24.02.1971
Efri deild: 53. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (1250)
213. mál, náttúruvernd
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka þær vinsamlegu undirtektir, sem meginefni, meginstefna þessa frv. hefur hlotið hjá öllum hv. þm., sem tekið hafa til máls. Hitt er ekki nema algerlega eðlilegt, að þegar um svo veigamikið og viðamikið mál er að ræða, sem hér á sér stað, þá geti mönnum sýnzt sitt hverjum um einstök atriði í málinu og um málatilbúnaðinn og um undirbúning málsins, sem sannarlega er ekki einfalt verk. En ég legg miklu meira upp úr hinu og vil undirstrika það alveg sérstaklega, að af hálfu allra þeirra ræðumanna, sem talað hafa, hefur komið eindreginn stuðningur við þá meginstefnu, sem í frv. felst, og skilningur á mikilvægi þess máls, sem hér er um að ræða. Það finnst mér skipta mestu máli.
Að því er varðar flutning málsins og afskipti eða meðferð þess í stjórnarráðinu er það að segja, að ég tel þau ummæli ekki sanngjörn, sem féllu hjá einum hv. þm., að slælega hefði þar verið að undirbúningi málsins unnið, að því er stjórnarráðið snertir. Menntmrn. skipaði nefnd til þess að endursemja gildandi lög um náttúruvernd einum tveimur mánuðum eftir að Alþ. hafði gert um það ályktun, eða í júní 1968. Ég hygg, að ég muni það rétt, að það hafi tekið nefndina á þriðja ár að semja þetta frv. Ég segi þetta engan veginn til þess að ámæla nefndinni fyrir slæleg vinnubrögð. Slík ámæli tel ég vera í hæsta máta ósanngjörn. Ég segi þetta eingöngu til þess að undirstrika það, um hversu flókið og viðamikið og vandasamt mál er hér að ræða. Slíka lagaendurskoðun eins og þá, sem nefndinni var falin, hrista engir menn, jafnvel ekki hinir allra færustu menn, fram úr erminni á örstuttum tíma. Ótal atriði þarf að taka til mjög ítarlegrar yfirvegunar, og ég tel þann tíma, sem nefndin notaði, engan veginn vera óeðlilegan. En með hliðsjón af því er ósanngjarnt að ætlast til þess, að stjórnarráðið hafi getað lokið athugun sinni á þessu mikla máli á aðeins örfáum vikum eða mánuðum, enda kom það í ljós, þegar ríkisstj. og einstök rn., sem þetta mál snerta, og einstakir ráðunautar ríkisstj., sérstaklega um lögfræðileg efni, athuguðu frv., þá kom í ljós, að ríkisstj. treysti sér ekki til að flytja það sem stjfrv. á síðasta þingi. Í nefndinni átti ekki sæti neinn lögfræðingur, en hér er um að ræða ýmis mjög flókin lögfræðileg viðfangsefni, eins og reyndar kom fram hjá sumum hv. þm. í ræðum þeirra, og það voru sérstaklega hvað lögfræðiatriði snertir ákvæði frv. nefndarinnar um verksvið náttúruverndarráðs og algera friðlýsingu, sem ýmsir lögfræðingar töldu þurfa nánari athugunar og bóta við. Ég taldi hins vegar vera hér um svo merkilegt mál að ræða, að ég taldi ekki forsvaranlegt annað en kynna síðasta Alþ. þetta mál, ef það mætti verða til þess að flýta fyrir því, að Alþ. gæti tekið afstöðu til þess. Þess vegna var sá háttur á hafður, að menntmrn. sendi menntmn. Nd. málið til flutnings, en allir vita, hvað í því felst. Það felst það í því, að ríkisstj. hefur ekki tekið endanlega afstöðu til málsins, er ekki reiðubúin að beita sér fyrir því, að málið nái fram að ganga í því formi, sem málið er sent n. Og mér er næst að halda, að n. hafi sjálf komizt að raun um það, að málið þyrfti frekari athugunar við, um það hafi í raun og veru enginn ágreiningur verið í menntmn. í hv. Nd. Síðan hefur þessi athugun af hálfu stjórnarráðsins á málinu haldið áfram og hefur leitt til þess, að ríkisstj. hefur orðið sammála um frv. í því formi, sem það er nú flutt, enda er það nú flutt sem stjfrv. En það þýðir, að ríkisstj. fyrir sitt leyti vill stuðla að framgangi málsins í þessu formi ólikt því, sem átti sér stað um frv., sem sent var menntmn. í Nd. í fyrra.
Það eru tvö atriði fyrst og fremst, sem ríkisstj. hefur breytt í frv. nefndarinnar. Fyrra atriðið er lögfræðilegs eðlis, eins og ég gat um áðan og snertir ákvæðin um verksvið náttúruverndarráðs og aðferðir við friðlýsingu. Hitt atriðið er fjárhagslegs eðlis, þar sem eru ákvæðin um tekjuöflun í þágu náttúruverndarmála. Lögfræðingar, sem um málið fjölluðu, töldu, að ákvæðin í frv. nefndarinnar um valdsvið náttúruverndarráðs gætu tæplega samrýmzt almennum stjórnarfarsreglum um valdsvið nefnda, sem kosnar væru með þeim hætti, sem gert er ráð fyrir, að náttúruverndarráð sé kosið, þ. e. a. s. á fundi á náttúruverndarþingi, þar sem ýmis félagssamtök, einkasamtök og hálfopinber samtök, eiga sæti og auk þess einstakir embættismenn. En 6 af 7 meðlimum náttúruverndarráðs eiga að vera kosnir af þessu náttúruverndarþingi. Stofnun eins og náttúruverndarráð, sem þannig er til komin, getur tæplega að mati lögfræðinga farið með stjórnarfarslegt vald. Formaðurinn á svo að vera skipaður af menntmrh. Þær breytingar, sem ríkisstj. gerði á frv., lutu eingöngu að þessu atriði, að því er náttúruverndarráðið snerti, enda hefur það komið í ljós, eins og mjög eðlilegt er, að mönnum sýnist sitt hverjum um þetta. Þeir ágætu flokksbræður, hv. þm. Steingrímur Hermannsson og Einar Ágústsson, höfðu alveg ólíka skoðun á þessu efni. Fyrri þm. harmaði, að ríkisstj. hefði breytt frv. í þá átt að rýra verksvið náttúruverndarráðs frá því, sem nefndin hafði gert ráð fyrir, en síðari þm., Einar Ágústsson, lýsti skoðunum, sem ég þekki vel og hef út af fyrir sig mikinn skilning á, sem komið hafa fram af hálfu Reykjavíkurborgar og fleiri sveitarfélaga hér á Suðurnesjum, að ríkisvaldið þyrfti að hafa meira vald í tilteknu efni, sérstaklega til friðlýsingar, heldur en frv. gerir ráð fyrir. Þessi erindi Reykjavíkurborgar og fleiri sveitarfélaga hér voru rækilega athuguð í sambandi við flutning þessa máls og var það eitt af þeim atriðum, sem gerði það að verkum, að málið kom þó ekki fyrr fyrir þingið heldur en raun bar vitni um. Niðurstaðan varð sú að breyta í þessu efni ekki því, sem nefndin hafði gert ráð fyrir, en mér a. m. k. er algerlega ljóst, að Reykjavíkurborg og hin sveitarfélögin hér og þar með hv. þm. Einar Ágústsson hafa mjög mikið til síns máls í röksemdafærslu sinni gegn ákvæðum friðlýsingar og aðild sveitarfélaga að henni, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég tel þetta eitt þeirra mörgu atriða, sem n. þarf að taka til mjög ítarlegrar meðferðar. Ég mundi ekki beita mér og áreiðanlega ekki ríkisstj. gegn breytingum á frv. í þá átt, sem Reykjavíkurborg og fleiri aðilar hafa óskað eftir, en við vildum, að Alþ. gerði þá breytingu, að sjálfsögðu í samráði við framámenn sveitarfélaganna.
Að því er snertir þá breytingu, sem ríkisstj. gerði varðandi fjáröflun í þágu náttúruverndar, er það að segja, að sú breyting var ekki gerð vegna þess, að ríkisstj. ofbyði sú upphæð, sem hin sjálfstæða tekjuöflun hefði leitt til að varið yrði í þágu náttúruverndar, heldur var hún gerð út frá grundvallarsjónarmiðum. Eins og raunar kom fram hjá fleirum en einum hv. þm. við þessar umr., þá er sú stefna óeðlileg að eyrnamerkja ákveðna tekjustofna í þágu tiltekinna mála. Það var gert allmikið fyrir 1–2–3 áratugum hér á hinu háa Alþ., en á síðari árum hefur verið horfið frá þessu með meiri og meiri festu. Og þess vegna töldum við, að í raun og veru væri það spor aftur á bak, ef hér væri verið að eyrnamerkja ákveðna tekjustofna í þágu máls, jafnvel þó að jafnmikilvægt sé og náttúruverndarmálin eru, og langeðlilegast, að um þetta efni séu hafðar hliðstæðar reglur og um fjárveitingar hins opinbera til annarra nauðsynjamála, heilbrigðismála, félagsmála, skólamála og hvers konar menningarmála, að sjálft fjárveitingavaldið, sjálft Alþ. taki ákvörðun um það, hversu miklu skuli verja í þessu skyni og það er sá háttur, sem hér er á hafður.
Það er skemmtileg tilviljun, að hv. þm. Gils Guðmundsson er gerkunnugur stofnun og raunar æðsti starfsmaður stofnunar, sem það hefur bitnað verulega á á undanförnum áratugum, að þessari stefnu hefur verið fylgt að eyrnamerkja ákveðnar tekjur í þágu mikilvægs málefnis. En hann er sem kunnugt er framkvæmdastjóri menntamálaráðs og menningarsjóðs, en í gömlum lögum frá 1928 hafa menntamálaráði og menningarsjóði verið ætlaðar tilteknar tekjur, þ. e. a. s. tekjur af áfengissektum og hagnaður af sölu ólöglega innflutts áfengis. Það hefur verið stefna menntamálaráðs mörg undanfarin ár að losna undan þessu kerfi. Það hefur reynzt vera óhagkvæmt og óskynsamlegt, og svo skemmtilega vill til, ég segi beinlínis, svo skemmtilega vill til, að ríkisstj. hefur einmitt nú alveg nýlega fallið frá að verða við einróma óskum menntamálaráðs um að breyta lögum um þetta efni, hætta eyrnamerkingu ákveðinna tekjustofna í þágu þeirra málefna, sem menningarsjóður á að þjóna, og færa fjármál menningarsjóðs inn í hin almennu fjárlög ríkisins. Þetta er nákvæmlega það sama, sem við þarna gerum eftir einróma ósk menntamálaráðs eins og það, sem við gerum til breytingar frá frv. nefndarinnar, sem náttúruverndarlögin samdi. Það er eðlilegt verkefni fjárveitingavaldsins að kveða á um, hversu mikið fé menntamálaráð skuli fá til umráða, hversu mikið fé skuli renna í menningarsjóð og hversu mikið fé náttúruverndarráð skuli fá til umráða og hversu mikið fé skuli renna til eflingar náttúruverndar.
Að síðustu vildi ég svo aðeins taka undir það, sem kom fram hjá hv. þm. Jóni Árm. Héðinssyni, að það er spurning, hvort ástæða er til þess að hafa náttúruverndarnefndirnar úti um allt land. Ég get að vísu metið það sjónarmið, sem kom fram hjá hv. þm. Steinþóri Gestssyni, að tengsl eru nauðsynleg við aðila í heimahéraði af hálfu náttúruverndarráðs, að of mikil miðstjórn í þessum málum getur verið varhugaverð, að viss „décentralisering“ í jafnviðkvæmum málum eins og þessu er nauðsynleg, þ. e. a. s. einhver miðstjórnaraðili má ekki ana áfram án þess að hlusta á eða hafa nokkurn tíma spurt þá aðila, sem kunnugir eru staðháttum á hverjum tíma og mikilla hagsmuna hafa að gæta. Þetta var ástæðan til þess, að við héldum þessum ákvæðum í frv. þrátt fyrir það, að mér er ljóst, að nefndirnar hafa nær ekkert starfað í 15 ár, eins og hv. þm. Jón Árm. Héðinsson tók fram. Engu að síður varð það sjónarmið yfirsterkara, að of misskipt vald getur líka verið hættulegt, varhugavert, og þess vegna féllst ríkisstj. á þá hugmynd nefndarinnar, sem mikið var rædd í nefndinni sjálfri, hvort ástæða væri til þess að halda nefndunum eða ekki. Hins vegar hefur reynslan ekki orðið sú, að það hafi reynzt seinvirkt, að náttúruverndarráð á samkv. gildandi lögum og á enn samkv. þessu frv. að bera t. d. friðlýsingar sínar undir menntmrn. Ég þori að fullyrða, að það hefur aldrei, ekki í einu einasta tilfelli orðið til þess að tefja framkvæmdir, að mál hafi þurft að bíða lengi eða yfirleitt að bíða nokkurrar afgreiðslu þar. Það hafa komið fyrir mjög erfið deilumál eins og allir muna, t. d. í sambandi við vegarlagninguna fyrir kísilgúrverksmiðjuna, þar sem rn. varð að láta sig mjög viðkvæmt deilumál miklu skipta. Það hlaut að taka sinn tíma, en það mál fékk mjög farsælan endi og hefur, eftir að sú lausn fannst, sem rn. beitti sér fyrir, ekki valdið neinum deilum. Þetta þykir mér rétt, að komi hér skýrt fram.