04.03.1971
Efri deild: 57. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1099 í B-deild Alþingistíðinda. (1306)

230. mál, Iðnþróunarstofnun Íslands

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Þar sem ég efast um, að ég sitji á Alþ., þegar þetta mál kemur frá n., langar mig á þessu stigi við 1. umr. að fara fáeinum orðum um það. Ég vil byrja með því að taka undir þau orð hæstv. forsrh., að hér er hreyft mjög mikilvægu máli. Ég þekki vel til starfsemi Iðnaðarmálastofnunar Íslands, og raunar furða ég mig á því, hvað sú stofnun hefur margt gott getað gert þrátt fyrir að ýmsu leyti erfiða starfsaðstöðu og vissulega mjög breitt svið og umfang iðnaðarins í landinu. Á sama tíma hefur hins vegar starfskraftur stofnunarinnar verið mjög takmarkaður og lögin að ýmsu leyti ekki til þess gerð, að hún gæti sinnt sínum stóru og miklu verkefnum.

Hins vegar sýnist mér ástæða til þess að vekja athygli á og jafnvel vara við einstökum atriðum, sem mér sýnast nokkuð vafasöm, í þessu frv. Í frv. er gert ráð fyrir því að slengja saman tveimur stofnunum, sem báðar hafa eflaust gert margt gott. Ég hef minnzt á Iðnaðarmálastofnun Íslands. Um Iðnþróunarráð veit ég minna. Það hefur ekki verið eins mikið um það rætt en ég er ekki að efast um ágæti þeirrar stofnunar. Ég tel hins vegar — og tala þar af nokkurri reynslu — mjög varasamt að setja svo stóra stjórn fyrir eina stofnun. Ég hygg, að staðreyndin verði sú, að svo stór og fjölmenn stjórn verði mjög áhrifalítil og muni láta starfsemi stofnunarinnar litið til sín taka.

Ég vil einnig leggja áherzlu á það, að ég tel vafasamt, að ráðh. sé formaður í slíkri stjórn sinnar stofnunar. Ég tel það bæði vafasamt frá sjónarmiði stofnunarinnar og frá sjónarmiði ráðh. Það er ljóst, og það liggur í hlutarins eðli, að sjálfstæði slíkrar stjórnar í ályktanagerð verður minni, þegar ráðh. situr þar sem formaður. Það hefur sín áhrif, sem óþarft er að ræða. Sömuleiðis sýnist mér vafasamt, að ráðh. skuldbindi sig eða bindi sig á ýmsan máta við afgreiðslu mála, eins og hlýtur að verða, þegar hann er formaður í stjórn stofnunarinnar. Ég hefði talið heilladrýgra, að svona stofnun hafi fámenna stjórn. Ég ætla ekki að nefna neina tölu, en það gæti verið 3–5 eða 7 manna stjórn, sem væri tilnefnd af forvígismönnum iðnaðarins sjálfs fyrst og fremst, en sömuleiðis með fulltrúum ráðh. og iðnrn. Væri þannig tryggt, að hún hafi sem bezt samband við iðnaðinn, sem hún á að starfa fyrir, og við rn.

Ég tel einnig nauðsynlegt, að slík stofnun hafi verulegt sjálfstæði. Að vísu segir í 1. gr. frv., að þetta sé sjálfstæð stofnun, en mjög lauslega er fjallað um það í frv., hvernig það skuli framkvæmt. Reynslan hefur verið sú á undanförnum árum, að meira og meira af ákvörðunarrétti stofnunar er dregið inn í rn. og því fylgja hinar ótrúlegustu tafir og vandræði og að sjálfsögðu tvíverknaður og erfiðleikar fyrir viðkomandi rn. Ég held, að um starfsemi slíkrar stofnunar eigi að gilda almennar reglur og síðan fylgjast með því vandlega, hvernig þær eru framkvæmdar t. d. af ríkisendurskoðun og þeim, sem til þess eru settir.

Þetta eru þau meginatriði, sem ég vil gera að umræðuefni. Ég get upplýst í þessu sambandi, að ég hef, eins og ég sagði áðan, nokkra reynslu af þessu frá Rannsóknaráði ríkisins. Þar hefur starfað mjög fjölmenn stjórn, og hygg ég, að flestir séu sammála um það, að niðurstaðan hafi orðið sú, að hún hafi haft tiltölulega lítil afskipti af Rannsóknaráði. Starfsemin hefur verið að öllu leyti í höndum framkvæmdanefndar. Því er nú í gangi mjög ítarleg endurskoðun á skipulagi rannsókna og ekki sízt með þetta atriði í huga. Þetta segi ég þrátt fyrir það, að ég þekki það af eigin reynslu, að í Rannsóknaráði sitja margir hinir hæfustu menn, sem mikinn áhuga hafa á rannsóknum. Einhvern veginn vill þetta þó drukkna í hinu stóra ráði.

Ég vil taka undir það með hæstv. forsrh., að mjög er nauðsynlegt að skapa góð tengsl á milli þeirra aðila, sem fara með skyld verkefni í þessu kerfi, t. d. rannsóknastofnana og Rannsóknaráðs, iðnrn., Iðnaðarmálastofnunar o. fl. Ég fagna því, að þetta hefur yfirleitt verið gott og fullur vilji hjá öllum þeim aðilum, sem ég þekki til, að halda því svo. Hins vegar efast ég um, að þetta góða samband náist, þótt einn fulltrúi sitji í fjölmennri stjórn, sem kemur sjaldan saman. Ég held, að það náist betur með því að setja á fót starfshópa, þegar þörf krefur, og í þá séu þá settir þeir menn, sem um viðkomandi mál fyrst og fremst fjalla. Þannig verða tengslin beinni og nánari við lausn fjölmargra verkefna.

Ég vil svo að lokum leggja áherzlu á það, sem ég sagði í upphafi, að mér sýnist mjög tímabært að setja þessari stofnun, Iðnaðarmálastofnun Íslands, ítarlegri lög en hún hefur nú, þannig að hún fái sinnt því mjög svo mikilvæga verkefni, sem hún hefur, og það fer vaxandi.