofnlánin snertir eða það eigi að vinna að því — og þess vegna hafi skeð hér í sumar alveg óeðlileg þróun, þegar vextir af stofnlánum iðnaðarins eru hækkaðir.