02.04.1971
Efri deild: 88. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)

296. mál, virkjun Svartár í Skagafirði

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Sjálfsagt fær þetta frv. ágætan byr í hv. Alþ., þó að seint sé fram komið, en samt finnst mér fylgja því blær, sem ég vil ekki láta fram hjá mér fara að fjalla um, vegna þess að það snertir ýmis önnur mál landsmanna t.d. eignarrétt, möguleika til fiskræktar og stefnuna í virkjunarmálum. Það getur vel verið, að það sé ekki viðeigandi, að þm. úr öðrum landshlutum, sem lítið þurfa yfir þessum málum að kvarta, séu að blanda sér inn í umr. um takmörkuð virkjunarsvæði annars staðar, en málið er bara ekki svona einfalt frá mínu sjónarmiði. Hér er um það grundvallaratriði að ræða, með hvaða hætti við ætlum að reyna að virkja. Það kom fram hjá öllum hér, að dýrara yrði að virkja í smávirkjunum en í stærri virkjunum, og lesi maður aths. við frv., kemur í ljós, að n. var sett á laggirnar fyrir nær 5 árum og hefur starfað alllengi að undirbúningi, og mér virðist, að þetta sé niðurstaðan. Ekki fæ ég heldur séð, hvað KW-stundin á að kosta neytendur á þessu svæði, og veit ég ekki, hversu hagkvæm virkjunin er, en þó hafa menn látið að því liggja, að þetta yrði eitthvað dýrara en stórvirkjun.

Nú getur það vel verið, að ekki séu tök á því að reisa neina stórvirkjun og þess vegna sé ekki völ á öðru, og mér heyrist það á öllum, að ekki sé um annað að ræða en að ráðast í þessar framkvæmdir. En á borð okkar þm. kom athugasemd frá landeigendum, og síðan las 1. þm. Norðurl. v. hér upp bréf frá hreppsnefndinni, þannig að það er nokkur uggur í einhverjum mönnum þarna. Nú þekki ég ekki það vel til, að ég vilji leggja dóm á það í fljótræði, en ég ásamt fleiri þm. flutti hér frv. í fyrra — og einnig flutti hæstv. ríkisstj. frv. um lax- og silungsveiðimálin. Við þessir þm. vorum þéttbýlismenn, sem stóðum að því að vilja láta fiskræktarsjóð standa á raunhæfum grunni, þegar hann var stofnaður, og lögðum til, að honum yrði hleypt af stokkunum með 10 millj. kr. framlagi, en hv. Alþ. lagði honum til 1 millj. kr. Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysu, bætti sem form. Búnaðarfélags Íslands eftir mikið og farsælt starf. Þegar hann kom í sjónvarpið, lýsti hann því yfir, að eitt af framtíðarmálum landbúnaðarins — og mjög mikilvægt mál — væri fiskræktin í landinu, og hann orðaði það svo, að hér gæti verið um hagsmuni að ræða, sem skipti hundruðum milljóna, ef ekki milljörðum. Ég var alltaf bjartsýnn á það, að fiskræktin ætti hér mikla framtíð fyrir sér og allmarga málsvara, en svo hefur ekki reynzt vera á hv. Alþ. Þó vil ég enn minna á það, sem víða hefur komið fram, að Danir rækta nú fisk, og það kom fram í ræðu í gær, held ég, hjá Hannibal Valdimarssyni, að Danir flytja þegar út eldisfisk fyrir á annan milljarð króna, og samt höfumst við sáralítið að. Ef af virkjun þessari verður, er svo að heyra, að það varði byrjunarframkvæmdir, sem hafnar hafa verið í héraði af fiskræktarmönnum eða landeigendum. Ég veit ekki, hvernig samvinnu er þar háttað, en athyglisvert er, að þarna virðist einhver hagsmunaágreiningur eiga sér stað.

Vissulega verður Norðurl. v. að fá sitt rafmagn. Það verðum við að fá um allt Ísland, annars getum við ekki lifað og haldið uppi eðlilegu lífi, en mikið vandamál er það að sameina þessa tvo þætti, iðnaðarþróun og virkjunarframkvæmdir annars vegar og hins vegar hag fólksins, sem býr í landinu. Annars staðar hefur þetta verið leyst þannig, að eignarréttur yfir ám og vötnum er ríkisins. og þess vegna eru vandamál varðandi virkjunarframkvæmdir ekki eins erfið. Hins vegar er það svo t.d. í Svíþjóð og Kanada og viðar, að virkjunaraðilinn, hvort sem það er ríki eða einhver annar, borgar ákveðinn skatt, eins og hæstv. forsrh. drap á hér áðan, hvort sem um er að ræða virkjun í bergvatnsám eða jökulám. Og Alþ. bar gæfu til þess í sambandi við lax- og silungsveiðilöggjöfina og var það mjög merkilegt atriði — að skattleggja virkjanir örlítið vegna eflingar fiskræktar í landinu, þ.e. 30/00 af óskírum tekjum, hvort sem virkjað er í bergvatnsám, þar sem fiskrækt er, eða ekki. Það væri mjög svo undarleg afstaða, ef við vildum ekki leggja fiskrækt í landinu sjálfu lið á sama tíma og við allir berjumst mjög ákaft fyrir því að eiga okkar fiskveiðilögsögu við strendur landsins sem mesta og öruggasta.

Hæstv. forsrh. gaf þá yfirlýsingu við umr. þessa máls í Ed., sem ég, með leyfi hæstv. forseta, vil lesa upp hér. Ég skrifaði hana eftir segulbandinu eða úrtakinu, en ég vænti þess, að það sé rétt tekið upp hjá mér:

„Ég endurtek þess vegna, ef það er í mínum verkahring að annast framkvæmd þessara laga — og ég tel það skylt hverjum, sem ætti að annast framkvæmd laganna, að taka verður öll þessi atriði frá landeigendafélaginu til greina í samningagerðum við þá, áður en til virkjunarframkvæmda kemur.“

Hér tel ég um mjög merka yfirlýsingu að ræða af hálfu hæstv. forsrh., og raunverulega er hér brotið blað í viðhorfinu til þeirra manna, sem eiga þessi réttindi, með því að hafa nú fullt samræmi í lausn þessara mála. Ég vil þess vegna koma þessu á framfæri hér í hv. d. og beina því afdráttarlaust til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, að hún hugleiði það að koma því inn í l., að þetta sé tryggt, en þetta verði ekki aðeins yfirlýsing. Þó að ég meti hana fullkomlega sem slíka og hún sé örugglega sögð af heilum hug af hálfu hæstv. forsrh., þá tel ég það mjög sterkt, að Alþ. marki stefnuna með því að taka slíka afstöðu. Það er augljóst mál, að við verðum að leysa þessi mál mjög farsællega. Annað er okkur ekki sæmandi, og önnur deila á borð við þá, sem hefur þróazt í sambandi við virkjunarframkvæmdir í Laxá, má ekki eiga sér stað. Við verðum að koma í veg fyrir það. Þó að tími sé naumur hér á síðustu dögum þingsins og nógu úr að vinna, þá verðum við að koma í veg fyrir það, að slík átök eigi sér stað á Norðurl. v. eins og þau, sem hafa átt sér stað í sambandi við virkjun Laxár í Þingeyjarsýslu.

Ég vil því eindregið hvetja hv. iðnn. til þess að hugleiða það, hvort tök eru á því að koma þessu ákvæði inn í l., og ég veit ekki, hvort hæstv. forsrh. vill lýsa fylgi sínu við þessa aths. mína, en ég met mjög mikils yfirlýsingu hans og vilja hans til þess, að þetta verði tekið mjög alvarlega. Reyndar kom hann inn á þetta í framsöguræðu sinni, og ef það verður staðfest í l., þá er hér afar merkilegt atriði á ferðinni, sem ætti að móta stefnuna í framtíðinni.