30.03.1971
Neðri deild: 77. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég gerði að umtalsefni hér við 2. umr. skattamál aldraðs fólks og minnti þá á, að við höfum nokkrir þm. flutt frv. um sérstakan skattfrádrátt aldraðra. Það kom í ljós við 2. umr., að fjhn. hafði ekki tekið till. okkar til greina og þóttist finna á henni ýmsa annmarka, en ég sé nú, að við endurskoðun þessa máls hefur n. flutt að nýju brtt. og þ. á m. tekið að nokkru undir þessa hugmynd okkar um sérstakan skattfrádrátt aldraðra. Mér finnst, að í þessari till. felist virðingarverð viðurkenning á réttmæti þeirrar hugmyndar, sem við höfum borið hér fram, og ég vil leyfa mér að fagna þessu skrefi í réttlætisátt, sem stigið er með þessu. En hins vegar vil ég benda á, að það er líka rétt að huga að því, að svipuð ákvæði eða sams konar ákvæði um skyldu sérstaks ellifrádráttar komi inn í l. um tekjustofna sveitarfélaga, en þar mun þó vera a.m.k. heimild til þess að koma slíku við. Ég vil benda á þetta, um leið og ég út af fyrir sig fagna þessu skrefi, sem þó er tekið nú, og tek undir þessa hugmynd, og ég tel, að hún hafi fengið vissa viðurkenningu, og e.t.v. eru möguleikar til þess að gera betur síðar.