18.03.1971
Neðri deild: 64. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (1145)
260. mál, fiskvinnsluskóli
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Forseti gat þess við fundarsetningu, að ég ásamt fleiri þm. hefði flutt brtt. við frv. það, sem hér liggur fyrir, en till. hafði þá enn ekki verið dreift á borð þm., en ég hafði kynnt hana hæstv, menntmrh. Í framsöguræðu gat hann þess, að hann styddi þessa till., og lagði til við þá n., sem frv. fengi til meðferðar, að taka hana til vinsamlegrar athugunar, og leyfi ég mér að þakka hæstv. ráðh. fyrir hans undirtektir.
Eins og fram hefur komið, voru fyrr á þinginu — í þingbyrjun — flutt hér frv. um fiskiðnskóla, það fyrra af hv. 3. þm. Norðurl. e. ásamt hv. 2. þm. Reykn. og það síðara flutt af mér — einnig um fiskiðnskóla. Við 1. umr. þeirra frv. tilkynnti hæstv. menntmrh., að hann hefði skipað n. til þess að gera till. um málið og vænti þess þá, að n. mundi skila áliti það fljótt, að hægt yrði að taka málið til umr. og afgreiðslu nú á þessu þingi. Því miður hefur það dregizt nokkuð lengur en ég hafði vonað, að n. þessi skilaði áliti, en hún hefur nú þegar gert það, og lagt hefur verið fram frv. á þskj. 516, sem byggt er á áliti og niðurstöðum þessarar n. Efnislega má segja, að hið nýja frv., sem hér er til umr., sé nokkuð svipað þeim tveimur frv., sem áður hafa verið rædd hér og flutt voru, eins og ég sagði áðan, í byrjun þingsins. Þó er það frv., sem nú er til umr., nokkuð ítarlegra en hin frv. voru, og tel ég, að vel fari, að stigið hafi verið heldur lengra en hin frv. gerðu ráð fyrir.
Ég gerði nokkra grein fyrir frv. mínu um fiskiðnskóla í Vestmannaeyjum, þegar það var lagt hér fram og tekið til umr., en mér þykir þó rétt að fara aðeins yfir efni þeirrar till., sem hér liggur fyrir, því að hún er efnislega nokkuð samhljóða því frv., sem ég lagði fram. Till. mín og þriggja annarra þm., sem nú hefur verið útbýtt á þskj. 560, er brtt. við 6. gr. frv., þar sem lagt er til, að gr. breytist á þann veg, að auk þess skóla, sem tilgreint er í 6. gr., að stofna skuli til, skuli stofnað til fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum, sem útskrifi fiskiðnaðarmenn og fiskvinnslumeistara samkv. 1. og 2. tölul. 2. gr., og námi við skólann skuli skipt í þrjár deildir, sbr. 1.–3. tölul. 10. gr. Einnig að heimilt skuli að fengnu samþykki rn. að setja á stofn framhaldsdeild, sbr. 4. gr., ef eða þegar þörf er talin á.
Þá er í brtt. gert ráð fyrir, að skipuð skuli sérstök skólanefnd fyrir hinn fyrirhugaða fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum og skuli n. skipuð á sama veg og gert er ráð fyrir í frv. að því undanskildu, að samtök fiskiðnaðarins í Vestmannaeyjum skuli tilnefna einn mann í n. í stað þess, að frv. gerir ráð fyrir, að Fiskimálaráð skuli skipa mann í n. þá, sem á að fara með málefni þess skóla, sem er tilgreindur á þskj. 516. Í Fiskimálaráði eru fulltrúar fiskiðnaðarins, en af því að hér er um sérmál að ræða í sambandi við fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum, þá er eðlilegt, að samtök fiskiðnaðarins þar tilnefni þennan mann — að okkar dómi, sem flytjum brtt.
Þá er og í brtt. gert ráð fyrir, að lögin gildi að öðru leyti um fiskvinnsluskólann í Vestmannaeyjum, að því er varðar greiðslu kostnaðar og annað, sem við getur átt að dómi rn. og afmarkað skal í reglugerð. Til þess að stofnað verði til fiskvinnsluskóla, þarf að sjálfsögðu nokkurn undirbúning og nokkurn viðbúnað, áður en skólinn getur tekið til starfa. Í Vestmannaeyjum hefur verið unnið að þessu máli í meira en heilt ár, og eitt atriði í sambandi við stofnun fiskvinnsluskólans, sem talið hefur verið nauðsynlegt, er, að það sé fyrir hendi rannsóknastofa í þágu fiskiðnaðarins. Þetta er að vísu enn ekki fyrir hendi í Vestmannaeyjum, en þetta hefur þegar verið ákveðið og útvegað fjármagn til þess að koma slíkri rannsóknastofu fiskiðnaðarins á stofn þar, og hefur verið haft náið samstarf við Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hér í Reykjavík, og er það ætlunin, ef af því verður, að mjög náið samstarf verði á milli þessara tveggja rannsóknastofnana.
Þá hefur þegar verið útvegað og er fyrir hendi húsnæði fyrir fiskiðnskóla í Vestmannaeyjum. Það hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja haft forgöngu um að útvega og hafa til reiðu, ef til skólans verður stofnað þar, og aðstaða til verklegrar kennslu er einnig fyrir hendi, þar sem forráðamenn fiskiðnaðarins þar hafa sagt, að nemendur væntanlegs fiskvinnsluskóla í Eyjum muni fá þar aðstöðu eftir því, sem skólanefnd skólans kann að telja nauðsynlegt á hverjum tíma. Einnig er aðstaða þar fyrir nemendur, sem sækja vildu skólann utan af landsbyggðinni. Á ég þar við heimavistaraðstöðu, sem einnig er fyrir hendi, þannig að segja má, að öll aðstaða til stofnunar fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum sé þegar fyrir hendi og þannig hafi verið frá málinu gengið, að það ætti ekki á nokkurn hátt að geta torveldað, að skólinn gæti tekið til starfa þegar á næsta hausti, ef samþ. verður frv. það, sem hér liggur fyrir, og brtt., sem ég ásamt þremur öðrum þm. hef flutt við það.
Ég hef áður látið það koma fram, að í sambandi við þessa hugmynd um stofnun fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum hefur verið bæði af einstaklingum og fyrirtækjum látið í té verulegt fjármagn til að koma skólanum á laggirnar og til að kosta þau tæki, sem með þarf til þess, að hann geti tekið til starfa — kennslutæki og annað. Einnig liggur hér fyrir á lestrarsal Alþ. erindi frá bæjarstjórn Vestmannaeyja, þar sem gefið er beint fyrirheit um það, að bæjarstjórn Vestmannaeyja sé fús til þess að ljá málinu allt það lið, sem í hennar valdi standi, og þar með talinn fjárstuðning einnig, ef með þyrfti til þess að koma skólanum á laggirnar, þannig að nái frv. fram að ganga og verði till. samþ., þá vil ég undirstrika það, sem ég sagði áðan, að ekkert ætti að geta komið í veg fyrir, að skólinn gæti tekið til starfa þegar á næsta hausti, og það er það, sem þeir menn heima í héraði hafa stefnt að, sem um þetta mál hafa fjallað. Ég hygg, að hvergi annars staðar hafi málið verið undirbúið á þennan veg, eins og ég hef nú lýst, að gert hafi verið á þessum stað.
Það má kannske spyrja, hvort þörf sé fyrir fiskvinnsluskóla í Vestmannaeyjum. Ég tel, að því sé fljótsvarað á jákvæðan hátt, því að það kom fram í skýrslu Fiskifélags Íslands yfir aflann á árinu 1971, að einmitt í þessari verstöð var landað um 25% af heildaraflanum, sem á land var lagður á síðasta ári. Ég tel, að þetta séu þegar út af fyrir sig nægjanleg rök fyrir því, að mjög sé eðlilegt, að stofnað verði til fiskiðnskóla á þessum stað. Í þessu sambandi, þar sem um jafnmikið aflamagn er að ræða í einni verstöð, ber að hafa það í huga, að þeim, sem í forsvari fyrir fiskiðnaðinn standa, hefur verið gert það mjög ljóst af þeim erlendu aðilum, sem kaupa fiskframleiðslu okkar, að mjög verði auknar allar þær kröfur, sem gerðar verða um hreinlæti við meðferð aflans og við vinnslu hans til útflutnings, þannig að þeir, sem þessi mál hafa með höndum, hafa þegar gert sér það ljóst, að mjög þarf að bæta úr mörgum hlutum.
Ég hygg, að menn geti orðið nokkuð sammála um það, að öruggasta undirstaðan til þess, að hægt verði að koma góðu skipulagi á þessi mál, að því er þetta atriði varðar, sé einmitt það, að þeir, sem við fiskiðnaðinn vinna, öðlist fullan skilning á því, hvaða verkefni þeir hafi með höndum og hversu mikils virði það sé þjóðfélagslega séð, að þar sé sem bezt að öllum hlutum staðið og fullt hreinlæti viðhaft. Það er einnig annað, sem mjög mælir með stofnun fiskiðnskóla, bæði á þessum stað og annars staðar, og það er, að þeir menn, sem við sjávarútveg og fiskvinnslu fást, hafa þegar gert sér það ljóst, að óvarlegt sé að reikna með auknu heildaraflamagni í framtíðinni, og það hlýtur að leiða til þess, að eigi útgerð og fiskiðnaður að geta haldið áfram með eðlilegum hætti, þá verður að stefna þar að meiri gjörvinnslu en þegar er gert. Það skal þó tekið fram, að það ber að meta það, að veruleg breyting hefur orðið í þessa átt nú hin síðari ár, en án efa verða enn þá meiri breytingar á því í þá átt að gjörvinna þann afla, sem á land kemur.
Það fer ekki hjá því, að bæði ég og aðrir, sem höfum með fiskvinnslu að gera, höfum orðið nokkuð varir við það, að þegar ungt fólk er spurt að því, hvað það geri eða hvað það starfi, þá segi það: Ja, ég vinn bara í frystihúsi, eða: Ég vinn bara við fiskvinnslu, þannig að manni getur fundizt, að þetta unga fólk telji það eitthvað niðrandi fyrir sig að vinna við fiskiðnaðinn. Ég tel, að á þessu þurfi að verða gerbreyting og fiskiðnaðurinn verði að skapa sér þann sess, að fólk gangi þar að störfum eins og við hvert annað starf og hvern annan iðnað í landinu. Einmitt þess vegna þarf að gefa því kost á að öðlast meiri þekkingu á öllum þessum málum, sem ég tel, að fiskiðnskóli hljóti að gera — ekki aðeins í sambandi við sjálfa vinnsluna, heldur muni og þessir aðilar öðlast þekkingu á því, hvers virði það er að meðhöndla rétt þá vöru, sem verið er að vinna úr, til þess að gæði hennar verði í samræmi við kröfur kaupenda og hún verði sú undirstaða undir efnahag þjóðarinnar, sem hún hefur verið og vonandi verður í framtíðinni. Ég segi þá, að allt ber að sama brunni með það, að þegar er orðið tímabært, eins og reyndar hefur komið fram hjá öllum ræðumönnum, sem um þetta hafa fjallað, að aukin þekking á þessum málum, bæði aukin verkmenntun og aukin bókleg þekking í sambandi við þessi mál, er orðin brýn nauðsyn fyrir fiskiðnaðinn í landinu í heild og þá að sjálfsögðu þjóðina í heild einnig.
Ef brtt. sú, sem hér er flutt á þskj. 560, nær fram að ganga, þýðir það auðvitað, að þá verður stofnað til tveggja fiskiðnskóla í landinu kannske samtímis. Einhverjum kann kannske að finnast þetta of stórt stökk í einu, en ég hygg bara með tilliti til þess, hve lengi hefur dregizt að koma þessum málum heilum í höfn, að þetta geti ekki talizt óeðlilegt, og ég tei það beinlínis nauðsynlegt, að þetta skref verði stigið, eins og nú hefur verið lagt til og fyrir liggur hér í sambandi við frv. á þskj. 516. Ef við lítum á það, að það er talin þjóðarnauðsyn — og ég hygg, að enginn efist um, að það sé rétt — að hér hafa verið starfandi tveir búnaðarskólar í landinu og nú er þegar ákveðið að setja á stofn hinn þriðja skóla, þá getur það ekki talizt neitt óeðlilegt, þó að starfandi séu samtímis tveir fiskvinnsluskólar hér á landi. Ég er sannfærður um það, að engum þm. dettur í hug, að það væri eðlilegt að fækka búnaðarskólunum, heldur munu menn almennt vera sammála um gildi þeirra og sammála um það, að nauðsynlegt sé að fjölga þessu með tilliti til aðstöðu beggja þessara atvinnugreina, sem báðar eru undirstöðuatvinnugreinar í efnahagslífi þjóðarinnar. Þess vegna tel ég það síður en svo nokkra goðgá, þó að til tveggja fiskvinnsluskóla verði stofnað nokkurn veginn samtímis eða á þessu og næsta ári.
Ég skal svo ekki hafa um þetta lengra mál, en vona, að málið nái fram að ganga á þessu þingi, og veltur þá að sjálfsögðu mest á því, að sú n., sem það fær til meðferðar, bregði skjótt við og skili sínu áliti hingað til þessarar hv. deildar.