31.03.1971
Efri deild: 84. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (1368)
208. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Björn Jónsson:
Herra forseti. Ég verð að játa það, að ég er að ýmsu leyti og reyndar flestu leyti vanbúinn að segja nokkuð um þetta frv. á þessu stigi málsins, jafnvel þó að svo vilji til, að ég væri til kvaddur í þá þmn., sem var gefið tækifæri til þess að fylgjast með störfum embættismannanefndarinnar á s.l. sumri og fram eftir vetri. Sannleikur málsins er sá, að frv. hefur verið að taka stöðugum breytingum, og síðustu breytingarnar, sem á því hafa verið gerðar, höfum við þm. aðeins haft á borðinu fyrir framan okkur í tæpan klukkutíma.
Ég hlýt að átelja til að byrja með þau vinnubrögð, sem hér hafa verið viðhöfð — ekki þau, sem frekar ber að hæla, þ.e. að hæstv. fjmrh. hefur gefið fulltrúum flokkanna í fjhn. tækifæri til þess að fylgjast ofurlítið með því, hvað embættismannanefndin væri að gera, og þeir hafa verið kallaðir saman nokkrum sinnum, til þess að þar væru bornar á borð fyrir þá tilkynningar um það, hvað málsmeðferðinni hjá embættismannanefndinni liði — heldur vil ég sérstaklega átelja meðferð málsins hér á háttv. Alþ. Það eru orðnir, eins og hæstv. ráðh. sagði, um það bil tveir mánuðir, síðan málið var lagt fyrir á Alþ., og þá var gert ráð fyrir því, að fjhn. beggja d. störfuðu saman að athugun málsins, en framkvæmdin varð hins vegar sú, að fjhn. Ed. var aðeins kölluð saman til eins fundar, en fjhn. Nd. hefur síðan alfarið haft með málið að gera og gert á því svo stórkostlegar breyt., að hér er í raun og veru orðið um alveg nýtt frv. að ræða — nýtt frv., sem eins og ég sagði — við höfum haft til athugunar núna í tæpa tvo tíma, og ég hygg, að enginn hv. þm. hafi enn þá gert sér grein fyrir því, og ekki einu sinni lesið það, því að til þess hefur ekki verið tækifæri. Og þó að hæstv. ráðh. hafi gert hér í mjög stórum, grófum atriðum grein fyrir þeim breytingum, þá er langur vegur frá því, — ég get sagt það a.m.k. fyrir mitt leyti — að manni sé fullljóst, hvaða breytingum málið hefur tekið. En þrátt fyrir það, að bæði ég og sjálfsagt fleiri hv. þm. séu illa í stakk búnir nú til að ræða einstök atriði, þá vil ég þó aðeins fara um þetta mál nokkrum orðum.
Þá vil ég segja það fyrst, að ég tel þá endurskoðun, sem hér hefur farið fram, vera þannig, að það megi vafalaust finna ýmislegt, sem er til bóta — ýmisleg einstök atriði, þó að ég vilji ekki að svo komnu leggja dóm á þá stefnu í heild, sem upp er tekin með frv. Því að það er að sjálfsögðu rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að hér er um mörkun pólitískrar stefnu í skattamálum að ræða. En hvað sem því líður, tel ég, að endurskoðun skattkerfisins sé eðlileg og nauðsynleg af mörgum ástæðum, en það gildir auðvitað ekki aðeins um tekju- og eignarskatt, sem greiddur er til ríkisins, heldur einnig um önnur gjöld, sem atvinnureksturinn og einstaklingar í landinu eiga við að búa, og gildir það auðvitað, eins og ég sagði, um fyrirtæki sem einstaklinga. Slík heildarendurskoðun er nauðsyn, og það viðurkenndi hæstv. ráðh., en sagði þó, sem líka er rétt, að hér væri aðeins tekinn hluti af stóru og miklu vandamáli. Og það er einmitt þetta, sem gerir það að verkum, að það er ekki nokkur lífsins leið fyrir menn að leggja endanlega dóm á þennan hluta. Það er a.m.k. ekki hægt að leggja endanlegan dóm á þá stefnu, sem þetta frv. að ýmsu leyti mótar, fyrr en við höfum alla myndina fyrir okkur — alla myndina af skattheimtu ríkisins, af skattheimtu bæjar- og sveitarfélaga og öllum þeim margvíslegu gjöldum og sköttum, sem bæði atvinnureksturinn og einstaklingar í landinu búa við.
Ég er alveg sammála hæstv. ráðh. t.d. um það, að það nær ekki nokkurri átt að hafa skattkerfið svo flókið, að hvert einasta fyrirtæki eða hver einasti maður, sem við atvinnurekstur fæst í landinu, þurfi að greiða á milli 20–30 mismunandi gjöld, en þannig er þetta nú, ýmist til opinberra eða hálfopinberra aðila. En það, sem hér er aðalatriðið, er, að hér tengist auðvitað allt saman, sveitargjöldin til sveitarfélaganna og gjöldin til ríkisins, því að auðvitað er það ekki svo, að tekjuþörf þessara samfélagsforma, ríkisins og sveitarfélaganna, vaxi eða minnki við það, að breytingar verði í kerfinu sjálfu. Vissum upphæðum þarf að ná inn, til þess að hægt sé að gera þessum aðilum kleift að starfa með eðlilegum hætti, og spurningin er því fyrst og fremst um það, hvernig þessum útgjöldum er dreift á atvinnurekstur, á gróða fyrirtækja og á einstaklingana og að hve miklu leyti skuli tekið tillit til efnahags þeirra og afkomu. Ég hygg, að menn geti verið mér sammála um það, að fullnaðardómur um hluta af þessu kerfi öllu saman, þessu flókna og mikla kerfi, geti ekki legið fyrir hjá mönnum, fyrr en öll myndin blasir við. Við getum ekki dæmt um það frekar en við getum dæmt t.d. um mynd eða málverk, þar sem er skorinn af svolitill biti. Við getum ekki sagt um það fullkomlega, hvort það er vont eða gott, fyrr en við sjáum verkinu lokið. Og það er einmitt það, sem ég tel höfuðgallann á allri málsmeðferð þessa máls og á þessu frv., að þessi mynd blasir ekki við. Við sjáum hér aðeins vissa þætti, en við höfum ekki myndina af því, hvað á að koma í staðinn, t.d. hvað á að koma í stað þeirra skerðinga, sem sveitarfélögin auðsjáanlega verða fyrir, þegar þetta frv. hefur verið samþ.
Það breytir því ekki, að ég er sömu skoðunar og hæstv. ráðh., þ.e. að endurskoðun hafi verið og sé nauðsynleg af mörgum ástæðum. Ég tel það alveg hafa verið eðlilegt á sínum tíma, að hann léti fara fram athugun á skattalegri stöðu atvinnurekenda í landinu vegna aðildar okkar að EFTA, þó að það sé sannast mála, að það hafi komið fram í þeim samanburði, sem reynt hefur verið að gera á íslenzku skattkerfi og skattkerfi í öðrum löndum Fríverzlunarsamtakanna, að skattar væru hér ekki almennt þyngri en þar er. Hitt er augljóst, að við höfum mismunað atvinnurekstri hér mjög verulega þannig að útgerð fiskvinnsla, farmskipafélög, flugfélög og annað slíkt hafa búið við sérstakar og hagstæðari skattareglur en annar atvinnurekstur þ. á m. iðnaður. Og ég tel það fullkomlega eðlilegt og sjálfsagðan hlut til leiðréttingar í sambandi við vaxandi iðnvæðingu og vaxandi samkeppni við inngöngu okkar í EFTA, að þarna væru metin jöfnuð. Þó að ég vilji hins vegar alls ekki halda því fram, að það sé rétt — alfarið rétt og ævinlega rétt — aðferð að gera engan mun á því, um hvaða atvinnurekstur er að ræða. Ég tel nefnilega, að skattkerfið eigi að vera og þurfi að vera öðrum þræði hagstjórnarkerfi, og það getur vel aftur hæglega leitt til þess, að það sé okkur þjóðhagsleg nauðsyn að ívilna okkar mikilvægustu atvinnugreinum jafnvel á kostnað annarra. Ef það er ekki hægt að bera það fyrir sig a.m.k. í vissum tilvikum, þá er skattkerfið ekki það hagstjórnartæki, sem ég tel, að það þurfi að vera. En það breytir ekki því, að ég tel, að með tilliti til iðnaðarins hafi jöfnuður milli hans og annarra grundvallaratvinnugreina okkar verið eðlilegur.
Það er svo fyrir mælt, ef ég man rétt, í síðara erindisbréfi hæstv. fjmrh. til embættismannanefndarinnar að fela henni að framkvæma heildarathugun á skattalögunum með það að markmiði annars vegar að gera skattkerfið sem einfaldast og hins vegar að gera þær breytingar á ákvæðum l. um tekju- og eignarskatt að því er varðar skatta einstaklinga, er n. telur sanngjarnar og eðlilegar. Þarna er lögð á það grundvallaráherzla að gera skattkerfið einfaldara en það er nú. Ég sé ekki neitt í þessu frv. og viðurkenni þá að sjálfsögðu jafnframt, að ég hef ekki skoðað öll atriði þess svo niður í kjölinn, sem mér bæri kannske að gera og æskilegt hefði verið, en ég sé ekki neitt í þessu frv., sem hér liggur fyrir, sem gerir skattkerfið einfaldara en það áður var, og yfirleitt hefur það verið svo í tíð núv. hæstv. ríkisstj., að skattkerfið er sífellt að verða flóknara og flóknara.
Ég minni á þá miklu einföldun, sem það átti að vera á skattkerfinu á sinni tíð, að ég tali nú ekki um sparnaðinn, sem það átti að leiða af sér, að leggja niður skattanefndirnar og taka upp skattstjóraembættin. En hver hefur reynslan orðið í þeim efnum? Var það ekki strax reynslan á fyrstu árunum, eftir að það kerfi var tekið upp, að það var mörgum sinnum dýrara og flóknara í öllum meðförum. Og ekki hefur sköttunum fækkað, því að ég held, að þeim hafi fjölgað næstum því á hverju ári, sem liðið hefur af hinu svo kallaða viðreisnartímabili. Og ekki örlar í þessu frv. á neinu — og ég sný ekki til baka með það, fyrr en það er þá rekið ofan í mig sem misskilningur — sem heitið geti einföldun á skattkerfinu. Mér sýnist hins vegar, að að öðrum þræði sé skattkerfið gert talsvert flóknara en áður var m.a. með þeirri breyt., sem hæstv. ráðh. minntist á, sem gerð var í hv. Nd., þ.e. að nú geta fyrirtæki valið á milli tveggja ólíkra skattforma — valið á milli þess að hafa skattfrjálsan varasjóð, eins og verið hefur, og þess að koma upp hjá sér arðjöfnunarsjóði. Ég held, að bara þetta eitt sér hljóti að valda margs konar ruglingi og erfiðleikum í allri tæknilegrí framkvæmd skattalaganna.
Því hefur mjög verið haldið fram og er kannske að mörgu leyti mismikið hæft í því, að núgildandi skattalög tryggi ekki eða a.m.k. stuðli ekki nægilega að eigin fjármagnsmyndun í fyrirtækjum, og ég er því alveg sammála, að það, sem veldur hvað mestum erfiðleikum í okkar atvinnurekstri — í okkar efnahagsmálum — er það, að ekki hefur tekizt að skapa í fyrirtækjunum eðlilegt eigið fjármagn. Á því er enginn vafi, og ég held að um það séu ekki ýkja skiptar skoðanir. Hitt er svo auðvitað annað mál, að það er aðeins önnur hlið málsins, og vandinn er vitanlega sá, að þetta sé unnt án þess, að of nærri einstaklingunum og þá sérstaklega láglaunafólkinu sé gengið. Þar held ég, að verði að reyna að finna gullinn meðalveg, sem leysir vandann, þannig að báðir megi við það una.
Og það er sagt núna, að það sé eiginlega sú meginstefnubreyting, sem þetta frv. hafi í för með sér, að þessi fjármunamyndun í fyrirtækjunum verði auðveldari en áður. Og vissulega er það rétt, að frv. allt í heild stefnir að því að létta álögum og sköttum af fyrirtækjunum í landinu og alveg sérstaklega með breyttum fyrningarreglum og með því að heimila þeim að koma upp hjá sér arðjöfnunarsjóðum, sem aftur leiðir til þess, að þau geta dregið árum saman að greiða nokkur gjöld til hins opinbera þ. á m. til bæjarfélaganna og sveitarfélaganna, þó að um stórkostlegan hagnað og stórkostlegan gróða sé að ræða. Á hinn bóginn er svo jafnframt því, sem þessum læk af fjármagni skulum við segja — er veitt inn í fyrirtækin, þá er opnuð aftur útrás fyrir þetta sama fjármagn með því að skylda — allt að því skylda — fyrirtækin til þess að greiða arð, hvort sem það er þeim hagstætt eða ekki. Og það er gert með ákvæðunum um það, að sé arðjöfnunarsjóður ekki notaður til arðgreiðslna eða til þess að borga niður töp á fimm árum, ef ég hef tekið rétt eftir, þá er þeim fyrirtækjum refsað með sérstökum skatti á allt það, sem í arðjöfnunarsjóðinn rennur. Þannig sýnist mér, að það sé í raun og veru stefnt að því að gera hlutaféð að meira eða minna leyti að eins konar lánsfé, sem reynt sé að tryggja, að beri a.m.k. eðlilega og venjulega bankavexti eða eitthvað nálægt því. Mér sýnist þess vegna, að þegar þetta tvennt er vegið saman, þá sé á því allur vafi, hvort meira af eigin fjármagni safnast í fyrirtækjunum með þessu fyrirkomulagi en áður, þó að ég teldi það hins vegar á margan hátt æskilegt, ef þar er farið að öllu með gát.
Það þykir mér líka strax galli á þessu frv., að mér sýnist, að það sé greinilegt, að það mismuni rekstrarformunum, geri rekstrarformum mjög mishátt undir höfði. Þar á ég að sjálfsögðu ekki við þá leiðréttingu, sem í l. felst um það, að sameignarfélög og hlutafélög eru álíka sett, hvað skatta til ríkisins snertir, heldur á ég sérstaklega við þá, sem hafa rekstur á eigin nafni, leggja allar eigur sínar og heiður að veði og standa og falla með sínum rekstri, en eru ekki að fela sig á bak við minni áhættu með því að hafa rekstur sinn í formi hlutafélags. Og ég verð að segja það, að mér finnst það koma úr hörðustu átt sem stofna Sjálfstfl. — flokks, sem kennir sig við einkaframtakið — að hann skuli sérstaklega vera að refsa þeim mönnum, sem með framtaki og dugnaði vilja reka sín eigin fyrirtæki á sínu eigin nafni og leggja undir allar sínar eigur og sína efnalegu velferð. En það er auðvitað auðsætt, að t.d. þau hlunnindi, sem í arðjöfnunarsjóði felast, ná ekki til einstaklinganna. Og m.a. þetta og reyndar ýmislegt fleira hlýtur svo að leiða til þess, að þeir verða færri og færri, sem leggja í þá áhættu að hafa sinn eigin atvinnurekstur og standa og falla með því, hvernig þeim tekst að sjá honum borgið. Einnig kemur þarna til, að þau hlunnindi, sem hlutafjáreigendur fá, þ.e. að þeir geta fengið allt að 60 þús. kr. skattfrjálsar á ári, gefur auðvitað skýra vísbendingu um það, að það sé hagstæðara fyrir þann, sem atvinnurekstur stundar, að hafa hann í hlutafélagsformi, hafa sín laun kannske eilítið lægri, ef svo stendur á með eðlilegum hætti, en fá heldur skattfrjálsa arðgreiðslu frá fjölskylduhlutafélagi. Og allt, sem ýtir undir slíkan skollaleik, tel ég sízt vera til bóta.
Mín niðurstaða er því sú a.m.k. að svo komnu máli, að það sé mjög fjarri því, að þetta frv. bæti úr misrétti og ágöllum skattkerfisins. En fyrir utan það, sem ég hef nefnt í þessum efnum, þá tel ég, að þeir ágallar séu margir. Suma þeirra hef ég nefnt og þó ekki þann, sem mér þykir allra verstur, og hann er sá, að skattar og útsvör eru nú lögð á mjög lágar tekjur, þurftarlaun eða þaðan af minna, en inn á það svið fer þetta frv. ekki með neinum beinum hætti, en hins vegar að sjálfsögðu með þeim óbeina hætti, að þegar verið er að létta af félögunum — gróðafélögunum skulum við segja, sem gjalda nú ekki nema um eða innan við 2% af öllum tekjum ríkissjóðs — stórkostlegum byrðum, þá getur það auðvitað ekki endað nema á einn veg, þ.e. að allur almenningur í landinu, einstaklingarnir, verða að hera meira. Og sama gildir auðvitað, þegar gengið er inn á þær brautir að skerða tekjumöguleika sveitarfélaganna frá því, sem verið hefur. Þá er ekki annað úrræði fyrir þau en snúa sér að einstaklingunum, og a.m.k. út um landsbyggðina, þegar höfuðborginni sleppir, þá er það viða svo, að þar er ekki í annarra vasa að seilast en launafólksins og það oft fólks, sem ekki ber ýkja mikið úr býtum og í mörgum tilfellum ekki nema þurftarlaun.
Það má svo líka vera, að þær breytingar, sem eru gerðar á fyrningarreglunum, og sú stórkostlega rýmkun, sem þar er um að ræða, hljóti að leiða bæjarfélögin meira inn á brautir aðstöðugjaldanna, en þau tel ég vera allra ósanngjörnust og óeðlilegust allra gjalda, sem á atvinnurekstrinum hvíla. En eins og ég sagði áðan, þá heimta sveitarfélögin sitt og ríkissjóður sitt, og einhvers staðar verður að taka þær tekjur, sem annars staðar glatast. En aðstöðugjöldin eru auðvitað þess eðlis, að takist mönnum ekki að reka sín fyrirtæki með hagnaði, greiða þeir venjulega mestu og þyngstu gjöldin. Ég held þess vegna, að það sé í því fullkomið óraunsæi — líka frá sjónarmiði atvinnurekstrarins — að taka bara einn bitann af vandamálinu og skoða hann án alls samhengis við það, sem við hann er tengt.
Ég hef stundum minnzt á það hér áður, og ég er enn þá þeirrar skoðunar, að óeðlilega rúmar fyrningarreglur hafi í för með sér ýmsar hættur. Við þekkjum sjálfsagt öll, sem eitthvað höfum fylgzt með atvinnurekstri, þá tilhneigingu, sem kannske er ekki nema mannleg, en engu að síður staðreynd, að menn reyna að haga svo sínum málum, að þeir sleppi sem léttast frá allri skattheimtu, hvort sem er til ríkis eða bæja og auðvitað alveg sérstaklega, ef þeir geta gert það með fullkomlega lögmætum hætti. En rúmar fyrningarreglur leiða iðulega til þess, að fyrirtæki og einstaklingar, sem atvinnurekstur stunda, leiðast út í óeðlilega og oft óarðbæra fjárfestingu og stuðla þannig að rýrari kjörum alls almennings og ýta undir verðbólgu. Það er t.d., hygg ég, fátt öllu óvinsælla hjá öllum almenningi, — og það ekki að ófyrirsynju, þegar menn horfa upp á það, að þeir menn, sem reka fyrirtæki t.d. í útgerð og fiskvinnslu, sem sannanlega skila jafnvel tugmilljónum í hagnað árlega, þurfa ekki að greiða neina skatta; og það er gjarnan talað um svindl í því sambandi. En oftast nær er hér auðvitað ekki um neitt slíkt að ræða, heldur eru bara þessar rúmu fyrningarreglur notaðar, og samkv. þeim ber mönnum ekki að gjalda meira, þó að þeir hafi haft mikinn gróða og hafi vel verið aflögufærir til þess að leggja eitthvað til samfélagsins, hvort sem það er ríki eða bær, sem um er að ræða. En með þessu frv. er að mínu viti svo rýmkað um fyrningarreglurnar, að það sé enn ríkari hættum boðið heim en verið hefur og miklu meiri en nokkur ástæða er til.
Ég ætla ekki að hafa um þetta fleiri orð að þessu sinni. Ég hef minnzt á málsmeðferðina, og ég hygg, að það hefði reynzt fleirum örðugt en mér að leggja fullnaðardóm á ákvæði þessa frv. í heild sinni, fyrr en þeir sjá, hvert stefnir, hvert áframhaldandi endurskoðun skattkerfisins leiðir, og menn hafa alla myndina fyrir sér af þeim gjöldum, sem bæði atvinnurekstrinum og einstaklingunum í landinu er gert að standa undir. En eins og ég sagði, sýnist mér þó meginstefnan í þessu frv. vera sú að koma skattheimtunni meira yfir á lágtekjur og miðlungstekjur launþega og niðurstaðan hljóti að verða sú, að með þeim hætti, sem þetta er gert, verði horfið æ meira að söluskatti, aðstöðugjöldum og öðrum gjöldum, sem einna óvinsælust eru af alveg rökréttum ástæðum meðal alls almennings. Við horfum líka fram á það, að við þurfum að lækka tolla á næstu árum og höfum skuldbundið okkur til þess, og ég get þá ekki séð, að víða sé að leita fanga í þeim efnum, nema við viljum koma á framleiðslugjöldum, sem gerðu það að verkum, að ekki væri um mismunun að ræða í tollum og framleiðslugjöldum í sambandi við skuldbindingar okkar í EFTA nema þá í auknum söluskatti og auknum aðstöðugjöldum, og það held ég, að væri engum til heilla og allra sízt atvinnurekstrinum í landinu.
En að svo komnu máli finnst mér það höfuðatriði málsins, sem ég hef reyndar margminnzt á í þessari ræðu minni, sem ekki er ýkja löng, að hér er aðeins um hluta máls að ræða, en bendi hins vegar á það, að það er ekki ætlazt til þess, að þessi lög taki gildi fyrr en á næsta ári og það beri því enga bráða nauðsyn til þess að afgreiða þetta mál nú, heldur verði það látið bíða, þangað til heildarendurskoðun á skattkerfinu öllu og tekjustofnum sveitarfélaganna liggur fyrir. Það finnst mér sjálfsögð og eðlileg krafa, sem hver sanngjarn aðili, hvort sem hann er í stjórn eða stjórnarandstöðu, ætti að geta tekið undir, og atvinnurekendur í landinu hafa reyndar gert það alveg þangað til nú síðustu dagana, þegar látið hefur verið undan flestum þeirra kröfum. En ég spyr: Bar hér aðeins að hafa samráð við atvinnurekendur? Var ekki líka einhver ástæða til þess að hafa samráð við launþegana í landinu um það nýja skattkerfi, sem hér er verið að koma á? Er það þeim alveg óviðkomandi hvert sú stefna, sem hér er verið að móta, leiðir? Ég sé það nú — þó að ekki væri nú annað en það — að a.m.k. 10 menn í d. virðast hafa beðið um orðið eins og ég, og læt ég því máli mínu lokið.