30.03.1971
Neðri deild: 77. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1359)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það var aðeins í sambandi við þá 3. brtt., sem meiri hl. fjhn. flytur á þskj. 726, að komið hefur í ljós, að orðalagið er ekki nægjanlega skýrt til þess, að það, sem meint er í þessari breytingu, nái tilætluðum árangri, en við drögum 3. brtt. til baka og flytjum aðra í staðinn við sömu gr. og sama tölulið, þ.e. að ný mgr. komi á eftir 4. mgr. 16. gr. l., er orðist svo:

„Auk frádráttar samkv. 1. mgr. skal draga frá hreinum tekjum einstaklinga, sem náð hafa 67 ára aldri á skattárinu, fjárhæð, er nemi 2/5 hlutum af fjárhæð frádráttar skv. A-lið 1. mgr. Á sama hátt skal draga frá hreinum tekjum hjóna, sem telja fram saman, sömu fjárhæð fyrir hvort um sig.“

Það, sem hér er um að ræða, er breytingin á upphafi gr., þ.e. „Auk frádráttar samkv. 1. mgr....“, þ.e.a.s. auk persónufrádráttarins. Þetta er skriflega flutt brtt. og þarf því afbrigða við, og má ég biðja hæstv. forseta að leita eftir þeim, um leið og 3. brtt. er dregin til baka.