24.03.1971
Efri deild: 73. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (1223)

293. mál, kjördagur 1971

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Út af því, sem hæstv. dómsmrh. sagði, þá vil ég taka það fram, að það er rétt, að það hefur verið talsvert rætt um það, að heppilegt væri að kosningadagur yrði 13. júní, en hins vegar get ég ekki fallizt á það, sem mér fannst koma fram hjá hæstv. dómsmrh., að það lægi fyrir nú, að allir væru sammála um þetta. Ég hef einfaldlega ekki borið þetta undir minn þingflokk og vil því ekki vera með neinar yfirlýsingar hér á þessu stigi um það. En það skal ég gera, og málið er nú sjálfsagt svo einfalt, að það er ekki ástæða til að velta því í n., ef það fæst bara frestur á milli umræðna til þess að athuga þetta. Ég skal þá ekki heldur vera svo sérstaklega að ræða þetta hér. Það var nú raunar aðeins ein ástæða, sem hæstv. ráðherra benti á, að mér skildist, og það var þetta, að umboð þingmanna væri útrunnið um þetta leyti. Það má segja það. Á hitt ber náttúrlega að líta í þessu sambandi, án þess að það megi skoða sem andstöðu mína við þennan kjördag, að í kosningalögunum er ákveðið almennt og í eitt skipti fyrir öll, ef ekki er gerð breyting þar á, að kjördagur sé síðasti sunnudagur í júní, og það verður náttúrlega að álíta, að það hafi ekki verið ákveðið út í bláinn, heldur að vel yfirveguðu máli, t. d. með tilliti til samgangna, að þær væru orðnar það góðar á þeim tíma. Það getur nú verið erfitt að segja um það fyrir fram, hvenær samgöngur eru góðar eða ekki og þær geta náttúrlega brugðizt á ýmsum tímum. Ég vil sem sagt alls ekki lýsa því yfir nú, hver afstaða okkar framsóknarmanna verður til frv. þessa, en það er rétt, að það hefur verið talað um þetta, en hins vegar er það ofmælt, að við höfum samþykkt nokkuð um þetta efni.