01.04.1971
Efri deild: 86. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1167)
260. mál, fiskvinnsluskóli
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Sjútvn. hefur haft til athugunar frv. til l. um fiskvinnsluskóla og leggur til, að frv. verði samþ. með smávægilegri breytingu. Í fyrsta lagi teljum við rétt, að staðsetning skólans verði ekki ákveðin fyrir fram, þannig að hann skuli ákveðið staðsettur í Reykjavík. Við teljum, að fleiri staðir en Reykjavík ein komi til greina, og mér var kunnugt um það, að svo var einnig álit þeirrar n., sem upphaflega gerði drög að þessu frv. Segja má, að þegar á það er litið, hvað Íslendingar eiga mikið undir sjávarafla og vinnslu sjávarafurða, þá sé það vonum seinna, að komið sé á fót slíkri menntastofnun, sem hér um ræðir. Það mun hafa verið árið 1966, sem sett var á stofn svokölluð fiskiðnskólanefnd, og var formaður þeirrar n. Hjalti Einarsson efnaverkfræðingur. N. þessi, sem var allfjölmenn, hélt marga fundi um málið og skilaði síðan áliti. N. aflaði sér m. a. ítarlegra upplýsinga um þessi mál og um það, hvernig þeim væri skipað í nágrannalöndunum. Sérstaklega var athugað um það í Noregi, á hvaða stigi fiskiðnfræðsla hjá þeim væri. Það kemur fram í aths. við frv., að sú n., sem skipuð var þann 10. júlí s. l. og endanlega samdi það frv., sem hér liggur fyrir, hefur að verulegu leyti byggt á þeim álitsgerðum og till., sem fyrir lágu um málið.
Eins og fram kemur á þskj. nr. 635, bar sjútvn. Nd. fram nokkrar brtt. við frv. við afgreiðslu málsins í þeirri d. Ég tel, að allar þær breytingar hafi verið til bóta. Þá vil ég geta þess, að önnur breytingin, sem sjútvn. þessarar d. hefur leyft sér að bera fram, er einnig við 6. gr., en hún er um það, að á árunum 1972–1975 skuli enn fremur undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla 1. og 2. stigs á Akranesi auk Suðurnesja, eins og þar stendur. Akranes er, svo sem kunnugt er, allmikill fiskibær. Auk útgerðar eru þar fjögur frystihús, tvær niðursuðuverksmiðjur, reykhús og fiskmjölsverksmiðja. Það er því augljóst mál, að á Akranesi er full þörf fyrir menntastofnun þá, sem hér um ræðir.
Í 14. gr. frv. eru taldar upp þær helztu verklegar námsgreinar, sem kenna skal við skólann. Er það meðferð á nýjum fiski, ísun, flökun, frysting, söltun, flatning, síldarsöltun, herzla, reyking, niðursuða, framleiðsla fiskrétta, lifrarbræðsla, fiskmjölsframleiðsla o. s. frv. Allt eru þetta stórir þættir í okkar útflutningsframleiðslu, en sem verulega hefur skort á, að einstaklingar gætu aflað sér menntunar eða kunnáttu í að vinna að. Að vísu hafa um alllangt skeið verið starfrækt námskeið í fiskmati undir leiðsögn Fiskmats ríkisins, og hafa þessi námskeið komið að nokkru gagni.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja frekar um frv., en vænti þess, að brtt. n. verði samþ. og frv. þannig breyttu síðan vísað til 3. umr.