30.03.1971
Neðri deild: 77. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)
208. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 1. minni hl. (Þórarinn Þórarinsson):
Herra forseti. Við erum vafalaust sammála um það, ég og hæstv. fjmrh., að það sé ástæðulaust að halda áfram löngu karpi um þetta efni, því að að sjálfsögðu liggur þetta mál það ljóst fyrir, að þm. hafa áttað sig á því, hvað er um að ræða, en mér finnst þó samt í tilefni af þessari ræðu rétt að gera aths. við aðeins örfá atriði.
Hæstv. ráðh, minntist á það, að þessi till. okkar hv. 5. þm. Austf. væri ekki að öllu leyti formlega rétt flutt; þessi breyting okkar hefði átt að ná til fleiri greina í frv. Ég skal viðurkenna, að það er rétt hjá honum, en við höfum okkur það til afsökunar, að frv., eins og frá því var gengið við 2. umr., liggur enn ekki fyrir, og satt að segja vegna þess, að við vorum að stuðla að því að flýta frekar afgreiðslunni en hitt vegna þess, hvað tíminn er orðinn naumur, þá vorum við búnir að leggja þessa till. fram fyrir 3. umr., áður en var gengið frá atkvgr. við 2. umr., eins og líka hv. meiri hl. fjhn. var búinn að gera. Hann var búinn að leggja sína till. við 3. umr. fram til afgreiðslu hér á skrifstofunni, áður en atkvgr. fór fram. (Gripið fram í.) Ég vildi enn fremur benda á í þessu sambandi, að núna fyrir nokkrum dögum á Alþ. þá gerðist það m.a.s. samkv. till. hæstv. forsrh., að við afgreiddum lagagrein með þeim hætti, að það varð óhjákvæmilegt að breyta henni við 3. umr. Við algreiddum hana við 2. umr. þannig, að það var óhjákvæmilegt að breyta henni við 3. umr., og það gengu allir að því sem sjálfsögðu; þetta var í sambandi við útvarpslögin. Þm. höfðu fellt niður eina gr., en önnur grein var þannig, að hún stangaðist á við hana, en samt var óhjákvæmilegt að samþykkja hana og breyta henni við 3. umr. Og það sama gildir að sjálfsögðu hér, að ef þessi till. okkar yrði samþ., þá mundi það verka á hinar gr., sem hún stangast á við, þannig að þeim yrði breytt, svo að ég held, að það sé ekki neinn annmarki á þessu.
Þá var hæstv. fjmrh. að spyrja um það, hvort þessi till. okkar mundi hafa þau áhrif, að það þyrfti að reikna upp skattvísitöluna fyrir liðin ár. Það tel ég, að komi ekki til greina enda held ég, að það sé yfirleitt venja í sambandi við lagasetningar eða þegar lög eru sett, að þau verki ekki langan tíma aftur fyrir sig, en þau gildi fyrst og fremst fyrir nútímann og framtíðina. Hins vegar mundi þessi till. að sjálfsögðu hafa þau áhrif, að ef hún yrði samþ., þá yrði skattvísitalan reiknuð upp að nýju og mundi fylgja framfærsluvísitölunni. Við leggjum til, að við síðustu gr. frv., 30. gr., verði þessi breyting okkar, ef hún verður samþ., ein af þeim gr., sem mundi koma til framkvæmda strax við álagningu skattanna í ár, þó að frestað yrði öðrum atriðum frv.
Ég held, að ég eyði ekki miklum tíma í útskýringar hæstv. fjmrh. á því, hvers vegna hann og viðskrh. nota mismunandi tölur á víxl um það, hvert verkamannakaupið sé allt eftir því, hvað hentar í hvert skipti. Að sjálfsögðu á ekki að fara eftir nema einni tölu í þessum efnum, og það er sú
tala, sem er álitið, að hafi verið atvinnutekjur verkamanna eða launafólks á árinu. Hæstv. fjmrh. orðaði þetta nú þannig í sinni ræðu á dögunum, að hann sagði, að hann hefði látið reikna út, hverjar væru almennar verkamannatekjur. Hann tiltók að vísu jafnframt ákveðinn taxta, en það var náttúrlega fjarri öllu Lagi, þegar miðað var við fyrsta taxta eingöngu, að tala um, að þar hafi verið um almennar verkamannatekjur að ræða. En við þurfum ekki að þrátta um þetta atriði núna. Það liggur eiginlega svo ljóst fyrir, um hvað er hér að ræða og hvernig ráðh. haga sínum tölum. Ég álít hins vegar, að í þessu tilfelli séu þær tölur, sem þeir hafa verið með, landbrh. og viðskrh., nærri sanni, án þess að ég vilji nokkuð fullyrða um, að þær séu réttar, enda kemur það ekki fullkomlega í ljós fyrr en eftir að skattframtölin liggja fyrir á þessu ári. En það finnst mér ekki rétt hjá ráðh. að tala um það sem einhverjar stórfelldar tekjur, þó að menn hafi haft á s.l. ári rúmlega 300 þús. kr. Það hefur enginn, miðað við þá dýrtíð, sem var á síðasta ári, lífað kóngalífi fyrir það. Og þessar tekjur eru það lágar, að kaupmáttur þeirra miðað við verðlag í landinu er minni en var fyrir 10 árum. Að því er hægt að leiða mjög sterk rök með samanburði á verðlagi og kaupgjaldi á þeim tíma og nú, en út í það ætla ég ekki að fara hér að sinni.
Ég vil svo aðeins vitna til þess, af því að hæstv. ráðh. var að gagnrýna þá reglu, sem þessi till. er byggð á, að embættismannanefndin, sem hefur unnið að þessu frv., fékk m.a. það hlutverk að athuga þessa till. okkar hv. 5. þm. Austf., og ég held, að þó að álit hennar sé að öðru leyti mikið trúnaðarplagg, sé mér óhætt að lesa það upp, sem hún segir um álit hennar á frv., sem ég og aðrir fluttu um þetta efni á síðasta þingi, en hún kemst m.a. að þessari niðurstöðu, með leyfi hæstv. forseta, um sams konar frv. og þessi till. fjallar um:
Nefndin er að því leyti sammála frv., að af þeim vísitölum, sem hér eru reglulega reiknaðar út, telur hún framfærsluvísitöluna vera traustustu viðmiðun, sem völ er á í þessu efni, ef á annað borð er talið æskilegt að binda skattvísitölubreytingar með lögum, enda er þá gert ráð fyrir, að framfærslu- og kaupgjaldsvísitölur fylgist að ... Þannig að við höfum eiginlega vottorð sjálfrar embættismannanefndarinnar fyrir því, að þessi aðferð sé ekki óeðlileg til þess að ákveða skattvísitöluna, heldur þvert á móti sú réttasta, sem hér hefur verið um að ræða, ef hún er á annað borð bundin við einhverjar ákveðnar reglur.
En það, sem ég vildi víkja að að síðustu, er þetta: 1. sept. n.k. á hin svokallaða verðstöðvun að falla úr gildi. Það er alveg ljóst mál, ef skattvísitalan verður látin standa óbreytt, að skattar hljóta að hækka mjög verulega á þessu ári. Meiri hl. Alþ. er raunar búinn að gera ráð fyrir því með því að hækka fyrirframgreiðsluna á fyrri hluta ársins um 15%. En það er alveg fullvíst, að ef skattvísitalan stendur óbreytt, þá munu skattgreiðslurnar á þessu ári ekki hækka um 15% á síðari helmingi ársins, heldur sennilega allt að 30–40%, og þá stöndum við frammi fyrir því, að á sama tíma og verðstöðvunin fellur úr gildi eru launþegar farnir að borga 30–40% hærri skatta en þeir gerðu á síðasta ári. Og menn skulu gera sér grein fyrir því, að það mun hafa áhrif á alstöðu launafólks til þess, sem þá gerist. Ef menn vilja búa þannig í haginn, að hægt sé að taka skynsamlega á þessum málum, þegar verðstöðvunin gengur úr gildi, þá á Alþ. að ganga svo frá skattal., að það dynji ekki yfir stórauknar skattgreiðslur á sama tíma og verðstöðvunin fellur úr gildi. Það mun gera þessi mál miklu erfiðari viðfangs en þó ella, og munu þau vera nógu erfið samt. Þess vegna held ég, að þetta ætti að vera hvatning öllum þeim, sem vilja leysa málin með eðlilegum hætti eftir 1. sept. n.k., að haga ekki skattamálunum þannig, að hér dynji yfir stórkostlegar auknar skattgreiðslur einmitt á sama tíma og verðstöðvunin gengur úr gildi og gera þarf nýjar ráðstafanir. Það mun gera þessi mál miklu erfiðari viðfangs en þau yrðu, ef skynsamlega væri að farið í skattamálunum.