22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

262. mál, Listasafn Íslands

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og fram kom í framsöguræðu hæstv. menntmrh. fyrir þessu frv. og þeim tveim, sem næst koma á eftir undir 12. og 13. dagskrárlið, þá er náið samhengi á milli þessara frv. allra, svo að ég mun láta þá framsögu, sem ég hef fyrir þessu máli, nægja einnig fyrir hinum tveimur frv.

En það, sem hér er um að ræða, er það, að núverandi ákvæði um, að tekjur af áfengislagabrotum skuli renna til Menningarsjóðs og menntamálaráðs, falli niður, en í þess stað verði Menningarsjóður leystur undan þeirri kvöð, sem á honum hvílir nú vegna framlaga til Listasafns Íslands og Vísindasjóðs, en aftur á móti er gert ráð fyrir því, að þessum stofnunum verði bættur upp tekjumissirinn með beinum framlögum úr ríkissjóði. Það mun beinlínis vera tekið fram í grg. fyrir a. m. k. einu þessara frv. — og eftir því, sem ég bezt man, þá kom það einnig fram í framsöguræðu hæstv. menntmrh. — að til álita mundi koma — og formlega séð hefði það kannske verið réttara, að núgildandi lögum um áfengislagabrotin yrði breytt til samræmis við þetta. En ég held, þó að ég sé ekki löglærður, að það sé réttur skilningur hjá mér, að almennt hljóti yngri lög að breyta ákvæðum eldri laga, ef lagaákvæðið ekki beinlínis stangast á við stjórnarskrána. Þar af leiðandi hefur n. ekki séð ástæðu til þess að hafa frumkvæði um slíka lagabreytingu, enda hef ég fengið um það upplýsingar frá hæstv. dómsmrh., að umrædd löggjöf verði endurskoðuð fyrir næsta þing, svo að af þessari ástæðu hefur n. ekki séð ástæðu til að hreyfa því máli. Að öðru leyti, herra forseti, leggur menntmn. til, að þessi þrjú frv., sem náið samhengi er þannig á milli, verði öll samþ. óbreytt. Ég vil aðeins taka það fram, að mér láðist að geta þess, þegar ég samdi nál., að einn hv. nm., hv. 3. landsk. þm., var fjarstaddur, þegar málin voru afgreidd. Þeir eru aðeins sex, sem hafa skrifað undir það.