24.03.1971
Efri deild: 73. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (1315)
230. mál, Iðnþróunarstofnun Íslands
Forsrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þegar upphaflega var rætt um þetta frv. hér, þá lét ég þess getið, að ég hefði ekkert sótzt eftir því ákvæði, sem felur í sér, að ráðh. sé formaður iðnþróunarráðs, sem átti að vera stjórn stofnunarinnar. Það er auðvitað augljóst mál, að þetta snýst um það, hvort iðnrh. eigi að vera formaður eða ekki, og það eru þau einu embætti, sem nokkuð örugglega flytjast manna á milli, eins og kunnugt er af reynslunni. En nú er lagt til, að þetta verði ráðgefandi ráð, en stjórn stofnunarinnar annist framkvæmdastjórn. Ég skal láta það liggja alveg á milli hluta og má mín vegna afgreiða málið, hvernig sem verða vill. Þó held ég, að það yrði kannske sterkara að hafa ráðh. þarna með í þessari ráðgefandi stofnun, eins og má vera, að verði samkv. till. iðnn. En varðandi brtt., sem flutt var nú síðast, um að ráða framkvæmdastjóra til fimm ára, þá held ég, að það sé alveg útilokað að taka þessa stofnun eina út úr í þessu sambandi og allra sízt vegna þess, að hér er í raun og veru um að ræða framhald á Iðnaðarmálastofnun Íslands. Ég þori ekki alveg að fullyrða um það, en ég held, að það séu allt að 15–20 ár, sem núverandi forstjóri er búinn að veita henni forstöðu. Þetta þýðir ekki það, að ég sé á móti þeirri hugmynd að ráða forstjóra ríkisstofnunar um tiltekinn tíma, en það mál þarf að athuga í heild og í sambandi við launakjör og annað, svo að ég get ekki skilið, að í sambandi við eina stofnun, sem þannig er sérstaklega ástatt um, sé hægt að ákveða það.
Ég er síður en svo að mótmæla því, að þau mál séu tekin til athugunar, að forstjórar ríkisstofnana séu ráðnir til tiltekins tíma. Þetta tíðkast í mörgum öðrum löndum, að forstjórar einkafyrirtækja eru ráðnir til tiltekins tíma, en það er dálítið meira mál, held ég, en svo, að hægt sé að ákveða það í sambandi við málið, eins og það er lagt fyrir hérna. Ég tek heldur ekki afstöðu til þess, hvort ráðh. eigi að skipa fleiri eða færri iðnþróunarráðsmenn, þó að ég segi það hreinskilnislega, að ég mundi af minni reynslu aðhyllast þá till., sem er frá n., sem þýðir það, að ráðið tilnefnir tvo stjórnarmenn og ráðh. skipar þrjá. Ég get ekki aðhyllzt það sjónarmið, að Landssamband iðnaðarmanna og Félag ísl. iðnrekenda eigi alltaf að hafa menn í stjórn þessara stofnana. Ég hef kappkostað þann tíma, sem ég hef verið iðnrh., að hafa sem allra bezt samstarf við þessa aðila. Það held ég, að hver ráðh. mundi gera, en menn mega ekki alltaf einblína á það, að menn eigi alls staðar að eiga fulltrúa frá tilteknum aðilum, sérstaklega í jafnstóru ráði og þarna er um að ræða, og það getur hreint og beint verið mikill ávinningur að því fyrir þessi samtök, að einhvern tiltekinn tíma væru aðilar frá öðrum en þeim — sem eru vinveittir iðnaði og styðja iðnaðinn að öðru leyti bæði af tækniþekkingu og með sinni fjárhagslegu aðstöðu — kannske tiltekinn tíma í stjórninni. Í svona stóru ráði, held ég, að farsælt væri einmitt, að stjórn stofnunarinnar væri ekki alltaf í höndum sömu manna frá þeim tiltekna skipunartíma, til þess að annars væru sömu mennirnir ekki of lengi.