22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (1181)
267. mál, laun forseta Íslands
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta mál til meðferðar og eins og nál. á þskj. 595 ber með sér, leggur hún einróma til, að það verði samþ. En efni frv. er, eins og hv. þdm. er kunnugt, það, að framvegis verði það ekki Alþ. eins og verið hefur, sem ákveði laun forseta Íslands, heldur verði þau ákveðin af kjaradómi. Fjhn. lítur þannig á, að eðlilegt sé að gera slíka breytingu og leggur því til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt.