17.03.1971
Efri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (1178)

267. mál, laun forseta Íslands

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Það segir svo í stjórnarskránni, að laun forseta Íslands skuli ákveðin með lögum, og þannig hefur það verið og ákveðin launaupphæðin, 35 þús. kr., þegar það seinast var ákveðið. Ef þessu ætti að halda svo áfram, þá yrði Alþ. á hverjum tíma, þegar launabreytingar eru, — a. m. k. ef veruleg ástæða þykir til að breyta launakjörum forseta — að ákveða þau. Við athugun á því, hvernig endurskoða skyldi laun forsetans hefur nú komið upp sú hugmynd, að sennilega væri það eðlilegast eins og komið er, að Alþ. afsali þessu valdi sínu með löggjöf til kjaradóms og kveðið verði þá á um það, að laun forsetans séu ákveðin af hálfu kjaradóms eins og laun ráðherra og hæstaréttardómara eru nú. Þetta er efni málsins og vænti ég, að góð samstaða geti orðið um það og fljót afgreiðsla á þessu máli.