29.03.1971
Neðri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1167 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 1. minni hl. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Við fulltrúar Framsfl., sem erum í 1. minni hl. fjhn., leggjum það til, að þessu frv. verði vísað frá með rökst. dagskrá. Rök okkar fyrir dagskránni eru fyrst og fremst þessi: 1) Heildarendurskoðun allra skattalaga er orðin mjög aðkallandi, og það er aðeins til að tefja fyrir henni að taka einn þátt skattalaganna út úr og afgreiða hann, en þetta frv. fjallar nær eingöngu um tekjuskatt og eignarskatt, sem leggjast á fyrirtæki. 2) Meginbreytingin í þessu frv. er að auðvelda aukna arðgreiðslu fyrirtækja og gera arðinn skattfrjálsan hjá hluthöfum. Þetta verður tvímælalaust til þess, að fyrirtækið safnar minna af eigin fé en ella. Við teljum þetta öfugt við það, sem ætti að vera, því að það skiptir miklu máli fyrir atvinnuvegina, að fyrirtækin geti safnað sem mestu af eigin fé. Auk þess mun þetta nýja fyrirkomulag ýta undir stofnun fjölmargra smáhlutafélaga, eins og atvinnurekendur hafa bent á í bréfi sínu til Alþ., en þar er tvímælalaust um mjög óheppilega þróun að ræða. 3) Það er algert ranglæti að veita hlutabréfaeigendum mikil hlunnindi á sama tíma og einstaklingum er neitað um sjálfsagða leiðréttingu á skattvísitölunni, en afleiðingar þess verða þær, að tekjur fólks með lág laun og miðlungstekjur verða skattlagðar eins og um hátekjur væri að ræða. Það er fyrst og fremst af þessum þremur meginástæðum, sem við leggjum til að þetta frv. verði afgr. með rökst. dagskrá.

Ég vil láta það koma fram í þessu sambandi, að við teljum eðlilegt, að þetta þing afgreiði tvær breytingar á skattalögunum, sem liggja fyrir í öðrum frv. hér á hv. Alþ. Það er í fyrsta lagi um að ræða frv. á þskj. 34, þar sem lagt er til, að framfærsluvísitalan ráði því, hver skattvísitalan er, eða réttara sagt, að skattvísitalan fylgi framfærsluvísitölunni. Ef þetta yrði samþ., þá mundi það verða til þess, að frádráttur einstaklings hækkaði úr 134 þús. kr., eins og nú er gert ráð fyrir samkv. frv., í 156 þús. kr., frádráttur hjóna mundi hækka úr 188 þús. kr. í 220 þús. kr. og frádráttur vegna barns mundi fara úr 27 þús. kr. í 35 þús. kr. Auk þess mundu svo allir skattstigar breytast í samræmi við þetta og það valda nokkurri verulegrí lækkun á sköttum. Þá mundi þetta einnig valda hliðstæðum breytingum á frádrætti í sambandi við álagningu útsvara og einnig breyta útsvarsstiganum þannig, að af því mundi hljótast lækkun. Í öðru lagi teljum við, að það sé nauðsynlegt, að frv. á þskj. 198 nái fram að ganga, en efni þess er það, að allir fastafjármunir skuli fyrnast miðað við áætlaðan endingartíma þeirra. Þetta mundi að sjálfsögðu hafa þær afleiðingar, að fyrningar hjá fyrirtækjum og einstaklingum raunar líka mundu breytast talsvert frá því, sem nú er, og komast í eðlilegt horf, en vegna hinna miklu gengisfellinga, sem hér hafa orðið síðustu árin, þá hefur allur grundvöllur, sem fyrningarnar miðast við, meira og minna skekkzt. Við teljum, að þau frv., sem hér um ræðir, feli í raun og veru ekki í sér neinar breytingar á skattalögunum, heldur sé hér aðeins um leiðréttingar að ræða, sem nauðsynlegt er að gera vegna þeirrar dýrtíðar og verðbólguþróunar, sem hefur verið í landinu á undanförnum árum, en aftur á móti sé hér ekki um neinar grundvallarbreytingar að ræða, eins og eru í þessu frv.

Mér finnst rétt að víkja að því, þegar ég fer að rekja röksemdirnar fyrir dagskrártill. okkar, hvernig að þessu máli hefur verið unnið. Ég held, að það séu fá mál, sem hafa legið hér fyrir hv. Alþ., sem hefur verið lögð í öllu meiri vinna, og eins og ég kem að síðar að sumu leyti, að ég held, vegna þess, að reynt hefur verið að fela þann raunverulega tilgang, sem er að baki þessu frv.

En saga þessa máls er í upphafi sú, að hæstv. fjmrh. skipar sérstaka embættismannanefnd til að endurskoða og athuga skattamál fyrirtækja með tilliti til hugsanlegrar EFTA-aðildar. Þessi nefndarskipan átti sér stað 25. apríl 1969, og það verður ekki annað sagt, og ég skal fullkomlega viðurkenna það, að það var nauðsynlegt, að slík athugun færi fram á skattamálum fyrirtækja með tilliti til EFTA-aðildarinnar. Við þurftum að fá samanburð á því, hvort fyrirtæki hér borguðu svipaða skatta og fyrirtækin í EFTA-löndunum, sem við áttum að fara að keppa við, eða hvort skattaálögur væru hér miklu hærri og þess vegna þyrfti að gera breytingar á — a.m.k. til samræmis við það, sem ætti sér stað í umræddum löndum. Til þess að fá réttan samanburð í þessum efnum þyrfti að sjálfsögðu að gera athugun á öllum skattamálum fyrirtækjanna — ekki aðeins tekjuskattinum og eignarskattinum, sem er að verða tiltölulega léttbærasti skatturinn, sem lagður er á atvinnufyrirtækin, heldur á aðstöðugjöldum, útsvörum, framlögum og greiðslum til trygginga og annarra opinberra stofnana, í byggingarsjóð, í Iðnlánasjóð, í Stofnlánasjóð Íandbúnaðarins o. s. frv. Það þurfti sem sé til þess að fá réttan samanburð í þessum efnum að fara fram heildarúttekt á því, hve háir skattarnir væru, sem fyrirtækið raunverulega greiddi, og eins og ég sagði áðan, upplýsist það ekki nema að litlu leyti með því að taka tekju- og eignarskattinn einan til meðferðar, vegna þess að hann er orðinn tiltölulega lítill hluti af þeim sköttum, sem fyrirtækin greiða.

En af einhverjum ástæðum fór aldrei fram nein slík úttekt hjá embættismannanefndinni. Ég hef a.m.k. ekki séð, að það liggi fyrir nokkur heildarúttekt, sem embættismannanefndin hefur gert á því, hverjir þeir skattar eru samanlagðir, sem fyrirtækin raunverulega greiða. Ég held, að nefndin hafi algerlega vanrækt að vinna sín verk samkvæmt þessu. Og þess vegna liggja ekki fyrir af hennar hálfu nema fullyrðingar um það, að skattaálögur séu sennilega ekki hærri hjá fyrirtækjum hér en í hinum EFTA-löndunum, en engin raunhæf rannsókn hefur enn farið fram á þessu. Nefndin lét sem sé ekki fara fram athugun á öðrum þætti þessara mála en þeim þætti, sem laut að tekju- og eignarskattinum. Um þetta efni var lagt fram frv. á síðasta þingi, sem nefndin hafði samið, og bersýnilega hafði verið lögð mikil vinna í að semja það. Samkvæmt ósk hæstv. fjmrh. var það lagt fram af fjhn. Nd. án þess, að nefndin tæki nokkra sérstaka afstöðu til málsins, en það mun þá ekki hafa legið fyrir, að það hafi verið samkomulag um málið í ríkisstj., og þess vegna var ákveðið að hafa þessa vinnuaðferð.

Þegar nefndin fór svo að athuga málið og atvinnurekendur fóru að kynna sér það, þá virtist það vera sameiginlegt álit, ég held, eiginlega allra aðila, jafnvel fjmrh. líka, að það væri rétt að láta þetta mál daga uppi og afgreiða ekki nema einn þátt þess, sem var tekinn út úr og fluttur í sérstöku frv. (Gripið fram í.) Ég held, að það hafi ekki komið fram við meðferð upphaflega, heldur hafi það komið fram við meðferð málsins í nefnd, og það var stöðvað. Ég held, að það hafi kannske ekki raunverulega verið fyrir tilmæli hæstv. fjmrh., að málið stöðvaðist endanlega, heldur hafi kannske samstarfsflokkur hans átt einhvern þátt í því — ásamt því, að það komu strax fram ákveðin mótmæli frá atvinnurekendum. Það, sem réð mestu um það, að mönnum fannst ekki eðlilegt, að þetta mál næði fram að ganga í fyrra, var, að það fjallar ekki nema um einn þátt í skattamálum atvinnufyrirtækja á mjög takmarkaðan hátt og það er áhugi hjá atvinnurekendum á því og öðrum reyndar líka, að það eigi að láta fara fram heildarathugun á þessum málum, en ekki taka einn þáttinn alveg út úr og afgreiða hann, en láta aðra vera óafgreidda eins og t.d. það, hve há aðstöðugjöldin eigi að vera, hver fasteignagjöldin eigi að vera, hvert útsvarið eigi að vera, hvert iðnlánasjóðsgjaldið eigi að vera og hver launaskatturinn eigi að vera o.s.frv.

Hæstv. viðskrh. mun hafa komizt að raun um það, að eftir þær undirtektir, sem þetta mál fékk á Alþ., væri rétt að vinna að málinu með talsvert öðrum hætti en að taka þennan eina þátt út úr, tekju- og eignarskatt fyrirtækjanna — sem sé vinna að málinu á breiðari grundvelli. Og þess vegna skrifaði hann embættismannanefndinni nýtt bréf, sem er dagsett 14. mal 1970, þar sem hann leggur fyrir nefndina, að hún ljúki verkefni því, sem henni var falið með erindisbréfinu frá 25. apríl Í969, en jafnframt er henni falið að framkvæma heildarathugun á skattalögunum með það markmið annars vegar í huga að gera skattkerfið sem einfaldast og hins vegar að gera þær breytingar á ákvæðum l. um tekju- og eignarskatt varðandi skatt einstaklinga, er nefndin telur sanngjarnar og eðlilegar. Hér var eiginlega starf nefndarinnar fært yfir á alveg réttan grundvöll. Nú átti það ekki lengur að beinast eingöngu að því að fjalla um tekjuskatt og eignarskatt fyrirtækja, heldur átti að fara fram almenn athugun á öllum skattamálum fyrirtækja og ekki aðeins á öllum skattamálum fyrirtækja, heldur einstaklinganna líka, og í framhaldi af því átti að liggja fyrir heildarniðurstaða af slíkri allsherjarendurskoðun. En þrátt fyrir það, þó að hæstv. ráðh. gæfi nefndinni þessi fyrirmæli, þá held ég, að megi fullyrða það, að þeim hefur verið að sáralitlu eða engu sinnt. Allt starf nefndarinnar, sem mér er kunnugt um, að hefur verið mjög mikið, hefur beinzt að þessu eina máli, athugun á tekjuskatti og eignarskatti fyrirtækja. Og nefndin fór yfir það frv., sem hún hafði samið í fyrra og lagt var fram á Alþ. þá, og komst að þeirri niðurstöðu, að það þyrfti að gera á því stórar breytingar — mjög veigamiklar breytingar — og samdi nýtt frv. samkv. því, og það er það frv., sem hér er nú til umr., sem er mjög verulega breytt frá því, sem frv. í fyrra var.

Það er kunnugt, hvaða undirtektir þetta nýja frv. fékk, t.d. hjá atvinnurekendum. Það var sent þeim sérstaklega til athugunar, og það er alveg auðséð, að þeir hafa vaknað við vondan draum, þegar þeir fengu þetta mál til athugunar, því að þeir hafa að sjálfsögðu búizt við því samkv. öllu því, sem var á undan gengið, og því, sem var búið að lofa og tala um, að hér væri um að ræða heildarathugun á öllum skattamálum fyrirtækja og einstaklinga líka og þess vegna fengju fyrirtækin glöggar upplýsingar um það, hvernig þau mundu raunverulega standa gagnvart sköttum, opinberum sköttum, eftir að slík heildarendurskoðun hefði farið fram, og breytingar á skattalögunum yrðu. í samræmi við það. En í staðinn er hér fjallað um tekju- og eignarskattinn einan, sem eins og kom fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns, er ekki nema tiltölulega lítill hluti af því, sem fyrirtækin greiða í skatta, og þess vegna skiptir það fyrirtækin miklu meira máli, að athugaðir séu, endurskoðaðir og samræmdir aðrir skattar en þessir. Það voru líka fyrstu viðbrögð atvinnurekendasamtakanna í bréfi, sem þau sendu fjhn. og dags. er 25. febr. 197Í, að leggja til, að málinu yrði frestað — frv. yrði frestað og heildarendurskoðun skattamálanna látin fara fram. Í þessu bréfi atvinnurekenda segir svo, með Íeyfi hæstv. forseta:

Samtökin telja nauðsyn á, að endurskoðun l. um tekjuskatt og eignarskatt og l. um tekjustofna sveitarfélaga fylgist að. Frá sjónarmiði fyrirtækisins eru tekjuútsvör og tekjuskattur raunar sami skatturinn, en ráðstöfunin aðeins misjöfn. Þetta mál tengist þá spurningunni um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og á hvern hátt fullnægja eigi tekjuþörf þeirra síðarnefndu. Það snertir svo aftur álögur aðstöðugjalda og fasteignaskatta, en þessi gjöld til sveitarfélaganna skipta fyrirtæki almennt miklu meira máli en tekjuskattur til ríkissjóðs. Er því lagt til, að málið verði afgreitt í einni heild. Þá er á það bent, að aðalákvæðum frv. er ekki ætlað að koma til framkvæmda fyrr en við álagningu á árinu 1972. Sýnist því ekki brýn nauðsyn að ljúka afgreiðslu þess á því Alþ., sem nú situr.

Hér liggur fyrir alveg skýr yfirlýsing frá samtökum atvinnurekenda um það, að þau óski ekki eftir því, að frv. nái fram að ganga í því formi, að eingöngu sé fjallað um tekju- og eignarskattinn, heldur séu öll skattamál þeirra íhuguð í heild og skattalögum breytt samkv. þeirri niðurstöðu, sem sú endurskoðun kann að leiða til. Og það er náttúrlega ákaflega heilbrigð og eðlileg afstaða hjá atvinnurekendum að fara fram á þetta. Það hefur einnig ráðið miklu um þá afstöðu atvinnurekenda að óska eftir, að málið nái ekki fram að ganga, að þeim er ljóst, að margar þær breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir, gengju beinlínis gegn hagsmunum atvinnurekstrarins og þess vegna yrði það óheppilegt fyrir hann, að frv. næði fram að ganga. Sérstaklega eru það höfuðatriðin í frv., sem eru áreiðanlega óhagstæð hagsmunum atvinnurekstrarins.

En þegar búið er að klæða frv. úr öllum þeim miklu umbúðum, sem það er í, og fjarlægja ýmsar breytingar, sem ekki eru reyndar margar, heldur aðallega smávægilegar, sem í því eru, þá er það raunverulega þrennt, sem má telja, að séu meginatriðin. Það er í fyrsta lagi það, að það er lagt til að leggja niður hinn skattfrjálsa varasjóð, sem hefur hingað til verið bezta leiðin fyrir fyrirtækin til að safna eigin fé. Í öðru lagi á að koma í stað hans arðjöfnunarsjóður, sem fyrst og fremst hefur það takmark að auðvelda fyrirtækjunum að greiða út meiri arð en átt hefur sér stað fram að þessu. Loks er það, að eðli frv. er svo að gera arð af bréfum skattfrjálsan að mjög verulegu marki. Þessi meginatriði frv. hljóta að leiða til þess, að það safnast miklu minna eigið fé hjá fyrirtækjunum en ella mundi vera. Þegar hlutabréfaeigendur fá skattfrjálsan arð, munu þeir að sjálfsögðu leggja á það megináherzlu, að félögin greiði sem mest af hagnaði í arð, og það er auðveldað að gera þetta með arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulaginu. Það er hins vegar látið skína í það, að þetta skattfrelsi á hlutabréfaarði muni verða til þess, að menn kaupi frekar hlutabréf í félögunum og eigið fé þeirra aukist á þann hátt, en það er enginn kominn til með að segja það, að svo verði. Og það er heldur enginn kominn til með að segja það, að hlutafélögin opni sig nokkuð frekar af þessum ástæðum. Það er miklu meiri ástæða til að halda, að hlutabréfaeigendur reyni að halda félögunum lokuðum, eftir að farið er að veita skattfrjálsan arð af hlutabréfum.

Jafnframt er sú mikla hætta, sem atvinnurekendur benda á í bréfi sínu, að þetta fyrirkomulag geti leitt til þess, að alls konar atvinnurekstur, sem er rekinn af einstaklingum nú sem einstaklingsrekstur, breyti um það form og menn taki upp hlutafélagafyrirkomulagið til þess að ná í þennan skattfrjálsa arð. Það er t.d., eftir að búið er að samþykkja frv. eins og þetta, þ.e. þessi ákvæði þess, orðið hagsmunamál fyrir bóndann að breyta sínum rekstri í hlutafélög, vegna þess að hann getur þá gert svo og svo mikið af sínum tekjum skattfrjálsar með því að reikna sér þær sem arð af hlutabréfum. Og búast má við því, að ótalmörg smáfyrirtæki, sem nú eru rekin sem einstaklingsfyrirtæki, breyti sínu rekstrarfyrirkomulagi og verði hlutafélag vegna þessara ákvæða. Þannig er hætta á því, að það rísi upp fjöldi smárra hlutafélaga, og það er áreiðanlega óhagstæð og óheppileg þróun fyrir atvinnulífið í landinu. En þetta er ein hættan, sem fyrir þessu.

Önnur meginhætta, sem stafar af þessum ákvæðum, er þó sú, að með því að fella varasjóðinn niður og láta arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulagið koma í staðinn og skattfrelsi á hlutabréfaarðinum þá sogist mikið fé út úr fyrirtækjunum, sem annars hefði færzt þar í varasjóð. Þess vegna er það ákaflega einkennilegt, að t.d. flokkur eins og Sjálfstfl., sem hvað eftir annað hefur verið að prédika það, að það væri nauðsynlegt, að félögin gætu safnað sem mestu af eigin fé, skuli beita sér fyrir þeim breytingum að fella varasjóðina niður og láta arðjöfnunarsjóðina og skattfrelsi hlutabréfaarðsins koma í staðinn. En á þessu er þó einföld skýring, og hún er sú, að þegar til kastanna kemur, þá eru það ekki þeir, sem bera hag atvinnuveganna sérstaklega fyrir brjósti, sem ráða Sjálfstfl. og hafa mest að segja þar. Það eru hinir, sem eiga hlutabréfin, og þeir hafa margir allt annarra hagsmuna að gæta en hinir, sem eiga að stjórna atvinnufyrirtækjunum. Þess vegna held ég, að afstaða t.d. margra sjálfstæðismanna til þessa máls sé sú, að þeir, sem eru í sjálfum atvinnurekstrinum, þeir, sem eiga að stjórna fyrirtækjunum, og þeir, sem eiga að sjá um það, að það sé sæmilegt fjármagn í þeim, eru á móti þessari breytingu. Hins vegar eru hinir, sem eru einhvers staðar úti í bæ, koma ekkert nálægt rekstrinum, en eiga bréfin og vilja fá sem mestan arð af þeim; það eru þeir, sem knýja þessar breytingar fram. Og það sést þess vegna glöggt af þessu, hvaða öfl það eru, sem í raun og veru ráða mestu í Sjálfstfl.

Eftir að þessi mótmæli atvinnurekenda komu fram, var talsvert fjaðrafok í herbúðum stjórnarinnar og — ég held — ekki sízt í herbúðum Sjálfstfl. Þá var byrjað á því í þriðja sinn að semja þetta frv. upp. Og nú liggja fyrir brtt. frá meiri hl. fjhn., sem eru að mörgu leyti alveg nýtt frv. Þetta er eiginlega þriðja frv. þess eðlis, sem hér liggur fyrir. Ég man ekki eftir því, að síðan ég kom á þing — og ég fylgdist nú talsvert með þingstörfum hér áður –hafi ég nokkurn tíma séð þskj., þar sem brtt. hafa tekið einar 11 síður eins og þær brtt., sem meiri hl. fjhn. hefur lagt fram að þessu sinni. Og það er vegna þess, að það er eiginlega búið að gerbreyta að mörgu leyti frv. frá því, sem áður var, en því miður eru þessar breytingar, sem hafa verið gerðar á frv., fyrst og fremst varðandi ýmis aukaatriði þess, en aðalatriðin standa hins vegar áfram. Arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulagið á að haldast áfram, og hlutabréfaarðurinn á að vera skattfrjáls. Það hefur þess vegna í raun og veru þrátt fyrir alla þessa löngu brtt. ekki verið gengið til móts við hina raunverulegu hagsmuni atvinnurekstrarins, vegna þess að hagsmunir hlutabréfaeigendanna hafa verið látnir sitja í fyrirrúmi. Það sýnir enn sem fyrr, eins og ég er búinn að nefna hér, að þeir, sem mega sín mest í Sjálfstfl. og þar af leiðandi líka í Alþfl., sem er nú ekki annað en eins konar diskur Sjálfstfl., eru ekki sömu mennirnir og þeir, sem standa í sjálfum atvinnurekstrinum, stjórna fyrirtækjunum og vilja hafa sem mest eigið fé í fyrirtækjunum; það eru hluthafarnir úti í bæ, hinir fjársterku hluthafar úti í bæ, sem hvergi koma nálægt rekstrinum, en heimta að fá sem mestan arð af honum, sem hafa hér fengið að móta stefnuna.

Þetta skýrist líka enn betur, þegar það er tekið til athugunar, að í sambandi við þessa athugun er alveg sleppt öllum öðrum skattamálum atvinnuveganna en þessu eina. Því er sleppt að fást nokkuð við aðstöðugjöldin, því er sleppt að taka fasteignaskattana til athugunar, því er sleppt að taka útsvörin til athugunar, því er sleppt að taka iðnlánasjóðsgjaldið til athugunar, því er sleppt að taka til athugunar það, sem bændur greiða í stofnlánasjóði, því er sleppt, sem atvinnuvegirnir greiða í byggingarsjóðinn og íbúðarlánasjóðinn, og það er sleppt einum 20–30 sköttum öðrum, sem atvinnuvegirnir verða að greiða. Það er ekki hróflað við neinu af þessu. Það er bara tekið fyrir þetta eina mál, tekju- og eignarskatturinn, sem er að verða einna minnst tilfinnanlegur af sköttunum, sem atvinnufyrirtækin greiða, og það stafar eingöngu af því, að það er ekki verið að breyta þessum skattalögum atvinnurekstrinum í hag. Það er verið að breyta þeim til hagsbóta fyrir þá menn, sem eiga fyrirtækin, hlutabréfaeigendurna, sem sitja úti í bæ, og koma ekki nálægt atvinnurekstrinum, og það er verið að stuðla að því með þessu, að eigið fé í fyrirtækjunum safnist miklu síður fyrir en hefur verið fram að þessu, þegar um skattfrjálsan varasjóð hefur verið að ræða, og því er þetta frv. beinlínis atvinnurekstrinum í óhag.

Það kunna einhverjir að segja, að það hafi verið komið á vissan hátt til móts við sjónarmið atvinnurekstrarins í brtt. meiri hl. vegna þess, að nú eiga fyrirtækin að geta valið á milli þess að hafa skattfrjálsan varasjóð samkv. núgildandi l. eða arðjöfnunarsjóð samkv. því, sem gert er ráð fyrir í frv. En það er bara einn böggull látinn fylgja skammrifi, sem verður til þess, að varasjóðsleiðin verður allt of lítið notuð, og hann er sá, að þeir hlutabréfaeigendur, sem eiga hlutabréf í félagi, sem hefur varasjóð, fá arðinn ekki skattfrjálsan. Aftur á móti fá þeir hlutabréfaeigendur, sem eru í félagi, sem hefur arðjöfnunarsjóð, arðinn skattfrjálsan. Þetta verður að sjálfsögðu til þess, að hlutabréfaeigendur knýja á um það, að það verði yfirleitt farin arðjöfnunarsjóðsleiðin. Fleiri og fleiri hlutafélög munu fara inn á þá braut, og það leiðir óhjákvæmilega til þess, að eigið fé, sem safnast fyrir hjá fyrirtækjunum, verður miklu minna en ella, því að arðjöfnunarsjóðnum er fyrst og fremst ætlað það hlutverk að greiðast allur sem arður. Þess vegna er það, að framlag í arðjöfnunarsjóð á að vera skattskylt að 5 árum liðnum, ef það verður ekki greitt út í arð. Ég er alveg sannfærður um það, að hér er stigið rangt spor vegna þess, að hefði Alþ. rétta íhlutun í þessu máli, þá ætti það að stuðla að því, að það safnaðist meira eigið fé hjá fyrirtækjunum, og það væri kannske miklu skynsamlegra að ganga í þá átt að gera varasjóðinn enn þá sterkari en hann nú er. En þetta nýja fyrirkomulag, arðjöfnunarsjóðurinn og skattfrjáls hlutabréfaarður, verður til þess, að það fé, sem lagt hefur verið í varasjóðina fram að þessu, verður greitt út sem arður að mestu eða öllu leyti og eigið fé fyrirtækjanna minnkar sem því svarar.

Það er sem sé, eins og ég hef áður vikið að, að í stað þessa á að koma svo og svo mikil sala á hlutabréfum, en ég hef mjög takmarkaða trú á því, að svo verði, sökum þess m.a., að í t.d. — við skulum segja — hlutafélögum, sem gefa sæmilegan arð af sér, hafa hlutabréfaeigendur ekki áhuga á því að bjóða út hlutabréf. Og þetta sást t.d. á því, að þegar fulltrúar atvinnurekenda voru að ræða við embættismannanefndina um breytingar á þessu frv., þá lögðu þeir til, að það ákvæði yrði sett í frv., að skattfrelsi á hlutabréfaarði skyldi aðeins ná til þeirra félaga, sem seldu bréf sín á opnu kaupþingi — til félaga, sem höfðu hlutabréf sín til sölu, eins og viðgengst viða annars staðar. Þetta hefur ríkisstj. ekki viljað fallast á. Og það er vegna þess, að hún vill ekki fara þá leið, að hlutafélögin séu opin eins og þau væru með þessum hætti. Þess vegna var þessi till. atvinnurekenda lögð til hliðar. En það væri óneitanlega veruleg breyting í rétta átt, ef það væri gert að skilyrði fyrir skattfrelsinu, að þau félög eða hluti af þeim félögum, sem nytu þess, hefðu sín bréf stöðugt til sölu á opnum markaði. Þá gætu þeir, sem vildu, haft aðgang að því að kaupa þau, en á þessa till. atvinnurekenda vildi ríkisstj. ekki fallast, eða þeir menn, sem vinna fyrir hana, og þess vegna er hætt við því, að hlutafélögin verði áfram lokuð. Og því meiri arður, sem verður af rekstri þeirra, því meiri líkur eru til þess, að hlutabréfaeigendur vinni að því, að þau verði lokuð og bréfin fáist ekki til sölu á frjálsum markaði.

Það er skoðun okkar, sem stöndum að þessu áliti minni hl., að það sé rangt og óheppilegt að taka til meðferðar einn þátt skattamálanna, heldur sé það mjög mikilvægt, að þau séu endurskoðuð í einni heild, og það er ein ástæðan til þess, að við leggjum fram þá brtt., sem hér liggur fyrir. Önnur ástæðan er svo sú, eins og ég hef verið að færa rök að, að þessi breyting hlýtur að stuðla að því, að miklu minna eigið fé safnast hjá fyrirtækjunum en ella. En nú kem ég að þriðju ástæðunni, sem er ekki síður þung á metaskálunum, og hún er sú, að það er fyllsta ranglæti að veita hlutabréfaeigendum það skattfrelsi, sem felst í þessu frv. eða þessum breytingatill., á sama tíma og fyrirsjáanlegt er, að skattvísitölunni verður beitt þannig, að láglaunamenn verða að greiða mjög háa skatta.

Ég held, að það sé rétt að rekja þetta mál þannig að rifja upp þau loforð, sem hæstv. ríkisstj. gaf, þegar hún kom til valda. Það var rétt eftir, að hún kom til valda á árinu 1960, og þá var það loforð hennar, að almennar launatekjur skyldu undanþegnar tekjuskatti. Ég held, að ég hafi þá ágætu bók einhvers staðar, þar sem þetta loforð er að finna, en ég tel, að það sé óþarft að fletta upp á því hér, því að öllum þm. og hæstv. fjmrh. er kunnugt um það ákvæði.

Nú var hæstv. ráðh. að reyna að færa rök að því við 1. umr. þessa máls, að eins og hann beitti skattvísitölunni núna fullnægði hún alveg þessu atriði, að almennar launatekjur væru undanþegnar tekjuskatti, og hann komst að þessari niðurstöðu á þann hátt, að hann hafði látið Efnahagsstofnunina reikna út, hvað verkamaður í Dagsbrún hefði átt að hafa á síðasta ári samkv. 1. taxta Dagsbrúnar og með 15% yfirvinnu til viðbótar. Það, sem kom út, var 192–193 þús. kr., og svo sagði ráðherrann, að samkv. skattvísitölunni, sem við erum búnir að ákveða og er í þessu frv., þá eiga hjón að fá frádrátt, sem nemur 188 þús. kr., svo að það vantar ekki nema 4 þús. kr. á það, að almennar launatekjur séu undanþegnar tekjuskatti, og þannig sé alveg staðið við það loforð, sem ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hafa gefið.

En nú vill svo til, að það eru aðrir hæstv. ráðh., sem hafa látið reikna út fyrir sig, hverjar hefðu verið atvinnutekjur verkamanna og launamanna á síðasta ári og hverjar væru almennar launatekjur, og þeir hafa látið gera þessa útreikninga með tilliti til þess að geta sýnt fram á það, að kaupgeta almennings hefði verið sem mest. Þetta eru þeir hæstv. viðskrh. og hæstv. landbrh. Þeir hafa báðir birt tölur um það, hverjar hafi verið almennar launatekjur í landinu 1970. Ég hef þær tölur því miður ekki við hendina, en hæstv. fjmrh. getur áreiðanlega útvegað þær. En ég get fullvissað hann um það, að þessar tölur, sem þeir eru með, landbrh. og viðskrh., um það, hverjar hafa verið almennar launatekjur á síðasta ári, eru sennilega um það bil helmingi hærri en þessi upphæð eða meira og samkv. þeim þyrfti skattvísitalan að hækka æðimikið eða skattfrádrátturinn, ef það ætti að fullnægja því loforði ríkisstj. að undanþiggja almennar launatekjur tekjuskatti. Ég skal ekkert fullyrða um það, hvort þessar tölur landbrh. og viðskrh. séu réttar. Ég er hálfhræddur um það, að ekki sé mikið að marka þessar mismunandi tölur, sem ráðh. eru alltaf að birta öðru hverju eftir því, hvort þeir þurfa að miða almennar launatekjur við skattvísitöluna eða hvort þeir þurfa að vera að sýna fram á það, að verkamenn hafi svo og svo góð kjör. En hitt er áreiðanlega víst, að almennar launatekjur á s.l. ári hafa sem betur fer verið talsvert miklu hærri en 192 þús. kr., þó að það séu þær tekjur, sem verkamenn hafi fengið miðað við lægsta taxta og miklu minni eftirvinnu og aukavinnu en þeir hafa haft.

Mér finnst það mjög líklegt eftir þeim upplýsingum, sem ég hef haft, að það væri ekki óeðlilegt að tala um það, að almennar launatekjur hafi á síðasta ári verið í kringum svona 350 þús. kr. eða um það bil og jafnvel kannske hærri en það — um það þori ég ekki að fullyrða. En það er alveg víst, að verði skattfrádrátturinn ekki hærri en hann er ákveðinn í frv., 134 þús. kr. fyrir einstakling og 188 þús. kr. fyrir hjón, þá lenda langflestir launþegar í því á þessu ári vegna þeirra kauphækkana, sem þeir fengu á síðasta ári, að greiða stórhækkaða skatta.

Og þetta skýrist líka nokkuð fyrir mönnum, ef þeir lesa þær brtt., sem liggja hér fyrir frá hv. fjhn. Þar er lagt til, að sú breyting komist á, að skattskrár skuli ekki lagðar fram fyrr en 20. júní. Samkv. núgildandi lögum á að leggja skattskrár fram fyrir 1. júní. Það er skiljanlegt, að ríkisstj. kæri sig ekki neitt um það, að menn séu búnir að sjá skattskrána fyrir 13. júní, þegar kosningar fara fram. Ástæðan til þessara breytinga er einfaldlega sú, að ríkisstj. vill ekki láta það sjást, hverjir skattarnir verða samkv. þeirri skattvísitölu, sem hún hefur ákveðið. Með því að beita skattvísitölunni, eins og hæstv. ríkisstj. hefur gert, þá stefnir hún að stórfelldri skattahækkun á þessu ári. Og það er að sjálfsögðu — það þarf ekki að færa nein rök að því, það liggur svo í augum uppi — hið fullkomnasta ranglæti, sem hægt er að hugsa sér, að ætla að veita hlutabréfaeigendum, sem yfirleitt tilheyra efnaðri stétt þjóðfélagsins, mjög veruleg skattfríðindi, meðan skattvísitölunni er þannig beitt, að skattar á lágtekjufólki hljóta að stórhækka. Þess vegna getur enginn maður, sem er sæmilega sanngjarn, átt sinn þátt í því að samþykkja frv., eins og það er.

Ég sakna þess, að hæstv. viðskrh. skuli ekki vera hér viðstaddur, en hann var nýlega á einhverjum fundi — ég man ekki hvar — að lýsa yfir því, að það væri áreiðanlega hægt að gera skattalögin miklu heilbrigðari og sanngjarnari en þau eru nú. Er það skoðun viðskrh. og hans flokks, að það sé leiðin til að gera skattalögin heilbrigðari og sanngjarnari að veita hlutabréfaeigendum stórfelld skattfríðindi á sama tíma og skattvísitalan er raunverulega fölsuð til þess að hækka skatta á lágtekjufólki? Ég leyfi mér að kalla það hreina fölsun, þegar skattvísitalan er ekki ákveðin nema 168 stig, en ætti að vera 196 stig — ef fylgt hefði verið framfærsluvísitölu, eins og ætti að gera og alþm. hefðu raunar átt að gera, þó að það hafi verið gengið þannig frá því í seinustu skattalögum, að fjmrh. eigi að ákveða vísitöluna að fengnum till. vissra aðila.

Það vill nú svo vel til, að þeir hæstv. ráðh., sem ráða kannske mestu hér á hæstv. Alþ. a.m.k. um þessi mál, hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., fluttu einu sinni frv., þegar þeir voru ungir þm. Það frv. fjallaði að vísu um breytingar á skattalögum og hét frv. um lækkun skatta á lágtekjum eða eitthvað þess háttar, og aðalefni þess frv. var að taka upp það fyrirkomulag, að skattar hækkuðu eða lækkuðu í samræmi við framfærsluvísitöluna, sem þá að vísu var kölluð líka kaupgjaldsvísitala, en var raunar eitt og hið sama. Og þeir bentu réttilega á það, að væru skattstigarnir og frádrættirnir ekki látnir hækka eða lækka til samræmis við verðlagið í landinu, þá lentu menn oft í hinum hæstu sköttum, án þess að rauntekjurnar hefðu nokkuð verulega aukizt eða hækkað, sökum þess að kaupið eða tekjurnar höfðu hækkað í krónutölu, og þess vegna töldu þeir alveg sjálfsagt, að breyting eins og þessi yrði gerð. Ég verð að segja það, að mér finnst það næstum sorglegt að sjá þessa ágætu ráðh. troða þannig á sínum góðu og gömlu æskuhugsjónum, því að þetta var meðal fyrstu mála, sem þeir fluttu hér á Alþ. sem ungir þm.

En þó finnst mér það samt enn þá furðulegra, að Alþfl., sem hefur talið sig eiga að gæta hagsmuna láglaunafólksins og alþýðustéttanna, skuli veita stuðning sinn til þess að láta skattalöggjöfina þróast í þessa átt. Ég hef satt að segja ekki viljað trúa því á þingi í vetur, að þetta frv. næði fram að ganga, því að ég hef eiginlega haft enn þá trú á Alþfl. og talið, að hann myndi þó enn þá það mikið eftir sínum gömlu stefnumálum, að hann mundi ekki taka þátt í því að stórauka skattfríðindi hlutabréfaeigenda á sama tíma og búið er að láglaunafólki, eins og gert er, með því að beita skattvísitölunni á þann veg, sem ríkisstj. ætlar sér að gera núna. Ég vil vænta þess fram á síðustu stund, að það komi einhver mótspyrna fram af hálfu Alþfl. gegn þessu og þetta verði ekki látið viðgangast, nema einhver stórfelld leiðrétting fáist á skattvísitölunni, því að hvað launþegana snertir, þá er það a.m.k. allt annar blær á því, ef málið næði fram að ganga með þeim hætti. Eftir stæði eigi að síður hitt, að frv. væri jafnskaðlegt fyrir atvinnureksturinn eða sú breyting, sem í því felst, vegna þess að það stuðlar að því, að eigið fé hans hlýtur að dragast verulega saman, þar sem arðgreiðslur koma til með að aukast stórlega úr fyrirtækjunum.

Vegna þess að ég og meðnefndarmaður minn, sem stendur að þessu nál., leggjum það til, að málinu verði vísað frá með rökst. dagskrá, þá sé ég ekki ástæðu til þess að ræða á þessu stigi um einstök atriði í brtt. meiri hl. Ég tel, að þó að ýmsum minni háttar atriðum sé breytt þar til bóta, þá séu aðalatriði frv. jafnóhagstæð og áður og þess vegna eigi að vísa þessu frv. frá með rökst. dagskrá, eins og gert er í nál. okkar.

En það, sem ég vildi nú segja að síðustu, er það, að ég vildi eiginlega vona, að beztu öflin í Sjálfstfl. og beztu öflin í Alþfl. sameinuðust um það að lokum að stöðva þetta frv., en þegar ég nefni beztu öflin í Sjálfstfl. í sambandi við þetta mál, þá á ég eiginlega við þá menn, sem standa mitt í sjálfum atvinnurekstrinum — atvinnurekendurna, sem finna það manna bezt, hve mikilvægt það er, að fyrirtækið geti safnað eigin fé og byggt upp eigin sjóði. Ég tel það alveg víst, að þessir menn hljóti að lita svo á, að það sé miklu betra fyrir fyrirtækin að byggja upp skattfrjálsa varasjóði en stofna arðjöfnunarsjóði, sem allir eiga að greiðast út í arð á 5 árum. Ég trúi því, að beztu öfl Sjálfstfl. að þessu leyti rísi upp og stöðvi frv. al þessum ástæðum, og ég vil jafnframt vænta þess, að þau öfl, sem ég vildi segja, að væru beztu öflin í Alþfl., þ.e. sá hluti Alþfl., sem ég hygg, að enn þá hafi vissa samúð með láglaunastéttunum í landinu, rísi nú einnig upp og stöðvi þetta frv. vegna þess, hversu ósanngjarnt það er gagnvart láglaunastéttunum, þar sem stórhækka á skatta á þeim á sama tíma og hluthafar eiga að fá stóraukin skattfríðindi.