29.03.1971
Neðri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1193 í B-deild Alþingistíðinda. (1346)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 1. minni hl. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Vesturl. hefur nú svarað ýmsu því, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh. og ég hafði ætlað mér að gera aths. við, svo að ég get haft það styttra en ella, sem ég segi hér. En ég ætla samt að víkja að tveimur eða þremur atriðum, sem komu fram í ræðu ráðh., og ég ætla þá að víkja fyrst að því, að ráðh. sagðist ekki geta skilið það, hvernig ákvæði þessa frv. ættu að stuðla að því, að dregið væri fé úr fyrirtækjunum og eigin fjármyndun hjá þeim minnkaði. Og ráðh. talaði helzt á þá leið, að ætla mætti, að þetta væri einhver uppfinning hjá mér eða stjórnarandstöðunni að túlka ákvæði frv. á þennan veg og þó sérstaklega það ákvæði þess að gera arð á hlutabréfum skattfrjálsan, en ég get sagt hæstv. ráðh. það, að það eru menn, sem eiga að þekkja miklu betur til atvinnurekstrar en bæði ég og hann, sem halda þessari skoðun fram.

Í bréfi dags. 25. febr. 1971 sendu atvinnurekendur fjhn. álit sitt á þessu frv. Þar víkja þeir sérstaklega að 9. gr. frv., en hún fjallar um það, að arður af hlutabréfum verði skattfrjáls að mjög verulegu marki. Og álit þeirra á gr. eða þessu atriði er á þá leið m.a., að þessi till. um breyt. á þessum lið, þ.e.a.s. af þeirra hálfu, sé eitt þeirra atriða, sem athuga þarf í sambandi við endurskoðun l. um tekjustofna sveitarfélaga. Einnig benda þeir á, að taka beri fram, að vafasamt sé, að það feli í sér úrlausn máls þessa til frambúðar m.a. vegna þeirra fyrirsjáanlegu afleiðinga, sem það hefur.

Nú vona ég, að hæstv. ráðh. taki sérstaklega eftir því, sem atvinnurekendur segja um að gefa hlutabréfaarð skattfrjálsan: Má í þessu sambandi segja, að jafnhliða arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulaginu mundu þessar reglur þrýsta óhæfilega mikið á um arðgreiðslur úr hlutafélögunum.

Þarna segja atvinnurekendur beinum orðum, að ef arður af hlutafé eða hlutabréfum verði gefinn skattfrjáls, þá muni það þrýsta óhæfilega mikið á um arðgreiðslur úr hlutafélögunum, þ.e. það muni leiða til þess, að hlutafélögin verði að greiða miklu meiri arð en hingað til, en það verður að sjálfsögðu til þess, að eigin fjármyndun þeirra sjálfra minnkar og það verður dregið þarna meira fé úr félögunum en ella.

Við þetta bætist svo arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulagið, en um það segja þeir á öðrum stað, þar sem þeir fjalla um 6. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulaginu. 6. gr. fjallar um það að leggja varasjóðinn niður og taka upp arðjöfnunarsjóð í staðinn, og um þá breytingu farast atvinnurekendunum svo orð:

Lagt er til, að gr. verði felld niður, þ.e. um arðjöfnunarsjóðinn, og núgildandi reglur um varasjóðinn látnar haldast óbreyttar, a.m.k. þar til endurskoðun hefur farið fram á l. um tekjustofna sveitarfélaga. Að óbreyttum lögum er það fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir, öllum þorra fyrirtækja mun óhagstæðara en það, sem þau eiga nú við að búa. Virkjun skattprósenta þeirra félaga, sem afla sér eigin fjár með samanspunnum eigin ágóða, hækkar til muna, eins og raunar er viðurkennt í grg. frv. Og síðan segir, og ég legg til, að hæstv. ráðh. taki sérstaklega eftir því: Hið ótímabundna skattfrelsi varasjóðanna er mun hagstæðara slíkum félögum en reglur frv. um arðjöfnunarsjóð, þar sem fyrst ber að greiða 15% skatt ásamt tekjuútsvari, þegar fé er í hann lagt, og síðan 20% tekjuskatt aftur að 5 árum liðnum, hafi féð ekki verið greitt út sem arður eða notað til að mæta tapi.

Þarna er það alveg ótvírætt álit atvinnurekenda, að arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulagið sé miklu óhagstæðara fyrirtækjunum en varasjóðsfyrirkomulagið, vegna þess að það kalli á það, að það sé borgaður út miklu meiri arður og þar af leiðandi safnist minna fé hjá fyrirtækjunum en ella. Þess vegna er það alveg tvímælalaust, að þessi tvö meginatriði, sem frv. fjallar um, þ.e. að gera arðinn af hlutabréfum skattfrjálsan og taka upp arðjöfnunarsjóð með þeim hætti, sem hér er gert ráð fyrir, verða til þess, að eigin fjármyndun hjá fyrirtækjunum minnkar, og það áreiðanlega í mörgum tilfellum mjög verulega. Það, sem á svo að koma í sjóðinn, er einhver óviss von um hlutabréfasölu, sem enginn veit, hver verður — og alls ekki einu sinni víst, eftir að hlutabréfaeigendur eru farnir að taka aukinn arð af hlutabréfunum, að þeir leyfi það, að hlutafélögin hafi ný hlutabréf til sölu, a.m.k. þau félög, sem skila sæmilegum arði. Þar munu hlutabréfaeigendur koma í veg fyrir það, að nýir aðilar geti keypt hlutabréf, vegna þess að þeir munu telja það svo hagkvæmt að eiga bréfin sjálfir, að þeir munu ekki sleppa öðrum í að kaupa slík bréf.

Þetta mundi að vísu líta talsvert öðruvísi út og í því vera fólgin veruleg breyting, ef það fyrirkomulag væri tekið upp, sem mér skilst, að atvinnurekendur hafi bent á, að arður af hlutabréfum verði því aðeins skattfrjáls, að viðkomandi félög hafi jafnan til sölu hlutabréf á opnum markaði, en fyrir því er alls ekki gerð grein í þessu frv. Sannleikurinn er líka sá, að ef á að fara að veita hlutabréfaeigendum og hlutafélögum einhver sérstök forréttindi og betri aðstöðu en öðrum félagsrekstri eða atvinnurekstri í landinu, þá er það óhjákvæmilegur undanfari, að hlutafélagalögin verði tekin til mjög gagngerðrar endurskoðunar. Það hefur staðið til í mörg ár að endurskoða l. um hlutafélög, en af því hefur ekki orðið enn. En það hefði verið alveg grundvallaratriði, sem hefði þurft að vera fyrir hendi, áður en farið var að breyta skattalögunum í þá átt, sem nú er gert ráð fyrir.

Þá var hæstv. ráðh. að gera ráð fyrir því, að það mundi leiða af þeirri breytingu, sem hér er gerð á skattal., að fyrirtækin yrðu færri og stærri. Atvinnurekendur eru alveg ósammála um þetta. Samkv. þeirra áliti verður þetta fyrirkomulag, sérstaklega það fyrirkomulag að gera arðinn skattfrjálsan, til þess að fjölga smáhlutafélögum, og þeir óttast bersýnilega, að eftir að þessi breyting er komin á, muni allt úa og grúa hér í smáhlutafélögum. Í áliti þeirra segir um 9. gr. frv., sem fjallar um það að gera arðinn af hlutabréfum skattfrjálsan, á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

Í annan stað er vert að benda á, að eins og löggjöf um hlutafélög er nú háttað, er nánast hægt að stofna hlutafélög um hvaða smáatvinnurekstur sem vera skal. Af þessu leiðir, að smáatvinnurekendur og jafnvel einyrkjar, í hvaða atvinnugrein sem er, gætu í reynd valið um skattlagningarform hlutafélags og einstaklings. Hin misjöfnu skattakjör mundu því að líkindum þrýsta einstaklingsrekstrinum að mestu yfir í smáhlutafélög.

Þetta er alveg augljós afleiðing, sem hlýzt af þessari breytingu. Einstaklingur, sem nú rekur smáverzlun, smáiðnfyrirtæki eða jafnvel þokkalegt bú, getur tryggt sér verulegt skattfrelsi með því að breyta sínum rekstri í hlutafélag. Hann reiknar sér lágar tekjur af atvinnurekstrinum, en lætur fyrirtækið eða hlutafélagið borga sér þeim mun hærri arð. Þannig getur hann öðlazt veruleg skattfríðindi. Og það er áreiðanlegt, að þetta er sú þróun, sem verður mest áberandi afleiðing þessa frv., þ.e. að það þjóta hér upp smáhlutafélög í tuga- og hundraðatali. Og á þennan hátt geta þeir, sem stunda hér svona smáatvinnurekstur, að sjálfsögðu tryggt sér veruleg skatthlunnindi umfram t.d. launamenn, sem geta ekki komið slíkum aðferðum við til að komast hjá skatti.

Ég held, að það gildi um þetta atriði eins og svo mörg önnur, að hæstv. ráðh. og hv. stjórnarþm. hafi alls ekki gert sér grein fyrir því, hvað er hér á ferðinni. Það hefur verið sótt fast — ég veit, að það hefur verið sótt geysilega fast af hálfu ýmissa fjársterkra hlutabréfaeigenda — að fá þá breytingu gerða á skattal., að arður af hlutafé verði gefinn skattfrjáls. En því fylgja svo margvíslegar afleiðingar, að ég er alveg sannfærður um það, að hæstv. fjmrh. hefur alls ekki gert sér þær allar ljósar fyrir fram, og ég held, að hann hafi t.d. alls ekki hugsað út í þá breytingu eða þau áhrif, sem þetta getur haft í þá átt, að það rísi upp hundruð eða jafnvel þúsundir smáhlutafélaga í landinu í framhaldi af þessari breytingu, sem hér er um að ræða. En áhrif hlutabréfaeigendanna eru geysilega sterk í Sjálfstfl. og eru að sjálfsögðu nokkuð sterk innan atvinnurekendasamtakanna líka, vegna þess að þó að atvinnurekendur, sem standa sjálfir í atvinnurekstrinum, vilji og telji sér skylt að hugsa fyrst og fremst um hag fyrirtækjanna og að byggja upp eigið fjármagn þeirra, þá eiga þeir yfir sér húsbændur, sem eru hlutabréfaeigendurnir, og þeir geta kippt í spottann, ef þeim sýnist svo.

Ég er hræddur um, að eitthvað slíkt hafi gerzt, sem veldur þessu furðulega áliti, sem hæstv. fjmrh. var að lesa hér upp úr og átti að vera bréf, sem atvinnurekendur eða fulltrúar atvinnurekenda höfðu skrifað honum 19. marz s.l. Þetta bréf er nefnilega í svo algerri andstöðu við það bréf, sem sömu aðilar sendu fjhn. nokkrum vikum áður eða 25. febr. 1971. Það er alveg bersýnilegt, að þar hafa einhverjir kippt í spottann. Í því bréfi, sem við fengum frá atvinnurekendum og var dags. 25. febr. 1971, er megináherzla lögð á það, að tekju- og eignarskatturinn sé ekki tekinn sérstaklega út úr skattkerfinu og endurskoðaður og honum breytt, heldur séu allar skattaálögurnar teknar fyrir í einni heild. Það er meginatriðið, sem atvinnurekendur leggja áherzlu á í bréfinu 25. febr., sem þeir skrifuðu fjhn., þ.e. að tekjuskatts- og eignarskattsþátturinn í skattkerfinu verði ekki tekinn út úr, heldur verði allt skattkerfið endurskoðað í heild. Þetta er fyrsti liðurinn í þeirra bréfi og það, sem þeir leggja megináherzlu á. Síðan hefur bara eitthvað gerzt rúmlega þremur vikum seinna eða 19. marz s.l. Þá virðist hæstv. ráðh. vera kominn með bréf upp á vasann frá þessum sömu aðilum, þar sem

þeir segja: Nú höfum við ekki neinn áhuga lengur á því, að skattkerfið sé endurskoðað í heild. Við skulum bara láta það bíða. Við sættum okkur alveg við það, að þessi eini þáttur í skattkerfinu, tekju- og eignarskatturinn, skuli endurskoðaður. Það má sleppa öllu hinu.

Hvað hefur gerzt þarna? Hvað kemur til, að atvinnurekendur eða forvígismenn atvinnurekenda láta frá sér fara álit eins og þetta? Og ég er alveg sannfærður um það, að þetta hafa þeir ekki gert í samráði við meginþorra atvinnurekenda í landinu. Ég er alveg sannfærður um það, að meginþorri atvinnurekenda í landinu er fylgjandi þeirri stefnu, að það eigi að endurskoða skattkerfið í heild. Ég er alveg sannfærður um það, að atvinnurekendur vilja fá endurskoðun á aðstöðugjaldinu. Þeir vilja fá endurskoðun á útsvörunum, og þeir vilja fá endurskoðun á fasteignagjöldunum. Þeir vilja fá endurskoðun á þeirri stóru fúlgu, sem kemur til trygginganna. Þeir vilja fá endurskoðun á launaskattinum, og þeir vilja fá endurskoðun á skattinum, sem þeir greiða til Iðnlánasjóðs. Og þeir vilja ekki sízt af öllu fá endurskoðun á þessum 30 smásköttum, sem hafa verið lagðir á í tíð núv. ríkisstj. Það þarf enginn að segja mér, að atvinnurekendur séu búnir að missa áhugann á því, að þetta allt verði endurskoðað. En samt kemur þetta furðulega bréf frá forvígismönnum í atvinnurekendasamtökunum (Gripið fram í.) Þetta furðulega bréf, góðir hálsar, og þeir segja við þingið: Við höfum ekki minnsta áhuga á því lengur að endurskoða allt skattkerfið. Sleppið aðstöðugjaldinu, sleppið launaskattinum, sleppið útsvörunum, sleppið þessum 30 smásköttum. Látið þetta bara bíða, og sinnið því ekki neitt. Afgreiðið bara fyrir okkur tekju- og eignarskattinn. Og hver er þessi tekju- og eignarskattur, sem atvinnureksturinn greiðir nú? Hann er eitthvað í kringum 150 millj. kr. á síðasta ári, man ég var.

Ég held, að þetta sé eitthvert furðulegasta plagg, sem hefur sézt á Alþ., og ég veit ekki um jafnmikil og jafnsnögg skoðanaskipti eins og þau, sem hér hafa átt sér stað. Mennirnir, sem segja 20. febr.: Endurskoðið þetta allt saman. Við höfum engan áhuga lengur á því, að þið takið þetta eina út úr. Þeir eru alveg búnir að snúa við blaðinu 19. marz, rúmlega þremur vikum seinna og segja: Sleppið endurskoðun á þessu öllu saman nema bara tekju- og eignarskattinum. (Gripið fram í: Þeim er nú alveg sama um þetta allt saman.) Ég ætla ekki að vera með neinar útskýringar á því, hvað hefur komið þarna fyrir og hvernig hefur verið kippt í spottann. En það er alveg ómögulegt fyrir mig að finna neina skynsamlega skýringu á þessari stefnubreytingu, og ég verð að minna hæstv. ráðh. á það, að hann var að tala um það, að við framsóknarmenn ættum eftir að taka eitthvert tillit til þessara skoðanaskipta. Okkar skoðun er alveg óbreytt þrátt fyrir þetta bréf frá atvinnurekendum 19. marz s.l. Við teljum, að það sé meginnauðsyn fyrir atvinnurekstur í landinu, að það fari fram heildarendurskoðun á öllu skattkerfinu og ekki eingöngu vegna atvinnurekenda, heldur líka vegna einstaklinganna.

Skattkerfið er orðið margbrotið og flókið og ekki sízt vegna þess, hvernig stefnan í skattamálum hefur verið hjá hæstv. núv. fjmrh. og fyrirrennara hans, að það er alltaf verið að bæta við alls konar nýjum og nýjum sköttum. Það hala verið teknir hér upp skattar, sem ég held, að þekkist hvergi annars staðar í heiminum, svo að ég viti til. Ég held t.d., að það þekkist hvergi í veröldinni nema hér, að atvinnuvegirnir séu látnir borga í lánasjóði, sem svo veita þeim lán á eftir, eins og t.d. bændur eru látnir gera og iðnrekendur eru látnir gera. (Gripið fram í: Og útgerðarmenn líka.) Og útgerðarmenn líka; það er alveg rétt. Núv. stjórn hefur fundið þetta allt saman upp. Það var ekkert gjald lagt á atvinnuvegina til þess að fá í lánasjóði þeirra, fyrr en núv. ríkisstj. kom til valda. Iðnlánasjóðsgjaldið kom eftir það og líka launaskatturinn, sem lagður var á bændur. Hæstv. ráðh. getur flett upp í þingtíðindum og sannfært sig um, að þetta er rétt, sem ég segi um þetta efni. Og til viðbótar þessum sköttum, sem ég nefndi núna, þá hefur verið bætt við alls konar smásköttum öðrum. Þetta nál. frá embættismannanefndinni höfum við fengið að sjá sem mjög mikið trúnaðarmál, og mér hefur jafnvel skilizt, að við verðum að skila bókinni aftur. Ég veit nú ekki, hvort ráðh. gerir alvöru úr því, en ég afhendi að sjálfsögðu bókina aftur, ef farið verður fram á það, en þar eru taldir upp einir 30 skattar, sem ég held, að svo að segja allir — nema kannske þrír eða fjórir — hafi komið til sögunnar í tíð núv. stjórnar.

Við framsóknarmenn erum þeirrar skoðunar, að þrátt fyrir það, að atvinnurekendum hafi snúizt hugur og forvígismenn þeirra hafi ekki lengur áhuga á heildarendurskoðun skattalaganna, þá teljum við enn, að það sé nauðsynleg aðgerð, að slík endurskoðun fari fram og vegna þess sé óeðlilegt að taka einn þáttinn út úr, eins og gert er í þessu frv., og afgreiða hann sérstaklega. Og því er ég alveg sérstaklega mótfallinn vegna þess, að það er okkar skoðun, að þær meginbreytingar, sem þetta frv. fjallar um, verði til þess, að það verði minni myndun eigin fjármagns í fyrirtækjunum en þó nú er og það sé stefnt alveg í ranga átt. Til þess að koma hér upp traustu efnahagslífi þurfa fyrirtækin að geta safnað meiri og sterkari sjóðum en nú, en ekki minni. Þau þurfa að geta lagt þetta fé í varasjóði en ekki borga það út sem arð. Við teljum, að frv. stefni í algerlega ranga átt, hvað þetta snertir. Í þriðja lagi teljum við það höfuðrangindi, að á sama tíma og láglaunafólk fær ekki eðlilegar leiðréttingar á skattvísitölunni og verður þar af leiðandi að borga stórhækkaða skatta á næsta ári séu hlutabréfaeigendum veitt stórfelld skattfríðindi, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Þess vegna höldum við fast við þá stefnu okkar, að þessu frv. verði vísað frá með þeirri rökst. dagskrá, sem við höfum borið fram.