25.03.1971
Efri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)
213. mál, náttúruvernd
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. menntmn. fyrir góðar undirtektir við ýmsar þær brtt., sem ég flyt, annars vegar á þskj. 562 ásamt 11. þm. Reykv. og hins vegar á þskj. 539 ásamt 4. þm. Norðurl. e. Ég geri ráð fyrir því, að hann muni ræða um þær tillögur, sem eru á þskj. 539, en ég mun fara nokkrum orðum um brtt. á þskj. 562.
Þó vil ég segja það í upphafi, að mér sýnist það hafa sannazt, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði í gær, að brtt. eru æði margar fram komnar við þetta frv. og bendir það til þess, að það þurfi að fá ítarlega athugun og e. t. v. ítarlegri en hefur orðið hér hjá hv. menntmn. Það er orðið næsta erfitt að fóta sig á öllum þeim tillögum, sem fram eru komnar.
Á þskj. 562 eru skráðar 9 brtt. N. hefur mælt með því, að fyrsta tillagan verði samþ. og þarf ég ekki að fara fleiri orðum um það. Önnur tillagan hefur verið tekin upp í brtt. frá n. með aðeins breyttu orðalagi, og sætti ég mig ágætlega við það og vil leyfa mér að draga þá brtt. til baka.
Þriðju og fjórðu tillöguna hefur n. ekki fallizt á sem slíkar, og eru nm. óbundnir í því sambandi. Það er óþarft að fara mörgum orðum um þriðju tillöguna. Þar er þannig komizt að orði, að á eftir „nauðsynlegum hreinlætistækjum“ í 16. gr. skuli koma innskot, sem orðist þannig: „sem fullnægi öllum kröfum heilbrigðisyfirvalda.“ Vitanlega á það að vera ljóst, að ef heilbrigðisyfirvöldin setja reglugerð um þessi mál, þá verður náttúrlega ekki hjá því komizt, að þeirri reglugerð verði fullnægt á skemmtisvæðum. Ætti því raunar að vera óþarft að endurtaka það í þessum lögum um náttúruvernd. En hugmynd okkar flm. var, að ekki sakaði að ítreka þetta, því að mjög víða — því miður — er pottur brotinn í þessu sambandi á fjölsóttum útivistarstöðum í okkar landi.
Meiri áherzlu legg ég á fjórðu brtt., sem er við 20. gr. og orðast þannig: „Eigi má setja byggingar, girðingar né önnur mannvirki á sjávarströnd né á vatnsbakka og árbakka, þannig að hindri frjálsa umferð fótgangandi manna. Ákvæði þessarar málsgreinar eiga þó ekki við um þær byggingar eða þau mannvirki, sem nauðsynleg eru vegna atvinnurekstrar, þar með talin íbúðarhús bænda, né þau, sem reist eru með leyfi réttra yfirvalda á skipulögðum svæðum, eða mannvirki, sem reist hafa verið fyrir samþykkt þessara laga.“
Í þessari brtt. felast raunar þrjár breytingar á 20. gr. Annars vegar eru felld niður ákvæði um fjarlægð, 150 m frá hæsta flóðmáli og 100 m frá vatnsborði, og er þetta mikilvægasta breytingin. Ég þarf ekki að endurtaka mikið af því, sem ég sagði áður um þetta. Ég tel, í fáum orðum sagt, þetta mál nánast því óframkvæmanlegt. Ég vakti athygli á því, að víða er t. d. skógrækt stunduð nálægt vatnsborði, og vitanlega verður að vernda slíka reiti með girðingu. Sömuleiðis hefur aldrei verið talið óhollt og ekki spyrnt gegn því, að íbúar þéttbýlisins fái sér sumarbústaðalönd. Það eiga þeir, sem betur fer, mjög margir og eiga þar griðland fyrir sig og fjölskyldu sína. Mörg þessi lönd eru nálægt vatnsborði. Mörg hafa ekki verið girt í dag og ekki verið á þeim byggt. Ég leyfi mér því að spyrja, hvernig eigi — eða hvort ætlunin sé að fyrirmuna þessu fólki að nota þetta land, eins og það hefur ætlað sér. Ég tel m. ö. o. þetta illframkvæmanlegt og takmarka mjög eðlilegan rétt einstaklingsins til þess að nota það land, sem hann á. Mér skilst, að tilgangurinn með greininni eigi fyrst og fremst að vera að takmarka ekki umferð gangandi fólks í fjöru og með vatnsborði. Sýnist mér réttmætt og sjálfsagt að tryggja slíkt, enda ráð fyrir því gert í brtt. þeirri, sem við flytjum.
Aðrar breytingar, sem fram koma í þessari brtt., eru nánast aðeins til nánari skýringa á seinni hluta greinarinnar. Þar er fram tekið, að þessi ákvæði nái ekki til íbúðarhúsa bænda, enda á ég bágt með að trúa því, að það sé tilgangurinn. Að okkar mati má hins vegar misskilja þetta, eins og greinin er nú orðuð. Sömuleiðis held ég, að ekki komi til mála, að það sé ætlun þeirra, sem frv. hafa samið, að flytja þurfi þau mannvirki, sem þegar eru þannig staðsett, að brjóta mundi í bága við þessa grein, og sýnist okkur því, að það þurfi að taka skýrt fram.
Fimmtu brtt. mælir n. með, og þarf ég ekki að fara fleiri orðum um hana.
Sjötta tillagan hefur verið tekin upp í brtt. n. með dálítið breyttu orðalagi, en ég felldi mig við það og dreg því þá brtt. til baka.
Sjöundu brtt. hefur n. ekki talið sér fært að fallast á, en hún er við 32. gr. Eru náttúruverndarráði með þessari brtt. gefnar nokkuð frjálsari hendur en er í frv. um eigin ákvarðanir, án þess að þær þurfi að leggja fyrir menntmrn., en þó aðeins í þeim tilfellum, að slíkar ákvarðanir hafi ekki í för með sér fjárhagslegar skuldbindingar fyrir ríkissjóð, eða hafi verið mótmælt.
Við flm. fáum ekki séð, að nokkur ástæða sé til þess að tefja ákvarðanir náttúruverndarráðs með því að skylda það til að leggja þær ákvarðanir fyrir menntmrn., sem ekki orka tvímælis og eru ágreiningslausar eða valda ekki neinum fjárútlátum fyrir ríkissjóð. Okkur sýnist æskilegt, að náttúruverndarráð geti brugðið skjótt við, því að það er áreiðanlega nauðsynlegt í fjölmörgum tilfellum. Teljum við, að það eigi að gera kleift.
Mælt er með áttundu brtt., enda aðeins um leiðréttingu að ræða.
Í 37. gr. frv. er fjallað um brot gegn lögum þessum, og níunda brtt. okkar fjallar um þessa grein. Við höfum gert ráð fyrir því, að nánari ákvæði yrðu sett í reglugerð og sömuleiðis, að sektir renni í náttúruverndarsjóð. En með tilliti til þess, að n. ber fram skriflega brtt. við 37. gr., þar sem gert er ráð fyrir því, að nánari ákvæði almennt verði sett í reglugerð við frv., getum við fallið frá þessari brtt. og drögum hana til baka.
Þær brtt., sem við óskum eftir að verði bornar hér upp við 3. umr., eru: 1., 3., 4., 5., 7. og 8.