03.04.1971
Efri deild: 90. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1375)

208. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sveinn Guðmundsson:

Herra forseti. Frv. um tekjuskatt og eignarskatt, sem hér er komið til lokaafgreiðslu við þinglausnir, hefur verið nokkuð lengi til meðferðar hjá Nd. Strax fyrir inngöngu Íslands í EFTA gaf hæstv. ríkisstj. yfirlýsingu um, að endurskoðun skatta mundi fara fram, til þess að íslenzk fyrirtæki yrðu ekki verr sett í samkeppni en hliðstæð fyrirtæki annarra EFTA-landa. Fyrir síðasta Alþingi var svo lagt fram frv. samið af embættismönnum, sem hæstv. fjmrh. setti til þeirra starfa. Ekkert var óeðlilegt við það, þó að þetta frv. dagaði uppi á s.l. þingi svo seint fram komið, sem það var. En frekari endurskoðun skyldi svo fara fram milli þinga, og ákveðið var, að fulltrúar fjhn. beggja þd. fylgdust með henni. Sýnt er, að þessi málsmeðferð öll hefur ekki gefið góðan árangur, því að málið kom ekki til Alþ. að nýju fyrr en 9. febr. s.l. — og það, sem meira er, málið hefur setið hjá fjhn. Nd., þar til fyrir tveimur til þremur dögum. Og svo nú, þegar málið kemur til þessarar hæstv. þd., þá er raunverulega allt annað frv. á ferðinni. Ber að þakka það. Ég tel, að hv. fjhn. Nd. eigi skilið hrós fyrir að hafa umsamið frv. og komið því í viðunandi horf. Þannig get ég fyrir mitt leyti vel sætt mig við þetta frv. og hef mælt með samþykkt þess ásamt meiri hl. fjhn. Að vísu er margt í þessu frv., sem enn er þörf á að breyta, en ég sé fram á það, að með því að breyta frv. nú væri því stefnt í hættu og afgreiðsla málsins alveg óviss, þar sem stutt er til þingslita. Því tek ég þann kost að mæla með frv. óbreyttu í trausti þess, að þeir hv. alþm., sem koma til Alþ. á næsta hausti, geti bætt um enn betur.

Orsök þess, hversu þessi lagasetning hefur öll gengið með eindæmum — vildi ég segja, tel ég vera, á hvern hátt hefur verið staðið að undirbúningi málsins. Ég tel það alrangt að hafa falið embættismönnum eingöngu þá endurskoðun skattalaganna, sem hér hefur farið fram. Enginn efast um hollustu eða samvizkusemi þessara manna, en hefði ekki verið sigursælla að hafa nefndina blandaða, þannig að fleiri sjónarmið kæmu strax fram t.d. sjónarmið atvinnurekstrar og ekki síður launþega, eins og hv. 4. þm. Norðurl. e. benti á við Í. umr. málsins hér í þd. Mér finnst með þessu, að mönnum hljóti að vera ljóst, að embættismannakerfið a.m.k. í slíkum tilvikum sem þessum sé ekki það heppilegasta, og ég vil skora á hæstv. fjmrh. að bæta nú um og endurskipuleggja nefndina, en hún hefur hvergi nærri lokið sínu verkefni. Og ekki væri það neinum til gleði, að þessi mál þyrfti að endurskoða við framhaldslöggjöf þá, sem stefnt er að um breytingu á skattkerfinu.

Eins og ég tók fram í byrjun, þá er þetta lagafrv. mikið breytt frá sinni upprunalegu mynd. Ég vil lýsa ánægju minni yfir, hversu vel hefur verið tekið ábendingum samtaka atvinnurekstrar landsmanna, sem eðlilega hafa látið málið til sín taka með mikilli röggsemi. Samtökin hafa mætt fyllstu vinsemd og skilningi bæði hjá hæstv. fjmrh. og fjhn. Nd., sem og raun ber vitni, sbr. frv. í núverandi mynd. Þótt hv. þdm. Ed. hafi ekki haft beint með málið að gera, þá verð ég þó að láta þess getið, að form. fjhn. Ed. hefur lagt sig fram um að gera a.m.k. mér kleift að fylgjast með málinu og verið opinn fyrir ábendingum, sem til gagns mættu horfa.

Ég vil ekki skilja svo við þetta mikilsverða mál, að ekki sé getið nokkurra einstakra atriða bæði þeirra, sem ég tel til bóta, og eins hinna, sem telja verður, að fengið hafi aðra málsmeðferð. Í frv. eru í núverandi formi mörg ákvæði, sem horfa til bóta fyrir atvinnurekstur landsmanna, og ber að fagna þeim ákvæðum. Vil ég fyrst koma að sameignarfélögunum, sem ráðgert var í upphaflegri mynd frv. að fella algerlega niður. Þetta félagsform hefur nú verið tekið inn í frv, að nýju með takmörkunum, þannig að sameignarfélög halda áfram að vera sjálfstæðir skattaðilar, enda ber nú að skrá slík félög sérstaklega. Þetta er mikið til bóta frá því, sem ætlað var. Það nær reyndar fullkomlega tilgangi sínum, enda var að mínum dómi algerlega óraunhæft að leggja niður þetta handhæga félagsform fyrir t.d. minni háttar rekstur samstilltra manna, sem er ofviða að fara í hlutafélagsform með rekstur sinn.

Ætlunin var samkvæmt frv. að leggja niður hlutafélagsformið í sinni gömlu mynd og þar með heimild félags til að mynda varasjóð með því að leggja 25% af arði til hliðar. Eina mestu bót á frv. frá upprunalegri mynd tel ég þó vera, að nú verður heimilt að halda þessu félagsformi áfram óbreyttu í svokölluðum B-félögum. Gildir þetta bæði um eldri félög og ný félög, sem stofnuð yrðu. Þetta er ein af meginbreytingunum, sem gerð hefur verið á frv. nú. Jafnframt er svo haldið í frv. hinu nýja félagsformi, svokölluðum A-hlutafélögum, sem hafa möguleika til að leggja hagnað sinn í svokallaðan arðjöfnunarsjóð, en greiða um leið 15% skatt af því fé til ríkisins. Að mínum dómi hefði átt að sleppa þessari 15% skattlagningu, enda var hún tekin upp í frv. nú, en var ekki í frv. í fyrra, þegar það var lagt fram. Annar galli á þessu félagsformi er þetta: Arðjöfnunarsjóðsfyrirkomulagið er tímabundið þannig, að fé má ekki standa þar lengur inni en fimm ár. Þá skal það tekið til baka, greitt hluthöfum í arð eða lagt við tekjur og skatta að 80 hundraðshlutum, en þó 20% fært á höfuðstól félaganna án frekari sköttunar. Hér hefði sannarlega átt að leyfa, að féð stæði áfram eða a.m.k. í 10 ár í arðjöfnunarsjóði og enn fremur að arðjöfnunarsjóður á því tímabili væri tiltækur til fjárfestingar og uppbyggingar atvinnurekstrarins.

Í þessu sambandi er rétt, að það komi fram, að innan embættismannanefndarinnar varð ágreiningur. Sjálfur ríkisskattstjóri lagði til, að félögunum yrði leyft að leggja í fjárfestingarsjóði. Þetta fékkst ekki fram, eins og komið er í ljós með frv., og tel ég það miður farið. Arðgreiðsla samkvæmt þessu A-formi hlutafélags er nú bundin við 10% hjá félögunum á móti 10% hjá hluthöfunum í hinum venjulegu hlutafélögum. Skattfrjáls arðgreiðsla hjá viðtakanda, 30 þús. kr. á einstakling eða 60 þús. kr. hjá hjónum samkvæmt þessu nýja félagsformi, er mikið til bóta og ætti að geta stuðlað að því, að landsmenn almennt vildu gerast aðilar að slíkum félögum. En áður verður áreiðanlega að sjá svo um, að atvinnurekstur landsmanna komist á öruggari grundvöll og nær árviss hagnaður sé það, sem atvinnureksturinn fær að búa við. Þetta er erfitt við að eiga a.m.k. í sjávarútvegi og hefur verið erfitt víða, þar sem verðlagshömlur og óeðlilegar verðhækkanir hafa hamlað eðlilegum rekstri fyrirtækja. Þess vegna er það, að fimm ár eru of stuttur tími til yfirfærslu taps, sérstaklega þar sem um ný fyrirtæki er að ræða. Nær hefði verið að hafa þetta 10 ár, eins og líklega mun vera hjá nágrönnum okkar t.d. í Finnlandi, og mér er kunnugt um, að í Svíþjóð mun vera um að ræða yfirfærslu á tapi á sex árum.

Varðandi 30 þús. kr. skattfrjálsan arð af hlutafé fyrir einstakling, sem hv. 10. þm. Reykv. sá hér ofsjónum yfir og hv. 11. þm. Reykv. tók rösklega undir — þeir báru þar saman sparifé og hlutafé sem tvö sparnaðarform, vil ég segja þetta. Ég tel alveg óraunhæfan þann samanburð, sem hv. þm. gerðu og lýsir hjá þeim meiri vanþekkingu á þessu máli en ég hafði búizt við af a.m.k. prófessornum, sem jafnframt er formaður í bankaráði eins af ríkisbönkunum, og ekkert síður af hv. 11. þm. Reykv., sem hefur einmitt verið bankastjóri um árabil. Þess vegna tel ég rétt að taka hér bara eitt lítið dæmi, og við skulum taka einkabanka hér í Reykjavík, sem rekinn er í hlutafélagsformi. Þetta hlutafélag er stofnað fyrir u.þ.b. 20 árum. Mörg fyrstu árin var enginn arður greiddur; ekki þurfti að öfunda hluthafa þessi árin í því hlutafélagi. Síðar, þegar bankanum óx fiskur um hrygg, líklega eftir 10 ára starf, var byrjað að greiða arð — mest 7%. Það, sem næst skeður, er, að þetta fyrirtæki margfaldaði hlutafé sitt. Nýir hluthafar gengu inn í félagið, eldri hluthafar juku við hlutafé sitt, nýir bættust við og greiddu nafnverð fyrir þá viðbót. Siðan verður þetta félag fyrir því tjóni, að aðalbygging þess brann. Það varð til þess, að arðgreiðsla féil niður um nokkurra ára skeið eftir þær miklu ófarir. Þannig var arðurinn af þessum hlutabréfum, og dæmin eru alls staðar. Með því að leggja fé í hlutafélög og hlutabréf tekur fólk áhættu og getur alveg eins átt von á því að fá ekki arð um margra ára bil, en því er allt öðruvísi varið með sparifé og spariskírteini ríkisins.

Ég þekki ekkert hlutafélag, sem getur greitt arð fyrstu árin eftir stofnun. Við skulum bara nefna ríkisfyrirtæki eins og Sementsverksmiðju ríkisins eða Kísiliðjuna. Bæði þessi félög hafa skattfríðindi. En hvað heldur hv. 10. þm. Reykv., að hluthöfum þessara félaga, hefðu þau verið í hlutafélagsformi, hefði verið greitt í arð fram á þennan dag frá stofnun fyrirtækjanna? Hlutafé er í flestum tilfellum áhættufé, sem ber að greiða af meiri arð en t.d. venjulegu sparifé eða ríkistryggðum spariskírteinum. Það má líka minnast á það, eins og hæstv. fjmrh. talaði hér um við 1. umr., að víða úti á landi einmitt á síðustu árum er verið að stofna til hlutafélaga einmitt til að byggja upp atvinnurekstur á hinum ýmsu stöðum, þar sem atvinnu hefur vantað, og ég vil segja það, að ekki eru líkindi fyrir því, að allir þeir hluthafar fái mikinn arð af sínu fé. Sannleikurinn er sá, að það þarf frekar að vorkenna hlutabréfaeigendum og stuðla betur að arðsemi félaganna, svo að almennara verði, að greiddur sé arður.

Hv. 10. þm. Reykv. las upp úr bréfi atvinnurekendasamtakanna og komst að þeirri niðurstöðu, að þessir aðilar væru mótfallnir skattfrjálsum arðgreiðslum, 30 þús. kr. á einstakling og 60 þús. kr. á hjón. Og hann vitnaði þar í umsögn atvinnurekendasamtakanna um 9. gr. frv. Þegar þetta bréf var skrifað 25. febr., var í frv. ákvæði um ótakmarkaða arðgreiðslu í A-félögunum. Síðan var þessu breytt — fyrst með 20% þaki, en síðan með 10% þaki. Áður var þetta þaklaust, þ.e. ótakmörkuð arðgreiðsla leyfð. Þannig er ekkert samhengi milli þessara ummæla og frv. í núv. formi, enda þótt hv. 10. þm. Reykv. teldi svo vera.

Eitt af því, sem tekið hefur umskiptum til hins betra í meðferð málsins, er, að skatturinn á söluhagnaði af lausafé og fasteignum er nú alveg felldur niður, ef skattþegn hefur átt lausaféð í fjögur ár og fasteignina í 6 ár. Áður komu 25% þess krónuhagnaðar til viðbótar tekjum viðkomandi. Gott er einnig, að rýmkað skuli enn meir um skattlagningu á hagnaði af sölu húsnæðis einstaklinga. Sannleikurinn er sá, að aukin krónutala í okkar verðbólguþjóðfélagi við sölu t.d. fasteigna er í fæstum tilfellum hagnaður, heldur er seljandinn að fá minni en fleiri krónur, og hagnaðurinn er líklega oft óbreyttur að verðmæti, sem er algerlega út í hött að skattleggja, eins og fyrirhugað var. Fer því vel á því, að þessu hefur verið kippt burt úr frv. Ég get ekki látið hjá líða í þessu sambandi að lýsa undrun yfir því, hversu fasteignaeigendur oft eru lítils metnir sem slíkir í umr. og þeir taldir heppilegir til skattlagningar. Þetta er í fyllsta máta einkennilegt, þar sem svo stór hluti Íslendinga eiga sjálfir sínar eigin íbúðir. Líklega eru hér hlutfallslega fleiri fasteignaeigendur en nokkurs staðar annars staðar í veröldinni.

Við 1. umr. þessa máls ræddi hæstv. fjmrh. þetta sérstaklega og gekk út frá því sem vísu, að fasteignaskattar yrðu verulega hækkaðir, þegar endurskoðun á tekjum sveitarfélaga fer fram á næstunni í framhaldi af þessu frv. Ef þetta yrði nú ofan á við þessa endurskoðun, sem líklega verður falin sömu embættismannanefnd, sem nú hefur skilað af sér hluta af starfi með þessu frv., sem hér hefur verið lagt fram, nema henni verði þá breytt samkv. áskoruninni, þá efast ég stórlega um, að slíkt frv. um stóraukna fasteignaskatta fengi betri móttökur hjá hinu virðulega Alþ. en nú hefur orðið raunin á með þetta frv. Auk allra þeirra einstaklinga, sem slíkir skattar mundu bitna á, yrði þó þunginn hvað mestur á þeim, er hlífa skyldi — þeim, sem ekki hafa getu til þess að eiga sjálfir þak yfir höfuðið. Ef stórauknir fasteignaskattar eru teknir upp, þá mundi leiguhúsnæði verða að hækka að sama skapi, og það kæmi því niður á þeim verst settu í þjóðfélaginu. Eins og ég sagði áðan, þá hef ég gert þetta að umtalsefni hér nú vegna ummæla hæstv. fjmrh., þar sem þessi hugsun er einnig ofarlega í hugum sumra sveitarstjórnarmanna, sem væri kært að fá meira fé til ráðstöfunar.

Nokkur eru þau ákvæði enn í þessu frv. þrátt fyrir allar þessar breytingar, sem ekki hafa fengizt lagfærð, enda óskiljanlegt, hvað hefur blandazt inn í hugi embættismanna þeirra, sem sömdu frv., að nauðsyn bæri til að taka þar inn svo margar breytingar, sem ekki hafa neitt með tilgang frv. að gera. Það er í beinu framhaldi af inngöngu okkar í Fríverzlunarsamtökin og yfirlýsingu þeirri, sem hæstv. ríkisstj. gaf þar að lútandi. Afgjaldskvaðir af verðmæti samkv. 18. gr. í frv. er eitt af þessum ákvæðum. Einnig skattlagning bóta vegna altjóns samkv. 4. gr. Gengistap uppfært sem eign samkv. 12. gr. mætti nefna ásamt nokkrum atriðum til viðbótar, sem tilgangslaust er að rifja upp, eins og nú er komið.

Menn hafa velt því fyrir sér, hvort þær breytingar, sem nú verða væntanlega gerðar á skattalögunum, gætu stuðlað að því, að menn stofnuðu til margs konar starfsemi í félagsformi, t.d. hlutafélaga samkv. A-kerfi með það fyrir augum að fá skattfrjálsan frádrátt í formi arðs fyrir sig og maka sinn. T.d. Jón Jónsson, eins og hv. 10. þm. Reykv. minntist á, stofnaði hlutalélagið Jón Jónsson hf., endurskoðandinn stofnaði hlutafélag um sína atvinnu, skósmiðurinn, tannlæknirinn — og jafnvel var stofnað hlutafélag um heimilishaldið. Þegar ríkisskattstjóri mætti á fundi fjhn., var þetta einmitt til umr., en hann taldi sig nú hins vegar hafa ráð undir rifi hverju og getu til þess að setja undir mismunandi leka í skattkerfinu. Þannig ætti að verða óhætt að treysta embætti hans í slíkum málum, ef menn reyndu að misnota þau ákvæði, sem frv. gerir ráð fyrir um skattfrelsi arðs í A- hlutafélögum. Frjálsleg ákvæði um félagsform tel ég til mikilla bóta og fyrirmyndar. Gott væri, ef einstaklingar gerðu meira af því og skildu betur nauðsyn þess að vinna meira saman. Einstaklingshyggja hjá okkur Íslendingum er allt of mikil. Það, sem okkur vantar, er einmitt stærri rekstrareiningar, en ekki, að hver og einn sé að hokra í sínu horni. Sú stétt manna, sem vel hafa skilið þetta á allra síðustu tímum, eru íslenzkir verkfræðingar, sem fjöldamargir hafa nú stofnað til félagsstarfsemi um kunnáttu sína og störf á félagsgrundvelli. Það er gefið mál, að með félagslegri samstöðu næst betri árangur fyrir þjóðarheildina og einstaklingana sjálfa. Þetta á við bæði hvað við kemur verkfræðingum og öðrum, sem einnig hafa aðstöðu til þess að starfa einir síns liðs, eins og hv. 10. þm. Reykv. taldi upp nokkur dæmi um. Skattfrelsi takmarkaðs hluta arðs úr A-hlutafélögum er að mínum dómi uppörvandi til að auka hagsýni og félagslega uppbyggingu, sem okkur Íslendingum er bráðnauðsynleg.

Margt fleira mætti ræða í sambandi við þetta lagafrv., en ég vil hlífa hv. þdm. við lengri ræðu, og að endingu vil ég svo enn lýsa ánægju yfir, hversu góðum breytingum þetta frv. hefur tekið við meðferð hv. Alþ., og vænti þess, að hv. þdm. sjái hinar ljósu hliðar málsins og veiti frv, brautargengi í því formi, sem það nú er komið í.