25.03.1971
Neðri deild: 69. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 955 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

258. mál, tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er komið frá hv. Ed. og var samþ. þar shlj. eftir ítarlega athugun n. þar í d. Það eina, sem menn hnutu um, var fyrirsögn þessa frv. Mönnum þótti hún kannske dálítið yfirborðsleg, en það var margauglýst eftir till. um betri fyrirsögn, en hún kom ekki fram þar í d. En vonandi kemur hún hér fram, ef allir orðhagir menn leggjast á eitt um að finna hana. Efni frv. hins vegar er það, að verið er að veita ákveðnum nýjum starfshópum, svokölluðum heilbrigðistæknum, ákveðið rúm í launalögum og tilgreina starfssvið þeirra nánara, þannig að sem ljósast megi verða. Eins og ég segi, samþykkti Ed. frv. einróma, og það er borið fram af mér sem heilbr.- og trmrh., en er byggt á áliti nefndar, sem starfað hefur að þessu undanfarna mánuði. Talið var eðlilegt og sjálfsagt að verða við þessum óskum, sem upphaflega komu frá Meinatæknafélagi Íslands, og mæli ég eindregið með því, að frv. nái fram að ganga, en vildi gjarnan ítreka tilmæli mín hér til orðhagra manna að spreyta sig á því að finna aðra og betri fyrirsögn á frv., en þó ekki svo lengi, að frv. dagaði uppi á þinginu, því að nauðsynlegt er, að frv. nái fram að ganga af ýmsum ástæðum og þá fyrst og fremst þeim, að umræddir aðilar hafa ekki fengið ákveðna stöðu í launaflokkum, en enginn ágreiningur er hins vegar um þeirra starfssvið, eins og lögin gera ráð fyrir. Ég tel ekki þörf á því, herra forseti, að hafa um frv. fleiri orð, en óska þess, að því verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.