29.03.1971
Neðri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (1347)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Málflutningur hv. stjórnarandstöðu er með nokkuð einkennilegum hætti við þessa umr. Það er ýmist látið í veðri vaka, að frv, það, sem hér er til meðferðar, sé af þeim hvötum sprottið að styðja við bakið á atvinnurekendaauðvaldinu, eða hins vegar látið í það skína, að ekki sé nægilega mikið gert fyrir atvinnureksturinn í landinu. Þetta kom berlega fram hjá hv. síðasta ræðumanni, og skal ekki frekar fjölyrt um það. Ég vil þó aðeins geta um nokkur atriði þessa frv., sem ég hygg, að máli skipti fyrir þá stefnu, sem Alþ. vill marka atvinnurekstrinum og félögum í atvinnurekstri. Það hefur að vísu verið haft hér við orð, um leið og það er sagt, að frv. dragi taum atvinnurekenda, að atvinnurekendur vilji ekkert með efni frv. hafa að gera og vitnað er í álit þeirra þar að lútandi. Þegar svo hæstv. fjmrh. hefur vitnað til nýlegs bréfs þeirra, þar sem getið er um, að þeir skori á Alþ. að samþykkja frv., eins og því hefur verið breytt með brtt. fjhn., þá er ekkert mark lengur takandi á atvinnurekendum, þó að áður væri aðallega vitnað til þeirra um það, hvað rétt væri og hægt væri að gera í þessum efnum.

Það er ljóst mál, að atvinnurekendur voru ekki ánægðir með allar gr. frv., eins og það var upphaflega úr garði gert, en hins vegar hafa ýmsar þær ábendingar, sem þeir komu fram með, verið teknar til greina eins og t.d. um sameignarfélögin og nokkrar breytingar varðandi fyrningarreglur. Þá hefur reglum um skattlagningu söluhagnaðar verið hagað öðruvísi en upphaflega var ætlað, og um leið og félögum er í sjálfsvald sett, hvort heldur þau vilja halda varasjóði eða velja nýja leið með arðjöfnunarsjóði, þá er og takmarkað skattfrelsi arðs hjá viðtakanda. Þessar breytingar hafa allar orðið til þess, að samtök atvinnurekenda sjá sér og atvinnurekstrinum í landinu hag í samþykkt frv. svo breytts. Og það vill svo til, að öll gagnrýni hv. stjórnarandstöðu hér á efni þessa frv. hefur gengið í sömu átt og gagnrýni atvinnurekenda upphaflega, þannig að breytingar fjhn. eru til þess fallnar að koma til móts við hv. talsmenn stjórnarandstöðunnar að þessu leyti einnig. Þess vegna skyldi maður ætla, að þessir talsmenn minni hl. fjhn. sæju bjartar hliðar á þessum brtt. og brtt. væru til þess fallnar að bæta efni frv., þótt svo hafi ekki verið að heyra á þeim hér áðan. Og sannleikurinn er sá, að hér er ekki fjallað um málin af málefnalegum áhuga eða áhuga á atvinnurekstrinum í landinu eða félagarekstri almennt. Hér er fyrir fram mörkuð afstaða, neikvæð afstaða, eins og hv. stjórnarandstöðu er eiginlegt og hún hefur vanið sig á nú á undanförnum árum.

Það er rætt um það, að skattfrelsi arðs af hlutafé sé óeðlilegt. Og hvers vegna er um óeðlilega leið þar að ræða? Ég hygg, að allir hv. þm. hafi í einn eða annan tíma átt þátt í því annars vegar að viðurkenna skattfrelsi sparifjár og hins vegar að viðurkenna skattfrelsi spariskírteina. Það er verið að viðurkenna skattfrelsi þessara sparnaðarforma í því skyni að auka sparnaðarviðleitni meðal landsmanna vegna þess skilnings, sem ég býst við, að hv. þm. hafi allir á því, að sparnaður í þjóðfélaginu er undirstaða framfara, framkvæmda og fjárfestingar, sem atvinnurekstrinum og framförum í atvinnurekstri er nauðsynlegt. Nú viðurkennum við skattfrelsi sparifjár í bönkum landsins, þar sem hægt er að fá á ákveðnum bundnum innstæðum 9–10% vexti, þar sem innstæðan er ríkistryggð, þ.e. ríkið ber ábyrgð á því, að innstæðan ásamt áföllnum vöxtum fáist greidd á hverjum tíma. Við viðurkennum einnig skattfrelsi spariskírteinanna, en andvirði þeirra er notað í ýmsum tilgangi, t.d. að stuðla að opinberum framkvæmdum, sem ekki eingöngu gefa vexti frá 4 og upp í 6%, heldur eru endurgreidd með og í samræmi við byggingarvísitölu, þ.e. þau eru verðtryggð. Við viðurkennum hvort tveggja þetta sparifjárform sem skattfrjálst.

Hvar er þá ósamræmið í því að viðurkenna takmarkað skattfrelsi arðs af hlutabréfum? Hlutabréf eru í raun og veru ekki annað en sparnaðarform sem á að örva allan almenning til þess að nota sér. Í því efni má nefna, að hlutabréf sem sparnaðarform er ekki eins öruggt og innstæða í banka eða spariskírteini. Það er ekki eins öruggt, að hlutabréf gefi árvissan arð eins og bæði spariskírteini og sparifé í banka. Og þegar á það er bent, að hlutabréfin vaxi að verðgildi í samræmi við verðsveiflur í þjóðfélaginu eða réttara sagt haldi sínu verðgildi, þá má ekki gleyma hinu, að hlutafjárframlög verða ávallt áhættufé. Það er aldrei hægt að ganga að því sem vísu, að öruggt sé að fjárfesta í hlutabréfum. Það fer eftir gengi rekstrarins, sem peningarnir eru lagðir í. Og það er oft og tíðum nauðsynlegt, bæði í t.d. sjávarútvegi og nú t.d. í iðnaði, að hætta á, að hlutafé geti tapazt, ef ryðja á nýjar brautir á þessum sviðum. Það eru dæmi til þess, að hlutafé hafi tapazt, sem lagt hefur verið í sjávarútveg, og það er vissulega ekki útilokað nú, þegar okkur ríður á að ryðja nýjar brautir á sviði iðnaðar, að fé, sem í þann atvinnurekstur er lagt, geti tapazt. Þess vegna hygg ég, að skattfrelsi hlutafjár að ákveðnu takmörkuðu marki sé á engan hátt óeðlilegra en skattfrelsi annars sparnaðar í þjóðfélaginu. Hitt má svo deila um, hvort eigi að verðlauna sparnað í þjóðfélaginu með skattfrelsi og hvort það eigi að vera nauðsynlegt, að sparnaður í þjóðfélaginu sé skattfrjáls að einhverju eða öllu leyti. Þetta hefur samt sem áður ekki verið deiluefni á undanförnum árum. Við höfum verið sammála um það að veita sparnaði í þjóðfélaginu skattfrelsi, og ég hygg, að það sé nauðsynlegt til þess að tryggja framþróun í atvinnurekstrinum almennt.

Það er að vísu svo, að ekki má gleymast, þegar rætt er um skattlagningarreglur í atvinnurekstri, að undirstaða þess, að atvinnufyrirtæki geti nýtt hagkvæmar skattlagningarreglur, er sú, að atvinnufyrirtækin hafi möguleika á því að bera sig, gefa nokkuð í aðra hönd, og á það hefur skort oft og tíðum hér í okkar þjóðfélagi. Við erum gjarnan þannig gerðir, Íslendingar, að við viljum taka jafnóðum það, sem aflast, til okkar sjálfra og eyða því í okkar eigin þágu — til neyzlu ýmiss konar. Og þess vegna er einmitt meiri þörf en ella á því að örva sparnaðarviðleitni manna með því að verðlauna þá, sem ástunda slíkan sparnað. Það hefur verið rætt um það, að það fyrirkomulag að hafa arðjöfnunarsjóð og takmarkað skattfrelsi arðs hjá viðtakanda leiði til aukinnar arðgreiðslu úr hlutafélögum. Ég hygg, að hér sé nauðsynlegt að minnast þess, að hlutafélög geta verið óeðlilega íhaldssöm í því að greiða arð og mörg hlutafélög eru rekin hér á landi eingöngu sem atvinnuveitandi fyrir stjórnendur sína og tiltölulega fámennan hóp starfsmanna í stað þess að taka einnig tillit til hagsmuna þeirra, sem eiga fjármagn sitt í félögunum. Og það er ljóst mál, að við söfnum ekki fjármagni í stórum stíl í atvinnurekstri hlutafélaga, nema við viðurkennum, að það fjármagn verður að bera sams konar arð og önnur fjárfesting í þjóðfélaginu.

Ég hygg, að við getum allir verið sammála um það, að það sé nauðsynlegt að endurskoða skattalögin í heild sinni, en það er engu að síður nauðsynlegt að marka ákveðna stefnu í þeim efnum, og ég tel t.d., að það séu ákaflega æskilegar umr., sem hér fara fram og upplýsi það, hverjir það eru, sem vilja örva fjárfestingu í atvinnurekstri í landinu, og hverjir það eru, sem vilja verðlauna þá, sem leggja fjármagn sitt í atvinnurekstur, og það er undirstaða undir því, hvernig standa skuli að frekari endurskoðun skattalaganna. Mér er t.d. ljóst, að nokkur atriði þessa frv. gera það að verkum, að nokkuð muni draga úr skattstofnum sveitarfélaga, og ég tel nauðsynlegt að vekja athygli á því, að í framhaldi þessa máls við endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga sé tekið tillit til þessa með því að skapa sveitarfélögunum aðra og nýja tekjustofna eða með annarri skiptingu verkefna milli sveitarfélaga og ríkissjóðs en nú er. En ég get ómögulega lesið það út úr þessu frv., að hér sé verið að ívilna hlutabréfaeigendum á kostnað atvinnurekstrarins og hér sé verið að ívilna hlutabréfaeigendum á kostnað annarra aðila í þjóðfélaginu. Hér hefur verið nefnt, að 188 þús. kr. væri of lág upphæð sem persónufrádráttur fyrir hjón. Fyrir hjón eru 60 þús. kr. hámark þess arðs, sem greiða má skattfrjálsan af hlutabréfum, og til viðbótar er annað skilyrði sett — sem sé það, að ekki sé um að ræða meira en 10% arð af hlutabréfaeign. Þannig er ljóst, að ákvæði þessi miða að því, að skattfrelsið nái til hins almenna þjóðfélagsborgara, taki til þess, að hlutabréfaeign sé almenn í landinu, nýtist engum úr hófi fram, en sem flestum nokkuð — þeim, sem hafa skilning á því að leggja til hliðar nokkurt fé af aflafé sínu til þess að stuðla að örri uppbyggingu atvinnurekstrarins.

Ég skal að sinni ekki hafa þessi orð fleiri, en ég tel það mjög þarft, að Alþ. samþykki það frv., sem hér liggur fyrir, með þeim breytingum, sem fjhn. hefur lagt til, að gerðar væru á því. Ég tel, að það muni verða til þess að marka nokkuð stefnuna í þeirri áframhaldandi allsherjarendurskoðun á skattamálum ríkis og sveitarfélaga, sem við erum allir þm. sammála um, að nauðsynlegt sé, að fari fram.

Og í þeirri stefnumörkun þarf að koma fram, hver hefur skilning á því, að fjármagn þarf að safnast fyrir í atvinnurekstrinum sjálfum, og hver hefur skilning á því að örva allan almenning til þess að Íeggja sparifé sitt í atvinnureksturinn til þess að skapa betri og meiri tækifæri og bætt lífskjör fyrir almenning í landinu í framtíðinni.